Morgunblaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 70
70 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 2014
Rótarýhreyfingin á Íslandi hefur
frá árinu 1998 haldið Stórtónleika
Rótarý í byrjun árs og frá 2005
úthlutað um leið verðlaunum til
ungs tónlistarfólks sem sýnt hefur
afburða árangur í námi og störf-
um á tónlistarsviðinu. Með þessu
vill Rótarý gera sitt til að efla ný-
liðun og greiða götu ungs fólks í
framhaldsnámi erlendis. Að þessu
sinni verða veittir tveir 800.000 kr.
styrkir á tónleikunum, sem verða í
Hörpu sunnudaginn 4. janúar nk.
kl. 20.00
Rótarý nýtur velvildar fjöl-
margra aðila sem taka höndum
saman til að gera verðlaunin veg-
leg og tónleikana glæsilega en
Kristinn Sigmundsson óperu-
söngvari flytur úrval íslenskra
sönglaga og Jónas Ingimundarson
píanóleikari annast undirleik en
hann er einnig aðalskipuleggjandi
tónleikanna.
Þá flytur Víkingur Heiðar
Ólafsson píanóleikari, sem var
fyrsti verðlaunahafinn 2005, ein-
leiksverk. Tónleikarnir eru öllum
opnir og allt andvirði seldra miða
til annarra en Rótarýfélaga geng-
ur óskert til Tónlistarsjóðs Rót-
arý.
Verðlaunatónleikar
Morgunblaðið/Einar Falur
Verðlaun Víkingur Heiðar fékk
Rótarýstyrkinn fyrstur árið 2005.
Ég var í jafnvægisleit,“ skrif-ar Sigurður Pálsson umtilveru táningsáranna íTáningabók sinni og
kveðst hafa uppgötvað nýlega að „ég
er í rauninni enn að leita að þessu
jafnvægi, jafn undarlegt og það kann
að hljóma.
Ég hafði ekki
áhuga á bókum
bara til þess að
„hanga í bókum“
sem er niðrunar-
yrðing sem heil-
brigt fólk kynslóð-
anna hefur þurft
að sæta af hálfu
offorsmanna
hinna hefðbundnu
atvinnugreina, svonefndra „undir-
stöðuatvinnuvega“.“ Og hann bætir
síðar við: „Fimmtíu árum síðar er
þessi eitraða klisja enn í gangi. Vit-
anlega eru menntun og sköpun eina
undirstaðan, hverjar sem atvinnu-
greinarnar kunna að vera.“ (96)
Auðvelt er að taka undir þessi
sönnu orð skáldsins sem tekst á við
það í þessari nýju bók, lokabindi
minningaþríleiks síns, að segja sögu
táningsáranna, áranna sem enda á
tán og tján. Hinar tvær fyrri, Minn-
isbók sem fjallar um námsár í París,
og Bernskubók sem fjallar um æsk-
una á Skinnastað í Axarfirði, hafa
vakið verðskuldaða athygli fyrir ein-
læga, fallega orðaða og vitsmunalega
úrvinnslu höfundarins á minningum
og reynslu liðins tíma. Þessi nýja bók
er í engu síðri, og ef eitthvað er enn
betri en hinar fyrri, því tök Sigurðar
á þessu flæðandi en þó agaða frá-
sagnarformi, sem stutt er ljóðum eft-
ir hann, eru hreinlega enn traustari
hér.
Í Táningabók segir af því þegar
Sigurður er fluttur til Reykjavíkur að
ganga í fyrsta skipti í hefðbundinn
skóla, Hagaskóla fyrst og þá MR.
Hann fer heim á Skinnastað á sumr-
in, þar sem foreldrarnir voru enn, en
kemst að því að sveitir „eru góðar
fyrir barn, ekki fyrir táning“. (95)
Öðru sumri eyðir hann reyndar í Ax-
arfirði en þá sem starfsmaður við
töku kvikmyndarinnar Rauða skikkj-
an, þar sem allt var á floti.
