Morgunblaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 42
42 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2014 ✝ Svala Sig-urdsson Lens- vik, áður Gúst- afsdóttir, fæddist í Reykjavík 23. des- ember 1939. Hún lést 26. júlí 2014 á Malmö Hospice- líknardeildinni í Svíþjóð. Hún var dóttir hjónanna Helgu Sigrúnar Zoëga, f. 1917, d, 1989, og Gústafs A. Valdimarssonar, f. 1912, d. 1989. Systkini Svölu eru Reynir, f. 1938, og Helga, f. 1959, og ein systir samfeðra, Sigurbjört, f. 1935. Svala ólst upp á Laugavegi 65 í Reykjavík. Hún giftist árið 1957 Geir Hjartarsyni, f. 1936, þau skildu. Þau eignuðust tvo syni: 1) Hjört Geirsson, f. 8. maí 1957, og 2) Gústaf Valdimar Geirsson, nú Sigurdsson, f. 3.6. 1960, kvænt- ur Lisu Luchi, búsett í Svíþjóð. Svala eignaðist dóttur með Hilmari Þorbjörnssyni: 3) Sig- rúnu Huld Hilmarsdóttur Sig- urdsson, f. 6.12. 1962, gift Ni- kola Asancaic, búsett í Svíþjóð. Börn þeirra: Lukas og Freja, f. 18.10. 1993. Svala giftist Hilmari Sigurðs- syni árið 1967. Þau skildu. Eftirlifandi eiginmaður Svölu er Jan-Erik Lenvik. f. 1.12. 1942. Þau giftust í febrúar 1990. Svala flutti með fjölskyldunni til Svíþjóðar árið 1968 og þar festi hún rætur þótt taugin til Ís- lands, til ættingja og vina, væri ávallt sterk. Rak hún um árabil verslunina ISLANDIA í Malmö sem sérhæfði sig í íslenskum vörum, aðallega úr ull sem hún flutti inn frá Íslandi. Fyrir nokkrum árum stofnaði hún og rak ferðaskrifstofuna Sagaöns resor sem aðstoðaði fólk við að skipuleggja ferðir til Íslands. Hún var virk í Lionsfélaginu í Malmö og forseti þess um árabil. Börn hennar og barnabörn áttu hug hennar allan. Útför Svölu fór fram 15. ágúst 2014 í Limhamn-kirkju í Malmö. Á Þorláksmessu hringi ég ekki til Svíþjóðar til að syngja afmælissönginn fyrir hana Svölu. Ef ég hringi þangað til að heyra í frænku minni verður örugglega grátið, kannski helgið, en ekki sungið. Sagt er að tíminn lækni öll sár en það er ekki rétt. Tíminn getur deyft en aðeins um stundarsakir, því þegar þú átt síst von á þá kem- ur sorgin af fullum þunga. Það þarf ekki mikið, ljúf tónlist, blóm, mynd, viðburður og tárin vilja fram, en það er vegna minninganna sem eru góðar og margar. Þegar tíminn er nægur, þá gætum við ekki að okkur, því okkur finnst við hafa allan tím- ann í veröldinni. Svo þegar við sitjum hljóð eftir, þá hugsum við af hverju nýttum við ekki tímann betur? Ég, eins og margir, sakna hennar. En eins og staðan var orðin, þá var þetta kærkomin hvíld fyrir hana. En það deyfir ekki sáran söknuðinn. Það er erfitt að kveðja, þótt komið sé að leiðarlokum. Eins og gullhörpuljóð, eins og geislandi blær, eins og fiðrildi og blóm, eins og fjallalind tær, eins og jólaljós blítt, eins og jörðin sem grær, lifir sál þín í mér, ó þú systir mín kær. Þú varst mildi og ást og þitt móðerni bar við sinn líknsama barm dagsins lifandi svar: allt sem grét, allt sem hló, átti griðastað þar – jafnvel nálægð þín ein sérstök náðargjöf var. Hversu þreytt sem þú varst, hvað sem þrautin var sár. þá var hugur þinn samt eins og himinninn blár: eins og birta og dögg voru bros þín og tár. Og nú ljómar þín sól bak við lokaðar brár. (Jóhannes úr Kötlum) Ég segi oft innra með mér: ég sakna þín. Og stundum finnst mér eins og ég heyri til- baka: sakna þín líka. Minning hennar lifir með okkur. Og segi ég því: „til hamingju með dag- inn“ og kveiki á kerti. Helga. Hæ amma. Það eru viss at- riði sem ég þarf að segja þér. Einhver annar fær að lesa þetta fyrir þig þar sem ég sjálf myndi ekki ná að klára að segja þér þetta allt, því það er of erf- itt fyrir mig að koma og segja þér þetta sjálf. Ég vil byrja á að þakka þér fyrir vissa hluti. Ég vil þakka þér fyrir allar gjafirnar sem þú hefur gefið mér í gegnum árin. Ég vil þakka þér fyrir ferðina til Íslands, það var upplifun með þér sem ég gleymi aldrei. Ég vil þakka þér fyrir að