Morgunblaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 48
48 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2014
Rannveig Þórisdóttir er deildarstjóri hjá Lögreglustjóranum áhöfuðborgarsvæðinu, hún er félagsfræðingur að mennt oger sérhæfð í afbrotafræðum en hún hefur unnið hjá lögregl-
unni frá 1998. Rannveig stýrir deild sem sér um upplýsingamiðlun
fyrir lögregluna, alla tölfræði og tölfræðigreiningu og sömuleiðis
um samfélagsmiðlana og samskipti við fjölmiðla. Lögreglan hefur
haldið úti vinsælli Facebook-síðu en þær eru fleiri. „Við erum einnig
með Instagram-síðu sem hefur fengið mikla athygli og einnig erum
við með óskilamunasíðu á Pinterest. Þar eru settar myndir af hlut-
um sem lögreglan hefur fundið eða henni hefur borist. Það er því
mjög gott að byrja að leita á þessari síðu ef fólk hefur týnt
einhverju.“
Sambýlismaður Rannveigar er Benedikt Friðbjörnsson en hann
rekur fyrirtækið Viðskipa- og tölvulausnir. Börn þeirra eru Hrafn-
hildur 14 ára, Bjarni Þór 5 ára og Eyrún Björg 3 ára. Það er því í
nógu að snúnast fyrir Rannveigu og Benedikt með tvö ung börn á
heimilinu. „Við gefum þó okkur tíma til að stunda íþróttir, við
Bjarni Þór og Eyrún erum saman í taekwondo, og ég fer í badmin-
ton og hleyp. Ég hef tvisvar hlaupið hálfmaraþon og það er stefnan
að klára heilt maraþon áður en maður verður fimmtugur.“
Rannveig segist reyna að halda alltaf upp á afmælið þó svo að
flestir séu frekar uppteknir á þessum tíma árs. „Ég er oft með opið
hús á afmælisdaginn enda gott að nota tækifærið til að hitta vini og
vandamenn í miðju jólastressinu.“
Rannveig Þórisdóttir er 43 ára í dag
Ljósmynd/Ása Birna Viðarsdóttir
Fjölskyldan Á fermingardegi Hrafnhildar í apríl síðastliðnum.
Stýrir öflugri deild
hjá lögreglunni
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Selfossi Birta Sif Gissurardóttir
fæddist 23. ágúst 2014 kl. 13.06. Hún
vó 3.740 g og var 51,5 cm löng. For-
eldrar hennar eru Harpa Íshólm Ólafs-
dóttir og Gissur Kolbeinsson.
Nýir borgarar
Selfossi Freydís Aría Ágústsdóttir
Backman fæddist 6. desember 2013.
Hún vó 3.370 g og var 52 cm löng. For-
eldrar hennar eru Guðbjörg Eva Guð-
bjartsdóttir og Ágúst Friðmar
Backman.
J
ón fæddist við Kaplaskjóls-
veg í Reykjavík á Þorláks-
messu 1954 en ólst upp við
Langholtsveg og í Goð-
heimum: „Maður var svo
alltaf í sveit á sumrin á meðan aðrir
strákar voru að sparka bolta í bæn-
um. Þetta skýrir fótboltagetuna. Ég
var á Grund á Fellsströnd í fimm
sumur, í Húsavík eystri í tvö sumur
og í Knarrarhöfn í Hvammsveit eitt
sumar. Síðar stundaði ég sjó-
mennsku á skólaárunum í tvö sum-
ur, frá Hafnarfirði og Súgandafirði.“
Jón gekk í Vogaskóla og lauk síð-
ar sveinsprófi í prentiðn frá Iðnskól-
anum í Reykjavík. Hann er viður-
kenndur bókari frá HR árið 2006.
Jón starfaði við prentiðn í 11 ár á
tveimur stöðum en hjá fimm fyrir-
tækjum. Hann var framkvæmda-
stjóri Bridgesambands Íslands í eitt
ár en hefur síðan sinnt skrifstofu-
störfum hjá Flugleiðum og Ice-
landair Cargo í þrjá áratugi: „Hjá
þessum fyrirtækjum hef ég unnið að
spennandi verkefnum með góðu
fólki. Líklega væri hægt að skrifa
heilu bækurnar um þá gífurlegu
framþróun sem þar hefur átt sér
stað á mínum starfstíma.“
Jón var formaður Bridgefélags
Ásanna í eitt ár, sat í Stjórn Bridge-
félags Reykjavíkur í fimm ár og í
stjórn Bridgesambands Íslands í sex
ár. Hann var yfirumsjónarmaður
getraunadeildar BSÍ í 25 ár, sat í
stjórn og var formaður Golfklúbbs
Flugleiða í fimm ár og hefur verið
formaður JB Run frá upphafi.
Jón var þjálfari yngra landsliðs
BSÍ árin 1982 og 1989, er heiðurs-
félagi í Bridgefélagi Reykjavíkur, er
með 15,6 í forgjöf í golfi og vann í ár
BB Invitational. Hann varð Íslands-
meistari í Mind Games 2011.
Úr skákinni yfir í bridge
Jón er meira en liðtækur í skák:
„Ég tefldi mikið og lá yfir skák á ár-
unum 1967-72. Ég endaði ferilinn í
meistaraflokki með tæp 1.900 stig en
hætti síðan að tefla eftir heimsmeist-
araeinvígið í Reykjavík og sneri mér
þá að bridge.“
Jón er án efa fræknasti bridge-
Jón Baldursson, bridgespilari og verkefnastjóri – 60 ára
Kampakátir heimsmeistarar í bridge 1991 Frá vinstri: Björn Eysteinsson fyrirliði, Þorlákur J́ónsson, Jón Bald-
ursson, Örn Arnþórsson, Guðlaugur R. Jóhannsson, Aðalsteinn Jörgensen og Guðmundur Páll Arnarson.
Heimsmeistari í bridge
Þjóðleg hjón Jón Baldursson og
k.h., Elín Guðný Bjarnadóttir.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
sem gleður
Rennibekkir, standborvélar, bandsagir,
hjólsagir, bandslípivélar, beygjuvélar,
röravalsar, legupressur, fjölklippur,
sandblásturstæki og margt fleira.
Sýningarvélar á staðnum
og rekstrarvörur að auki
- fyrir fagfólk í léttum iðnaði
og lítil verkstæði
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is