Morgunblaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2014
Bestu og verstu jólalögin
Fullbrjáluð stemning
„Þegar ég heyri „Mary’s
boy child Jesus Christ“
með Boney M man ég alltaf
eftir einóða dansaranum í
þessum hressa söngflokki í
Á tali hjá Hemma Gunn.
Fullbrjáluð jólastemmn-
ing,“ segir Gerður Kristný
um versta jólalagið.
Gott „Mig dreym
ir um að eyða jó
lunum eins og fó
lkið
í „Last Christm
as“ myndbandin
u. Í þykkri peys
u í
fjallaskála - alg
jörlega tvístrað
ur af rauðvíni o
g pillu-
áti,“ segir Halld
ór Halldórsson/
Dóri DNA um sí
gilt
jólalag dúettsin
s Wham sem hé
r sést í jólastuði
.
Það besta „Uppá-
haldsjólalagið
mitt sem ég upp-
götvaði fyrir
nokkrum árum
hvað er ógeðs-
lega gott, er „Þú
komst með jólin
til mín“ í flutn-
ingi Morðingj-
anna með Þórunni Antoníu. Þetta
er besta jólalag í heimi, í þessum
flutningi og kemur með jólin til
mín. Ég er komin í jólaskap út af
þessu lagi. Mér finnst það ekki
skemmtilegt með Bó og Ruth Reg-
inalds.“
Það versta „Eru það ekki bara öll
hin? Ég er ekki mikil jólamann-
eskja, mér finnst allt sem tengist
svona of hátíðlegum hlutum vera
mjög vandræðalegt. Ef það er of
hátíðlegt á ég voða bágt. Ég er ekki
mikið að breyta húsinu í eitthvert
ævintýradót, ég vil frekar horfa á
Die Hard eða hlusta á Morðingj-
ana.“
Ragnheiður Eiríksdóttir
tónlistarkona
Það besta „„Jólakvöld“ eftir þá Guðmund Óskar og
Bjarna Frímann við ljóð Davíðs Stefánssonar sem Sig-
ríður Thorlacius söng inn á Jólakveðju í fyrra. Himneskt
lag við dásemdar ljóð.“
Það versta „Þegar ég heyri „Mary’s boy child Jesus
Christ“ með Boney M man ég alltaf eftir einóða dans-
aranum í þessum hressa söngflokki í Á tali hjá Hemma
Gunn. Fullbrjáluð jólastemning.“
Gerður Kristný rithöfundur
Þau bestu „Ég
verð að við-
urkenna að ég
er orðinn að-
eins þreyttur á
þeim elskulegu
systkinum Ellý
& Vilhjálmi,
sérstaklega
eftir að Sig-
urður Guðmundsson og Memfis-
mafían gerðu Nú stendur mikið
til plötuna. Þá komu jólin aftur,
úr þessum eldgömlu textum og
útsetningum, gamaldags Nor-
dmende úvarpshljómi í rán-
dýran búning eftir Braga Valdi-
mar, það er svo mikil hátíðar-
stemning og þokki yfir þessari
plötu að ég spila hana stundum í
ágúst. Jólalög eiga að vera í
risastórum útsetningum og Sig-
urður Guðmundsson á að syngja
þau öll.“
Þau verstu „Hér verður að
hugsa í áratugum: Plastpoppið
og allt jóladótið frá áttunda og
níunda áratug síðustu aldar;
„Jólahjól“, „Nei, nei, ekki um
jólin“, „Aðfangadagskvöld“ með
Þú og ég, „Jól alla daga“ og
Helgi Björns situr auðvitað efst-
ur á ruslahaugnum með: „Ef ég
nenni“. Eða hét það Ef mér leið-
ist? Ef ég drepst? Þetta er svo
sjúskað og mikil reykingalykt af
þessu, „Last Christmas“ með
Wham hljómar einsog beint úr
Jólaóratíu Bachs miðað við þetta
karókí frá Benidorm.“
Þorsteinn J. Vilhjálmsson
fjölmiðlamaður
Það besta
„Grýlupopp“
með Alla Rúts, en
þar hefur hinn
ástsæli listamað-
ur Albert Sig-
urður Rútsson
sett lagið „Pop
Corn“ eftir
hljómsveitina
Hot Butter, í alíslenskan jólabún-
ing, með texta um Grýlu, Leppa-
lúða og poppkornsát þeirra. Sér-
staka athygli vekur þróttmikill
fagottleikur, þar sem fagottið hefur
brugðið sér í hlutverk Moog hljóð-
gervilsins sem leikur lykilhlutverk í
upphaflegri útgáfu lagsins. Næst-
mesta uppáhaldsjólalagið mitt er
„Klukknahljóm“, í instrúmental-
útgáfu Þóris Baldurssonar af plöt-
unni Gleðileg jól. Þar er alveg sturl-
aður svuntuþeysingur og jólagrúv í
gangi.“
Það versta „Mér finnst ekki alveg
sanngjarnt að tala um versta jóla-
lagið, því til þess að jólalag sé gott
þá þarf það helst líka að vera dálít-
ið vont. Það er vottur af illsku í öll-
um jólalögum. En það sem mér