hafa alltaf verið mitt traust og skjól, þegar ég var leið eða reið, og sérstaklega þegar ég var ekki sátt við mömmu og pabba. Ég vil þakka þér fyrir að þú last Bangsímonbókina fyrir mig og Lukas. Ég þakka þér fyrir alla bangsímontónleikana sem þú fórst með okkur á, það voru stundir sem ég elskaði svo mik- ið. Ég vil þakka þér fyrir að hafa verið heimsins besta amma. Það eru líka viss atriði sem ég þarf að biðjast afsökunar á. Ég vil biðjast afsökunar á að nú þegar ég er orðin eldri sé ég að ég hef ekki umgengist þig eins mikið og ég hefði átt að gera. Ég vil biðjast afsökunar á að ég hef ekki sýnt þér hve mikið ég elska þig fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Ég biðst líka afsökunar á að ég kem ekki núna og heilsa upp á þig, það er of erfitt fyrir mig að höndla, að sjá þér líða svona illa eins og þú hefur það núna. Ég þakka allavega fyrir að ég fæ að segja þetta hér við þig. Ég vona að þú getir fyrirgefið mér. Ég á margar minningar um þig, eins og þegar ég var alltaf að þurrka rykið af öllum vín- flöskunum ykkar afa, mér fannst það ekki gaman en gerði það af því mig langaði að um- gangast ykkur. Einnig þegar ég hjálpaði þér alltaf að punta með jólagreinum um jólin, það er hefð sem ég mun halda áfram að gera með afa, það er eitt sem ég get lofað þér. Það er svo margt að segja. En í lokin vil ég bara segja að ég elska þig af öllu mínu hjarta. Þín elskandi, Freja-Maria. Svala Sigurdsson Lensvik Vinátta verður aldrei sett und- ir mæliker hins efniskennda, en víst er um það að vináttan milli heimilanna í Vatnsfirði og Mið- húsum var djúp og sönn. Það var hreinskilni og hjálpfýsi sem ein- kenndi þessa vináttu milli bæj- anna umfram annað. Baldur Vilhelms- son og Ólafía Salvarsdóttir ✝ Baldur Vil-helmsson lést í Reykjavík 26. nóvember 2014. Útför hans fór fram 3. des- ember 2014. Ólafía Sal- varsdóttir fædd- ist 12. ágúst 1931. Hún lést 21. júlí 2014. Út- för Ólafíu fór fram 30. júlí 2014. Þau hjónin í Vatnsfirði treystu á foreldra mína og það var gagn- kvæmt. Í Vatnsfirði var gest- kvæmt og gestrisni mikil, þar lagði Djúpbáturinn að bryggju og oft þurftu bændur að bíða skipsins, þá var sjálfsagt að setj- ast að kaffiborði í Vatnsfirði með- an beðið var. Eftir að þau prests- hjónin drógu saman búskap, þótti þeim sjálfsagt að bændur í ná- grenninu nytjuðu hið grasgefna tún. Oftar en ekki var kallað á okkur heyskaparfólk inn í hús til kaffidrykkju og einnig minnist ég þess að börnin voru send með kaffikönnuna upp á Hóla, einkum ef móðir mín var við heyskapinn. Þau hjón voru ólík, má segja að þau hafi verið eins og fjallið og vindurinn, en samhent voru þau ef einhvers staðar bjátaði á og réttu oft hönd, þeim er minna máttu sín. Bæði höfðu þau yndi af lestri og voru fróð um margt. Ég læt öðrum eftir að tína fram stað- reyndir um trúnaðarstörf þeirra hjóna, en víst er um það að heil og notadrjúg voru þau samfélag- inu. Hin sanna kímni og dillandi hlátur frúarinnar er mér ekki síð- ur minnisstætt en hnyttnar at- hugasemdir klerksins, þó svo að þær hafi víðar heyrst. Þau hjón höfðu bæði mikinn áhuga á að fylgjast með hvernig ungu fólki frá Djúpi farnaðist og ekkert gladdi Baldur meira en ef það gekk menntaveginn, Lóa lagði víst fleira til grundvallar. Hið gamla samfélag við Djúp er óðum að líða undir lok, en við sem upplifðum þessi ár, þegar búið var á nánast hverri jörð, eig- um fjársjóð minninga sem gott er að ylja sér við. Við lestur dag- bóka föður míns sá ég í nýju ljósi, hve samheldnin og samvinnan var ríkur þáttur í búskapnum á þessum jörðum. Mikil og góð samskipti voru við alla nágranna, en ekki hvað síst Vatnsfjarðar- fólkið og minnist ég þess að systkinin dvöldu hjá foreldrum mínum er móðir þeirra veiktist og eins er Stefán fæddist 1966. Síðasta haustið sem slátrað var á Hjalltanganum í Vatnsfirði vann systir mín þar og Lóa gætti barns fyrir hana. Ég