Morgunblaðið - 20.12.2014, Síða 53

Morgunblaðið - 20.12.2014, Síða 53
MINNINGAR 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014 góður bekkjarfélagi og vinur, alltaf var stutt í fallega brosið þitt og prakkarann. Missirinn er mikill og þín verður sárt saknað af fjölskyldu og vinum. Við viljum þakka Berglindi, eða Beggu okkar eins og hún var alltaf kölluð, fyrir samfylgdina í gegnum árin. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. Ég reika oft á rangri leið, sú rétta virðist aldrei greið. Ég geri margt sem miður fer, og man svo sjaldan eftir þér. Sú ein er bæn í brjósti mér, ég betur kunni þjóna þér. Því veit mér feta veginn þinn og verðir þú æ Drottinn minn. (Pétur Þórarinsson) Við viljum senda okkar inni- legustu samúðarkveðjur til Al- exanders, Engilberts, Sigur- borgar, Marínar og nánustu aðstandenda, megi Guð styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Blessuð sé minning þín elsku vina. Kveðja frá árgangi 1974 í Vestmannaeyjum, Guðrún og Heiða. Elsku kæra vinkona mín, ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért farin frá okkur. Það er svo sárt að vita að ég eigi ekki eftir að hitta þig aftur. Við höf- um þekkst alla ævi, sögðum alltaf að við hefðum kynnst á fæðingardeildinni, því mæður okkar lágu saman í sængurleg- unni. Minningarnar hrannast upp frá því við vorum litlar að leika okkur saman, við vorum oft að rifja leikina upp þegar við hittumst, eins og leikinn með rebba og dúkkuna á túninu bak við húsið þitt. Einnig þegar við urðum ástfangnar af Zap- ped-myndinni, það var alveg ógleymanleg stund. Einnig hlógum við mikið að því þegar við hlupum heim til þín á tás- unum og stálum heilli smjör- pappírsrúllu frá mömmu þinni til að nota í að hrekkja bróður minn og vini hans. Af mörgum minningum er að taka þar sem vináttan spannar alla okkar barnæsku. Við vorum ekki mik- ið saman á unglingsárunum en náðum síðan aftur saman og áttum ógleymanlegar stundir. Núna allra síðustu ár hittumst við ekki oft, en þegar við hitt- umst urðu alltaf fagnaðarfundir og við gátum endalaust spjallað og rifjað upp góðar minningar. Síðasta góða spjall okkar var á goslokahátíðinni og við vissum að við myndum vera vinkonur að eilífu. En núna er ég ein um þessar minningar og í mínum huga verður þú alltaf hjá mér. Hvíldu í friði, elsku Berglind mín. Elsku Alexander, Eddi, Bossý, fjölskylda og vinir, ég votta ykkur mína innilegustu samúð á þessum erfiðu tímum. Kveðja, Auður. Mér er eiginlega orða vant. Ég skil varla að það sé satt að þú sért farin frá okkur, elsku Berglind mín, það er svo óraun- verulegt. Aðeins 40 ára gömul, sem er ekki hár aldur, þetta er alveg hræðilega sárt og erfitt. Þú varst yndisleg manneskja með svo fallegt hjarta og góða sál og þú vildir allt gera fyrir mann ef þú mögulega gast. Einu sinni vantaði mig einn hlut og auglýsti eftir honum á netinu og þú varst mætt með gripinn eftir smátíma heim til mín. Einnig man ég fyrir sex árum, þá átti ég stórt afmæli og var að plana veisluna, að sjálf- sögðu bauðst þú til að elda fyrir mig einn góðan rétt og gerðir það með sóma, þú komst með matinn til mín þótt þú treystir þér ekki til að vera í afmæl- isveislunnivegna heilsuleysis, samt gerðir þú þetta fyrir mig og fyrir utan að gefa mér stóra og fallega gjöf. Svona sögur eru lýsandi fyrir þitt fallega hjarta- lag. Við áttum saman góða tíma og erfiða og hjálpuðum hvor annarri eins mikið og við gát- um. Við börðumst af alefli við sjúkdóma í langan tíma. Ég er búin að óska þess svo heitt svo lengi að þú fengir bata og ættir dásamlegt og hamingjusamt líf með strákunum þínum og fjöl- skyldu. En það verður víst ekki, því miður. Ég vona svo hjart- anlega að þér líði vel þar