Morgunblaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2014
k k fi p k y j g p
C iarpacc o ð lh kl lme va netu-vinaigrette og ettasa ati Grafið lamb m
hindberja-vinaigrette og geitaosti Villibráðar-paté maumeð papriku
kBruchetta með t v í r e y
ðlahangikjöti, bal- samrau
og piparrótarsósu etBruch
með hráskinku, bal- sam gog
m euðu Miðjarðarhaf- s g r æ n
Krabba-salat k uf e r s
o lkryddjurtum í b r a u ð b
Bruchetta ðameð Mið jar
hafs-tapende Risa- rækja
jómspjóti með peppadew Silunga hrogn með japönsku majónesi sinnepsr
osti á bruchettu Birkireykt-ur lax priá bruchettu með alioli, grillaðri pa
og fetaosti Hörpuskeljar k sú, 3 smáar á spjóti m/kryddjurtaídýfu Fröns
r Súkulaðikaka m/rjóma og ferskum berjum Vanillufylltar vatnsdeigsbollu
ryakulaðiskeljar með jarðarberjum Kjúklingur-satay á spjóti með ídýfu Te
lamb á spjóti Risahörpuskel maríneruð á pinna Túnfiskur í sesamhjúpSími 511 8090 • www.yndisauki.is
MöndluMix og KasjúKurl er
ómissandi í ferðalagið. Útá
salatið og við grillið í sumar.
Hollt og gott frá Yndisauka.
Fæst í: Hagkaupum, Heilsuhúsunum,
Melabúðinni, Fjarðarkaup, Miðbúðinni,
Kjöthöllinni, Hreyfingu, Garðheimum,
Mosfellsbakaríi og Bakaríinu við brúna
Akureyri.
Bankastræti 4 I sími: 551 2770
www.aurum.is
Frönsku hágæða ilmvötnin frá
L’artisan Parfumeur eru tilvalin jólagjöf.
ILMURINN
FYRIR JÓLIN
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Fyrir þá sem eru að fara að taka
sinn fyrsta skötubita í dag er ágætt
ráð að fá sér svolítið vel af kart-
öflum og saltfiski, blanda því saman
við skötuna því þá dofnar bragðið
aðeins en bara aðeins,“ segir Hólm-
geir Einarsson, hjá Fiskbúð Hólm-
geirs í Mjóddinni, en fisksalar
landsins hafa mokað út skötu und-
anfarna daga.
Skötuveisla er orðin að fastri
hefð hjá fjölmörgum í aðdraganda
jólanna en upphaflega er þessi hefð
frá Vestfjörðum. Samkvæmt könn-
un MMR sem gerð var í byrjun des-
ember ætla 38% þjóðarinnar að
borða skötu í dag en í fyrra ætluðu
42,1% landsmanna að gæða sér á
skötu.
Niðurstöður frá MMR benda
til þess að yfir 93 þúsund Íslend-
ingar 18 ára og eldri ætli að borða
skötu á Þorláksmessu en skötuát
eykst með hækkandi aldri. Einnig
kemur fram að fólk á landsbyggð-
inni sé líklegra til að borða skötu en
fólk á höfuðborgarsvæðinu. Þá eru
þeir sem styðja Vinstri græna ólík-
legri til að borða skötu.
Bílskúrarnir nýttir
Fólk á öllum aldri, konur og
karlar, stoppa í búðinni hans Hólm-
geirs í Mjóddinni til að kaupa þenn-
an fisk sem flestir elska – þó lyktin
sé ekki fyrir alla.
Hólmgeir bendir á gott ráð fyr-
ir skötuveislu en það er að vera ekki
í neinum sparifötum, lyktin fari
nefnilega ekki svo auðveldlega úr.
„Lyktin á ekkert heima allsstaðar,
sumum finnst hún góð en aðrir eru
minna fyrir hana. Sjálfur var ég í
skötuveislu um helgina og þar var
skatan elduð í bílskúr. Ætli bíl-
skúrar landsins angi ekki hressilega
þessi misserin,“ segir hann og hlær.
Ekki er hægt að kæsa skötu eft-
ir nákvæmri forskrift. Kæsing er
deilumál og ekki eru allir sammála
hvernig eigi að reiða fram hinn full-
komna veislumat.
„Ég hef aldrei hlustað á þá sem
tala um mikið eða lítið kæsta skötu.
Þetta er nefnilega svolítill tilbún-
ingur. Ég geri skötuna aðeins á einn
veg og hef gert í mörg ár. Ég segi
við þann sem vill skötuna ekki mjög
sterka, því hún er yfirleitt sterk, það
sama og ég segi við nýliða – bætið
við kartöflum og smá saltfisk. Það er
sama með góðan mat og góð vín –
þetta er yfirleitt vont fyrst. Þetta er
bara þróun sem tekur tíma en þegar
það er komið þá vill maður ekkert
annað. Nú er skatan orðin hluti af
hefðinni, enda jól í hverjum bita,“
sagði Hólmgeir.
Veisla sem fer ekki
framhjá neinum
Morgunblaðið/Ómar
Sterk Hólmgeir með skötu í hendi. Hann segir að margir elski bragðið en enn fleiri þoli illa lyktina.
Skötuveislur víða um land í dag Vestfirskur siður sem
breiðst hefur um landið Ekki matur fyrir Vinstri græna
Skötuveisla
» Skata þarf að kæsast í
þrjár til fjórar vikur.
» Hún er látin í ílát og kæs-
ist af sjálfu sér en verður ónýt
ef vökvi kemst í hana.
» Helst þarf að vera smá yl-
ur þar sem skatan liggur, ann-
ars tekur kæsingin of langan
tíma.
Til að skata fái rétt bragð og
angan þarf hún að fara í gegn-
um nokkuð margbreytilegt ferli.
Eftir að skatan hefur verið dreg-
in úr sjó er hún skorin upp,
börðuð, það er að segja börðin
eru losuð frá baki, kvið og hala.
Þau eru látin liggja í kös og
kæsast.
Áður fyrr var algengast að
láta börðin í gryfju með grjóti
og torfi ofan á en nú til dags er
hún yfirleitt látin kæsast í ein-
hverju íláti. Sitt sýnist hverjum
um ílátið.
Í kösinni gerjast skötubörðin
eða ryðja sig. Þvagefni sem er í
vef skötunnar brotnar þá niður
og af því stafar lyktin góð-
kunna.
Skötuverkendur segja að ilm-
brigði þessi gefi til kynna að
skatan sé fullkæst.
Ilmurinn er
svo lokkandi
LYKTIN SKIPTIR MÁLI