Dvöl Sigurðar í borginni byrjaði
ekki vel; hann lýsir því hvernig hann
villtist á göngu frá Austurstræti vest-
ur á Dunhaga – var kominn langleið-
ina út á Seltjarnanes. En hann áttar
sig fljótlega á borginni enda alkominn
til borga: „Frá haustinu 1962 hef ég
átt heima í borgum, ekkert bendir til
annars en ég verði þar áfram þar til
yfir lýkur.“ (21)
Í Hagaskóla tekur sögumaður að
eignast vini sem verða samferðamenn
hans gegnum lífið og þessi hrífandi
þroskasaga segir af þeim kynnum öll-
um, af fólki sem róttækum hug-
myndum sem lágu í loftinu. Þetta eru
ár mikilla breytinga og Sigurður býð-
ur lesandanum að fylgja sér eftir til
móts við nýja tónlist, að kynnast
vaknandi vitund um skáldskapinn og
galdur orðanna, við fyrstu reynsluna
af leikhúsi og við kennara eins og Jón
Guðmundsson sem í MR las nem-
endum fyrir furðulega stíla: „Með
fullri virðingu fyrir nýsúrrealistunum
í Medúsahópnum, þá sýnist mér að
þessir réttritunarstílar Jóns Guð-
mundssonar séu eitt mikilvægasta
framlag Íslendinga til súrrealismans.
Hvílíkir textar!“ (60)
Yfirsýn skáldsins og úrvinnsla úr
minningum er heillandi, nú rúmum
fjórum áratugum síðar, eins og þegar
hann lýsir því að þegar þau vinirnir
útskrifuðust sem stúdentar fengu
þau fyrir tilviljun tvær stúdents-
gjafir, Sgt. Pepper’s plötu Bítlanna,
plötu sem endist enn, og bók sem
kom út sama dag en þau fréttu ekki af
fyrr en mörgum árum síðar. Það var
Hundrað ára einsemd eftir Marques.
Höfundurinn lýsir því hvar ungmenn-
in sitja í brekkunni fyrir neðan MR
og segir að ef hann væri „að skrifa
skáldsögu myndi ég allt í einu vita
hvað við vorum að segja, jafnvel
hugsa.
En það væri lygi“. (266)
Sigurður segir frá þessum árum á
sinn persónulega, agaða en þó flæð-
andi hátt og enginn lesandi verður
svikinn af því að slást með í þá för.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sigurður Pálsson „Yfirsýn skáldsins og úrvinnsla úr minningum er
heillandi,“ segir rýnir um Táningabók skáldsins, um tán- og tján-árin.
Jafvægisleit og vönduð
þroskasaga skáldsins
Endurminningar
Táningabók bbbbm
Eftir Sigurð Pálsson.
JPV útgáfa, 2014. 286 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Það er galdur Þórarins Eld-járns að setja saman svotæran og augljósan kveð-skap að maður heldur sig
vera búinn að grípa inntakið við
fyrsta lestur. Svo þegar ég tók bók-
ina fram nokkr-
um dögum eftir
fyrsta lestur
fannst mér ég
vera að lesa öll
ljóðin í fyrsta
sinn og enn
fannst mér ég
vera að upp-
götva allt upp á
nýtt þegar ég
settist niður til
að ganga frá
umsögn um hana.
Þótt andinn í yrkingunum sé alla
jafna góðlátlegur og jákvæður þá
leynast lika línur litaðar af rökkri, af
hausti, því líkast sem Þórarinn sé
tekinn að telja sína daga (sjá:
„Áfanga“). Glíma sálar og líkama,
anda og efnis, birtist á skondinn hátt
í „Ofan og neðan“ og glíma skáldsins
við orðin í „Farteski“.
Hann fjallar líka um liðna og ný-
liðna atburði: Hrunfræðingar fá á
baukinn í „Eftir á“, ofsatrúarmenn í
„Hugsið ykkur“, framkvæmdasóðar
í „Höfðatorgi“ og rétttrúaðir í
„Ljúft“.