sem þú ert núna og að þú sért hjá pabba þínum, bróður og systur og í faðmi annarra ástvina þinna sem umvefja þig með kærleik. Ég er svo þakklát fyrir að hafa kynnst þér, elsku Berg- lind mín, og mun varðveita minningarnar ávallt í hjarta mér, fyrir mér verður þú alltaf fallegasti engillinn á himninum, örugglega í bleiku og með allt bleikt í kringum þig ef ég þekki þig rétt. Ég finn svo innilega til með yndislegu sonum þínum, mömmu þinni, systur og öllum ástvinum, þau eru í öllum mín- um bænum, ég bið Guð að styrkja þau og styðja í þessari miklu sorg. Þeir segja mig látna, ég lifi samt og í ljósinu fæ ég að dafna. Því ljósi var úthlutað öllum jafnt og engum bar þar að hafna. Frá litlu hjarta berst lítil rós, því lífið ég þurfti að kveðja. Í sorg og í gleði ég senda mun ljós, sem að mun ykkur gleðja. (G. Ingi) Þín vinkona alltaf, Halla Einarsdóttir. Ég sit hér dofinn vegna and- láts þíns og sorgin er alveg óbærileg. Ég gæti skrifað heilu bækurnar um öll samtölin okk- ar, um lífið og veginn og allt það sem við höfum upplifað og gert saman. Við kynntumst 1988 á svo- kölluðu Oz-árum, þegar sameig- inlegur vinur okkar lést. Þótt það hafi verið þrjú ár á milli okkar þá hófst vinskapur okkar strax sem varð sterkari og traustari með hverju árinu sem leið. Eitt af því sem þér þótti svo vænt um var að ég kallaði þig aldrei Beggu, eins og þú varst kölluð, heldur kallaði ég þig ávallt Berglindi. Við áttum svo margt sameig- inlegt og eitt af því var tónlist- in. Um tónlistina gátum við allt- af talað saman, hvort sem hún tengdist gleði eða sorg. Það hefur engin önnur manneskja haft jafnmikil áhrif á mig sem tónlistarmann og þú hefur haft. Þú vildir alltaf heyra það sem ég var að gera og semja og vild- ir fá það nýjasta úr tónlistar- smiðjunni og þú hvattir mig óspart að halda áfram. Afrek er hljómsveit sem þú áttir stóran þátt í að byggja. Þú spurðir mig hvort ég gæti sam- ið lag um Helliseyjarslysið þar sem bróðir þinn fórst. Þessi bón þín sat lengi í mér en svo kom lagið sem ég nefndi Guðlaugs- sund. Þú stakkst upp á því að ég fengi Sævar Helga Geirsson til að syngja lagið, því bróðir hans hafði farist í sama slysi. Upp frá því spratt óendanleg vinátta milli míns og Sævars og til varð hljómsveitin Afrek sem starfar enn í dag, þökk sé þér. Þú vildir alltaf heyra það sem við vorum að bralla og ég á til upptökur þar sem varst þú á staðnum þegar við Sævar vor- um að setja eitt lag saman og þar má heyra þig syngja með. Þegar við gáfum út lagið Þúsund bita sagðir þú mér að þetta væri lagið þitt og gætir bara ekki hætt að hlusta á það vegna þess að textinn snerti þig, enda fjallar hann um vin- áttuna og trúna. Þegar ég hlusta á þetta lag í dag græt ég og minnist orða þinna. Þú sagð- ir oft að tónlist væri þér allt og hún hjálpaði þér þegar þér liði illa. Tónlistin var þér allt. Bleikur var liturinn þinn. Í þínum huga átti allt að vera bleikt. Bleikur bíll, bleikt hús, bleikur fatnaður, bleikt hár og svona má lengi telja. Allur heimurinn átti vera bleikur. Sólarhring eftir að ég fékk sím- talið að þú værir látin þá var mikið sjónarspil á himni og norðurljósin léku um stjörnu- bjarta himininn. Þá varð mér litið til austurs milli Eldfells og Helgafells og þar á festingunni glitraði ein bleik stjarna. Stjarnan þín. Ég kveð þig, elsku vinkona, með sorg í hjarta og söknuði. Ég mun sakna þín mikið. Ég mun ávallt geyma vinskap okk- ar sem gull í hjarta mér og er ég þakklátur fyrir að hafa átt þig sem vin. Ég þakka þér fyrir allt og að hafa ávallt verið dætrum mínum góð. Heimurinn er svo sannarlega fátækri án þín en himnaríkið er ríkara núna að eiga engil eins og þig. Við hittumst svo aftur hinum megin elskan en þangað til verð ég njóta minninganna. Ég vil votta Bossý, Edda, Al- exander, Marín, Bryndís og öðrum aðstandendum alla mína samúð og megi guð styrkja ykkur í sorginni. Ég elska þig, vinkona. Þinn vinur og félagi, Helgi Tórs. ÞAR SEM FAGMENNSKAN RÆÐUR Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030 Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa okkar GUÐMUNDAR ÁRNA SIGFÚSSONAR húsasmíðameistara, Sléttuvegi 19, áður Heiðargerði 34. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjartadeildar Landspítala 14EG fyrir frábæra umönnun og væntumþykju í veikindum hans undanfarnar vikur. Drottinn blessi ykkur og styrki. Gleðileg jól og farsælt komandi ár. . Margrét Guðvaldsdóttir, Ólafur S. Guðmundsson, Elísa N. Puangpila, Sigfús Árni Guðmundsson, Eva Geirsdóttir, Valdimar G. Guðmundsson, Valgerður Marinósdóttir, Birgir Guðmundsson, Ágústa María Jónsdóttir, afa- og langafabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, EYSTEINN JÓHANNES VIGGÓSSON vélstjóri, lést á Sólvangi í Hafnarfirði 30. nóvember Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. . Hallfríður Eysteinsdóttir, Óskar Jónsson, Ester Haraldsdóttir, Agnar Aðalsteinsson, Guðvarður Haraldsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem hafa sýnt okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS WILLIAM MAGNÚSSONAR, Krossholti 6, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á krabbameinslækningadeild 11E á Landspítalanum við Hringbraut. Guð blessi hjartahlýju ykkar. . Magnús Jónsson, Steinþór Jónsson, Guðlaug Helga Jónsdóttir, Davíð Jónsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR J. GUÐJÓNSSON, lést á heimili sínu í Hraunbæ föstudaginn 28. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. . Björgvin Sigurðsson, Lilja Leifsdóttir, Alda Sigurðardóttir, Ómar Kaldal Ágústsson, Sigríður Rúna Sigurðardóttir og barnabörn. Bróðir minn, HENRIK RÚDOLF HENRIKSSON, lést á hjúkrunarheimilinu Hlévangi þann 28. nóvember 2014. Útförin hefur farið fram. . Sólrún María Henriksdóttir. Bróðir minn, GUÐJÓN ÓSKAR JÓNSSON frá Hellisholtum, Hrunamannahreppi, Bogahlíð 22, lést á hjúkrunarheimilinu Eir 4. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. . Guðrún Jónsdóttir, Stóra-Lambhaga. ✝ Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, STEINGRÍMS LÁRUSSONAR frá Hörgslandskoti á Síðu. Guð blessi ykkur öll. Með ósk um gleðileg jól, Anna Hildur Árnadóttir, Lilja S. Steingrímsdóttir, Óskar P. Friðriksson, Jóhanna Kr. Steingrímsdóttir, Logi Ragnarsson, Halla Hrund, Kristján, Hildur Kristín, Haukur Steinn, Alexander Jón, Aaron Thomas. ✝ Innilegar þakkir færum við þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs föður, tengdaföður, afa og langafa, GEIRS GUÐMUNDSSONAR, fv. launafulltrúa hjá Reykjavíkurborg, áður til heimilis að Laugarásvegi 51, Reykjavík, sem lést á Sóltúni sunnudaginn 23. nóvember. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Sóltúns. Margrét Geirsdóttir, Gestur Jónsson, Árni Jón Geirsson, Sigríður Þ. Valtýsdóttir, Guðrún Geirsdóttir, Jón Friðrik Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, KOLBRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Háabergi 17, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 16. desember. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 22. desember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið eða líknardeild Landspítalans. Benedikt R. Steingrímsson, Margrét Benediktsdóttir, Pétur Hafliðason, Jenný Ýrr Benediktsdóttir, Ágúst Þórhallsson, Hlín Benediktsdóttir, Gísli Þór Jónsson, Guðrún Benediktsdóttir, Steinn Sigurðsson, Selma Benediktsdóttir, Eiríkur Ástvald Magnússon og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.