Morgunblaðið - 20.12.2014, Page 65
ÍSLENDINGAR 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Ársæll fæddist í Narfakoti íNjarðvíkum 20.12. 1886.Foreldrar hans voru Sigríð-
ur Magnúsdóttir úr Landeyjum og
Árni Pálsson kennari úr Fljótshlíð.
Eiginkona Ársæls var Svava Þor-
steinsdóttir og eignuðust þau fimm
börn en misstu yngsta soninn ungan.
Ársæll ólst upp í mannvænlegum
systkinahópi, kenndum við Narfa-
kot, en var ungur er faðir hans lést.
Ársæll fór 12 ára í vinnumennsku
á næsta bæ, fékk ungur áhuga á
bókbandi, lærði þá iðn hjá Guð-
mundi Gamalíelssyni í Reykjavík og
lauk prófi þremur árum síðar. Hann
fór síðan félítill í framhaldsnám til
Þýskalands og síðar Svíþjóðar, lifði
spart og studdi fjölskyldu sína, náði
góðum tökum á bókbandinu og fékk
gullmedalíu fyrir bókband á heims-
sýningu í Gautaborg.
Ársæll varð eftirsóttur bókbindari
og frágangur bóka hans í miklum
metum hjá fagfólki. Hann var góður
málamaður, þýddi mörg bókmennta-
verk úr þýsku, sænsku og ensku og
gaf þau út. Hann rak eigin bók-
bandsstofu, bókaútgáfu og bóka-
verslun Ársæls Árnasonar í mörg ár
á Laugavegi 4 í Reykjavík og síðar í
Ingólfsstræti.
Ársæll var næmur á góðar bók-
menntir og gaf út fyrstu verk skálda
á borð við Davíð Stefánsson og Hall-
dór Guðjónsson frá Laxnesi, Svartar
fjaðrir, Undir Helgahnúk og Kaþ-
ólsk viðhorf. Hann gaf einnig út
Nonnabækurnar og Ævisögu Bene-
dikts Gröndal og fjölmörg önnur
merk rit. Þá keypti hann tímaritið
Eimreiðina og gaf það út 1918-23.
Ársæll tók þátt í Grænlandsför
Gottu til að sækja sauðnaut sem ala
skyldi á Íslandi, og skrifaði hann bók
um þá ferð, Grænlandsför 1929.
Hann var áhugamaður um náttúru-
fræði, formaður Iðnaðarmanna-
félagsins í Reykjavík 1929-34 og
starfaði í reglu frímúrara.
Ársæll var prýðilegt ljóðskáld,
flugmælskur og gat talað blaðalaust
á þýsku, sænsku og ensku. Hann var
sæmdur riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu 1943.
Ársæll lést 9.1. 1961.
Merkir Íslendingar
Ársæll
Árnason
Laugardagur
90 ára
Einhildur Pálmadóttir
Rósa Aðalheiður
Magnúsdóttir
85 ára
Guðrún D. Ágústsdóttir
Margrét Viktoría
Magnúsdóttir
Þorbjörg Kristjánsdóttir
80 ára
Ásta Minney
Guðmundsdóttir
Eyrún Þorláksdóttir
Halldór Þorleifur Ólafsson
Ingibjörg Magnúsdóttir
75 ára
Gísli Árnason
Hörður Arnþórsson
Málfríður Kristín
Björnsdóttir
Sigurvin Magnússon
Skender Haxhiajdini
Stefán Ó. Gunnarsson
Þorbergur Ormsson
Þorbjörg Bergsdóttir
Þorbjörg Jónsdóttir
70 ára
Ármann Örn Ármannsson
Erna Einarsdóttir
Guðmunda Bergvinsdóttir
Guðmundur Magnússon
Guðrún Ingibergsdóttir
Gunnhildur Jónsdóttir
Högni Einarsson
Magnús H. Arndal
Sigurjón Bolli Sigurjónsson
Þorsteinn Ingólfsson
60 ára
Adam Koziej
Ásgeir Guðmundsson
Borgný Samúelsdóttir
Einar Ólafsson
Gylfi Þór Arnþórsson
Jarþrúður Jónsdóttir
Kristján Hafsteinn Leifsson
Lárus Jökull Þorvaldsson
Ragnhildur Jónsdóttir
Sigríður M. Sigurðardóttir
Sigurbjörn T. Gunnarsson
Skúli Skúlason
Sonja Riedmann Vigfússon
Steinberg Ríkarðsson
50 ára
Bjarnheiður Þ Þórðardóttir
Einar Már Jóhannesson
Hannes Strange
Hlynur Jensson