Bókin skiptist í fjóra hluta, Renn-
inga, Skeytlur, Barnaafmæli, sem
geymir prósaljóð og örsögur, og
Þýtt, en eins og heitið ber með sér
eru þar nokkur erlend ljóð. Hið liðna
er þar tregað, til að mynda í ljúfsárri
„Haustkveðju“ Tove Jansson: „Það
var langt að fara heim og enginn úti
við / og nú er að byrja að kólna og
dimma.“
„Laugardagskvöld“ Augusts
Strindbergs er áþekkt hvað varðar
tregann, en í því er meiri kyrrð og
hlýja. Svo birtist drukknaður leik-
fangatrompet úr ljóði Strindbergs í
skemmtilegri glettu Werners
Aspenströms, „Strindberg svarar
spurningu um fuglafræði“.
Línur litaðar af rökkri
Ljóð
Tautar og raular bbbmn
Eftir Þórarin Eldjárn.
Vaka-Helgafell, 2014. 87 bls.
ÁRNI MATTHÍASSON
BÆKUR
Morgunblaðið/Kristinn
Skáldið „Þótt andinn í yrkingunum sé alla jafna góðlátlegur og jákvæður
þá leynast líka línur litaðar af rökkri, af hausti …“ segir um bók Þórarins.
Söfn • Setur • Sýningar
Laugardagur 20. desember kl. 11: Bjúgnakrækir skemmtir
Sunnudagur 21. desember: Tveir fyrir einn af aðgangseyri
Sunnudagur 21. desember kl. 11 Gluggagægir skemmtir
Sunnudagur 21. desember kl. 14: Leiðsögn í allra síðasta sinn um Silfur Íslands
Mánudagur 22. desember kl. 11: Gáttaþefur skemmtir
Þriðjudagur 23. desember kl. 11: Ketkrókur skemmtir
Aðfangadagur kl. 11: Kertasníkir skemmtir
Jólin hans Hallgríms, ný sýning og ratleikur á Torgi
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
Silfur Íslands í Bogasal, Silfursmiður í hjáverkum í Horni
Svipmyndir eins augnabliks. Ljósmyndir Þorsteins Jósepssonar í Myndasal
Natríum sól á Veggnum • Safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands óskar landsmönnum gleðilegra jóla!
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið frá 11-17 alla daga nema mánudaga.
Listasafn Reykjanesbæjar
FERÐ – Finnur Arnar Arnarson
31. október – 21. desember
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Bátasafn Gríms Karlssonar
Hönnun - Net á þurru landi
Listasafn Erlings Jónssonar
Opið virka daga 12-17,
helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
Verið
velkomin
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
LISTASAFN ÍSLANDS
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga.
JÓN ÓSKAR - NÝ VERK 7.11. 2014 - 8.2. 2015
LISTASAFN ÍSLANDS 1884-2014
VALIN VERK ÚR SAFNEIGN 7.11. 2014 - 8.2. 2015
OPNUNARTÍMA UM JÓL OG ÁRAMÓT
OPIÐ: 23. 27. 28. 30. desember og svo 2. janúar.
LOKAÐ: 24. - 25. - 26. - 31. desember og 1. janúar.
MEÐ HÁTÍÐAR- OG NÝÁRSKVEÐJUM!
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur, tilvaldar í jólapakkann!
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
KJARNI - Sigrún Hrólfsdóttir - Sýning á videóverki á kaffistofu LÍ.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906,
Lokað í des. og jan. www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616
Lokað í des. og jan. www.listasafn.is
VARA-LITIR
Málverk eftir sjö íslenska samtímalistamenn
Verk úr safneign
Elías B. Halldórsson
Sólhattar á vetrarsólstöðum
Kynning á nýrri vörulínu
Sunnudag 21. desember frá kl. 12-14
Vík Prjónsdóttir
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
Opið á Þorláksmessu 12-17.
Lokað 24.- 26. desember.
www.hafnarborg.is, sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is