finnst hinsvegar verst í fari jóla-
laga er þegar þau neita að hætta,
með endalaus erindi og endurtekn-
ingar á viðkvæðum. Þau eru all-
nokkur sem koma til greina í þeim
flokki en ég ætla að velja „Litla
trommuleikarann“ (Little Drum-
mer Boy) því ekki aðeins er það
langt og leiðinlegt, heldur er það
bara eitthvað svo tilgerðarlegt
líka.“
Úlfur Eldjárn
tónskáld
Það besta „The Christmas Song“. Það er bara hlýrra
en allt sem hlýtt verður. Það gerir mig alltaf mjúka
og meyra eins og jólasteik á fallega skreyttu veislu-
borði.“
Það versta „Ef ég nenni“. Mér finnst mjög erfitt að
segja það því Helgi Björns er náttúrulega alveg með-
etta en þarna er bara á ferðinni lag sem á ekkert skylt
við jólaandann. Þessi náungi í þessu lagi þarf bara að
rífa sig upp á rassgatinu og fara og kaupa fallega gjöf
fyrir elskuna sína, ekkert ,,ef ég nenni“ kjaftæði.“
Sigríður Eir Zophoníasardóttir, tónlistar- og útvarpskona
Það besta „Ætli ég verði bara ekki að segja „Bráðum
koma blessuð jólin“. Það er klassískt. „Börnin fara að
hlakka til“, það er jú það sem þetta gengur allt saman
út á.“
Það versta „Ég get ekki nefnt eitt lag sem það versta -
eða jú, ég get sagt það: Versta jólalagið er jólalagið
sem er byrjað að spila í byrjun nóvember. Það er bara
of snemmt og þá þolir maður það ekki. Það er sama
hvaða jólalag það er.“
Helga Braga Jónsdóttir, leikkona og flugfreyja
Það besta „Þar
er engin sam-
keppni. King
Diamond – „No
Presents For
Christmas“.
Hressandi mix af
klassískum jóla-
lögum og speed
metal og sannar
að öll jólalög ætti að syngja í fals-
ettu.“
Það versta „Gæti nefnt „nenna“ lag-
ið með Helga Björns, sem er svo
þreytandi og hallærislegt að það
sýgur úr manni jólaandann. En ég
verð að segja að versta jólalag allra
tíma sé „Ég sá mömmu kyssa jóla-
svein“. Höfundur textans ætti að
skammast sín. Jólin eru tími
barnanna og textinn við þetta lag
hefur valdið þúsundum barna mar-
tröðum. Skelfilegt að þurfa að setja
sig í spor annars barns sem upplifir
framhjáhald foreldris.“
Ragnar Bragason leikstjóri
Þau bestu „Þú komst með jólin til mín“. Slade – „Merry
Christmas“. Wham – „Last Christmas“. Mig dreymir um
að eyða jólunum eins og fólkið í „Last Christmas“ mynd-
bandinu. Í þykkri peysu í fjallaskála – algjörlega tvístr-
aður af rauðvíni og pilluáti. Svo langar mig soldið að
eyða jólunum í Vestmannaeyjum einhvern tíma – en það
er önnur saga.“
Þau verstu „Ný jólalög eru öll þannig að mann langar
helst að gefa höfundinum gítarkraga. Eitt af hverjum
1000 nær að breika. Ég hef ekki eirð í mér til þess að
bæta einhverju lagi á jólaplaylistann – hvað þá horfa framhjá því hvað
textinn er alltaf glataður og stemningin trist.“
Halldór Halldórsson, uppistandari og textasmiður
Jólahjól Stef-
án Hilmarsson
og Snigla-
bandið í
myndbandi
við lagið sem
er eitt það
versta, að
mati Þor-
steins J.
Himneskt „Jólakvöld“ eftir
Guðmund Óskar og Bjarna
Frímann við ljóð Davíðs Stef-
ánssonar sem Sigríður Thorla-
cius söng inn á plötuna Jóla-
kveðju í fyrra er himneskt, að
mati Gerðar Kristnýjar.
Jólalög eru ólík að gæðum, sum ómissandi og önn-
ur svo slæm að þau geta eyðilagt jólaskapið. Sex
þjóðkunnir einstaklingar voru fengnir til að nefna
bestu og verstu jólalögin, að þeirra mati.
www.ullarkistan.is
Jólagjöf sem vermir
Laugavegi 25, 101 Reykjavík. Sími 552-7499
Hafnarstræti 99-101, 600 Akureyri. Sími 461-3006
Kids Basic
treyja
4190,- stk
.
Kids Basic
buxur
4190,- stk
.
Ridder tre
yja
4490,- stk
.
Ridder bu
xur
4490,- stk
.
Dökkblá treyja7490,- stk.
Dökkbláar buxur7490,- stk.
Treyja
með b
lúndu
7490
,- stk.
Buxur
með b
lúndu
7490
,- stk.
Hlýr og notalegur
ullarfatnaður
úr 100%Merino ull
á góðu verði