Lára Björk E. Birgisdóttir
Ólafur Guðlaugsson
Sif Jónsdóttir
Sigrún Þóra Björnsdóttir
Sigurbjörg Hlíf Karlsdóttir
Slawomir Mezynski
Stefán Hjörleifsson
Viktor Scheving Ingvarsson
Þorsteinn Jón Haraldsson
40 ára
Egidijus Zilius
Guðmundur Valdimar
Rafnsson
Hrafnhildur Skúladóttir
Ósk Guðvarðardóttir
30 ára
Ailandas Baurinas
Berglind Petra
Jóhannsdóttir
Gunnar Örn Friðriksson
Hafsteinn Esekíel
Hafsteinsson
Helena Dögg Valgeirsdóttir
Joanna Ewa Oskiewicz
Jonas Statkevicius
Lára Kristjánsdóttir
Ragnar Þór Ásgeirsson
Sandra Ósk Jóhannsdóttir
Sara Magnea Tryggvadóttir
Sigrún Einarsdóttir
Sólveig Björnsdóttir
Sunnudagur
85 ára
Örlygur Hálfdánarson
80 ára
Gísli Ellert Sigurhansson
Margrét Árnadóttir
Sigurður Guðbrandsson
75 ára
Else Bjarnason
Sigurður Kristinsson
70 ára
Elínborg Magnúsdóttir
Gústaf Grönvold
Laufey Jónsdóttir
Sigurður B. Halldórsson
Vigdís Gunnarsdóttir
60 ára
Anna María Malmberg
Birna Björgvinsdóttir
Erling Laufdal Jónsson
Helga Theodórsdóttir
Húni Zophoníasson
Jón Ágúst Pálmason
Marín Rún Jónsdóttir
Sigríður Jakobína
Magnúsdóttir
50 ára
Aldís Hafsteinsdóttir
Áslaug Björgvinsdóttir
Björg Hjörleifsdóttir
Gunnar Ásgeirsson
Gunnar Gunnarsson
Kjartan Björgvinsson
Kristján Guðni Sigurðsson
Kristmundur Óli Jónsson
Skúli Skúlason
Valmundur Guðmundsson
Þórarinn Hannesson
40 ára
Arna Bjartmarsdóttir
Cristian Gallo
Haraldur Birgir Þorkelsson
Íris Dögg Jónsdóttir
Þorkell Freyr Sigurðsson
30 ára
Davíð Hólm Júlíusson
Einar Hjörleifsson
Eva Ásgeirsdóttir
Freyja Rós Óskarsdóttir
Kristján Haraldsson
Lilja Hrönn Grétarsdóttir
Logi Steinn Karlsson
Ómar Sigurvin Gunnarsson
Sigríður S. Sigurðardóttir
Sintija Zaharko
Sævar Guðmundsson
Þórarinn Björn
Sigurjónsson
Örn Alexander Ámundason
Til hamingju með daginn
félaga frumkvöðla og hugvitsmanna,
situr í framkvæmdanefnd GWIIN,
alþjóðasamtaka kvenna í nýsköpun,
og hefur fengið tvær viðurkenn-
ingar frá þessum samtökum 2003 og
2009.
Elinóra hefur skipulagt fjölmarg-
ar ráðstefnur og sýningar fyrir er-
lenda og íslenska frumkvöðla og
hugvitsmenn hér á landi og í Sví-
þjóð og hefur tilnefnt 44 íslenskar
konur til GWIIN/EUWIIN-
viðurkenningar. Þá er Elinóra
stofnaðili og situr í stjórn Fulbright
alumni frá 2008, en 1992 fékk hún
Fulbright-styrk til að taka þátt í
sumarnámskeiði í jarðfræði og
borgarskipulagi í University of
Minnesota.
Hún hefur framleitt og stjórnað
sjónvarpsþættinum Frumkvöðlum á
ÍNN frá 2008 og eru þættirnir nú
orðnir tæplega 300.
Áhugamál Elinóru eru hönnun,
tónlist og dans: „Ég söng í kvenna-
kór Möggu Pálma á árnum 1993-
2000, en línudansinn er helsta
áhugamálið á eftir fjölskyldunni og
barnabörnunum. Ég hef dansað
línudans frá 1995 hjá Jóa dans og er
Íslandsmeistari og bikarmeistari í
línudansi með hópnum Hvelli. Auk
þess tók ég þátt í Country festival-
sýningu á Broadway 2001.“
Fjölskylda
Eiginmaður Elinóru er Júlíus
Valsson, f. 23.10. 1953, læknir og
fjöllistamaður. Foreldrar hans: Guð-
ríður J.Ó. Júlíusdóttir, f. á Horni í
Mosdal í Arnarfirði 23.7. 1924,
sjúkraliði, og Ebinezar Valur Krist-
jánsson, f. 25.1. 1921, d. 1.2. 2009,
rafvirki.
Börn Elinóru og Júlíusar eru
Heiðrún Ýrr Júlíusdóttir, f. 23.8.
1975, master í sendiráðsfræðum og
starfar í sendiráði Japans í Reykja-
vík en maður hennar er Edgerton
Lewis, master í alþjóðafræðum og
eru börn þeirra Elinóra Inga Egils-
dóttir, f. 1999, Colin Júlíus Lewis, f.
2009, og Ísak Marvin Lewis, f. 2011;
Íris Björk Júlíusdóttir, f. 15.3. 1979,
ritari hjá lögfræðideild Lögregl-
unnar í Reykjavík en maður hennar
er Ellert Þór Júlíusson kerfisfræð-
ingur og eru börn þeirra Regína
Rós, f. 2003, og Júlíana, f. 2013; Sig-
urður Jón Júlíusson, f. 20.3. 1989,
læknanemi og ljósmyndari í Reykja-
vík en sambýliskona hans er Ásta
Þórðardóttir, nemi í arkitektúr í
LHÍ, og Kristján Jóhann Júlíusson,
f. 24.3. 1995, framhaldsskólanemi og
tónlistarmaður í Reykjavík en kær-
asta hans er Fríða Theodórsdóttir,
nemi í japönsku í HÍ.
Systkini Elinóru eru Elinborg
Sigurðardóttir, f. 27.10. 1953, sér-
kennari á Iðu í Biskupstungum;
Magnús Jóhannes Sigurðsson, f.
27.3. 1957, húsasmíðameistari í
Kópavogi; Þórey Stefanía Sigurð-
ardóttir, f. 17.7. 1961, garðyrkju-
fræðingur og blómaskreytir í
Reykjavík; Sigríður Helga Sigurð-
ardóttir, f. 14.4. 1963, hárgreiðslu-
kona og framkvæmdastjóri í Mörk í
Reykjavík; Jón Helgi Sigurðsson, f.
6.7. 1969, garðhönnuður í Reykja-
vík; Sigrún Jóna Sigurðardóttir, f.
6.7. 1969, heimilisfræðikennari í
Árnesi.
Foreldrar Elinóru eru Dýrfinna
Helga Klingenberg Sigurjónsdóttir,
f. í Reykjavík 5.7. 1931, ljósmóðir í
Reykjavík, og Sigurður Ingvar
Jónsson, f. í Aðalvík 23.1. 1927,
verkamaður og smiður í Reykjavík.
Úr frændgarði Elinóru Ingu Sigurðardóttur
Elinóra Inga
Sigurðardóttir
Þórey Kristjana Kristjánsdóttir Fjeldsted
húsfr. í Hrútafirði
Tómas Jörgensson
gestgjafi á Borðeyri
Elinborg Tómasdóttir
húsfreyja og b. í Rvík
Sigurjón Jónsson
kyndari og verkam. í Rvík
Dýrfinna Helga Klingenberg
Sigurjónsdóttir
ljósmóðir í Rvík
Ingibjörg Gilsdóttir
húsfr. í Borgarfirði
Jón Oddur Jónsson
b. í Borgarfirði
Guðbjartur Guðmundsson
b. og útgerðarm. á Hesteyri
Þorbjörg Finnsdóttir
vinnuk. í Aðalvík
Elinóra Guðbjartsdóttir
húsfreyja í Aðalvík
Jón Sigfús Hermannsson
b. og sjóm. í Aðalvík
Sigurður Ingvar Jónsson
smiður og verkam. í Rvík
Guðrún Finnbjarnardóttir
húsfr. í Aðalvík
Hermann Sigurðsson
b. í Aðalvík
Elli og Ella Elinóra stígur línudans
á Kántrý festivali á Brodway 2001.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
60 ára reynsla á Íslandi
Fæst í öllum helstu
raftækjaverslunum
Með losanlegum grillplötum
• Ný Permacoat húðun, viðloðunarfrí
húðun sem veitir 3x lengri endingu
• Bakki sem tekur við fitu
• Allt að 42% fita
lekur af kjötinu
Nýju Russell Hobbs grillin
(George Foreman) eru komin
Með losanlegum grillplötum
semmega fara í uppþvottavél
3 stærðir