held að mamma hafi ekki oft verið jafn ánægð og þegar hún stóð við hlið dóttursonar síns við altarið í Vatnsfjarðarkirkju er hann giftist dóttur Lóu og Bald- urs. Þær voru vel sáttar við það vinkonurnar að önnur var amma en hin langamma barna þeirra Ragnheiðar og Kristjáns. Kæru systkini og gömlu grannar. Það er skammt stórra högga á milli. Minning um mæt hjón lifir. Þóra Hansdóttir frá Miðhúsum. Elsku amma mín er nú búin að kveðja þennan heim. Hún er síð- asta amma mín sem ég kveð en ég hef átt þrjár Inga Hrefna Lárusdóttir ✝ Inga HrefnaLárusdóttir fæddist 22. júní 1929. Hún lést 25. nóvember 2014. Út- för Ingu fór fram 6. desember 2014. ömmur í gegnum tíðina. Ég hef verið mjög lánsöm með ömmur mínar – all- ar hafa verið mér kærleiksríkar og góðar og hef ég alltaf getað leitað til þeirra. Þegar kemur að því að kveðja per- sónu sem er búin að vera svona stór partur í lífi manns fljúga upp sterkustu minningarnar. Ég man þegar ég sá hana Ingu ömmu fyrsta skiptið þar sem ég kem inn í fjölskylduna hennar um sex ára aldur og tók hún mér strax eins og alvöruömm- ustelpu og fékk ég strax að kalla hana „ömmu mína“. Ég fann mig ávallt velkomna og ekkert fannst mér betra en að heim- sækja ömmu og fá grjónagraut eða eitthvað nýbakað hjá henni en í uppáhaldi hjá mér var möndlukakan hennar. Ávallt hafði hún amma eitt- hvað fyrir stafni og þá yfirleitt einhverja handavinnu eða ann- ars konar föndur. Þótt okkur Ingu ömmu sem ég er nú að kveðja hafi ekki ávallt samið og við ekki alltaf verið sammála í öllu reyndist hún mér sérstaklega vel og þótt allar þrjár ömmur mínar hafi reynst mér vel finnst mér hún hafa kennt mér allra mest eins og að prjóna, sauma, sauma í kross og að hekla – er ég sér- staklega þakklát fyrir allt það sem hún hefur kennt mér og gefið mér gegnum tíðina. Okkar samskipti voru kannski ekki alltaf dans á rósum en samt sem áður á ég henni fullt að þakka, að hafa gert svo margt fyrir mig og viljað gera fyrir mig, einnig fyrir heilan hafsjó af góðum minningum. Elsku amma mín, nú kveð ég þig – hvíl í friði. Margrét Kristín Guðmundsdóttir. Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, HELGI ÓLAFUR ÞÓRARINSSON læknir, varð bráðkvaddur á heimili sínu í Kongsvinger fimmtudaginn 18. desember. Útför hans fer fram í Vinger-kirkju Kongsvinger þriðjudaginn 30. desember kl. 13.00. Minningarathöfn um hann á Íslandi verður auglýst síðar. . Fyrir hönd fjölskyldunnar, Pétur Haukur Helgason, Magdalena L. Gestsdóttir, Helena Helgadóttir, Þorlákur Ingjaldsson, Helga Björk Helgadóttir, Martin Hammer, Gunnar Þór Helgason, Jenny Marie Ellingsæter. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KARL GUNNAR MARTEINSSON, Strembugötu 25, Vestmannaeyjum, sem lést mánudaginn 15. desember, verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 27. desember kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. . Svandís Unnur Sigurðardóttir, Anna Sigrid Karlsdóttir, Guðjón Þorkell Pálsson, Sigurður Friðrik Karlsson, Sólrún Helgadóttir, Rúnar Þór Karlsson, Karen Haraldsdóttir og afabörnin. Elskulegur bróðir okkar, RAGNAR BJÖRNSSON, lést 27. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. . Unnur S. Björnsdóttir, Svanhildur Björnsdóttir. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA J. MATTHÍASDÓTTIR, Sléttuvegi 13, Reykjavík, er látin. . Kristín M. Bardawil Gabriel George Bardawil Halldór K. Valdimarsson Elísabet Hákonardóttir Elín S. Valdimarsdóttir Stefán Eiríksson Matthías Valdimarsson Anna Dóra Steinþórsdóttir Guðmundur B. Valdimarsson Guðrún H. Arnljótsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Áskær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLAFÍA JÓNASDÓTTIR, Vallargötu 27, Þingeyri, lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði laugardaginn 20. desember. Útförin fer fram frá Þingeyrarkirkju sunnu- daginn 4. janúar kl. 14.00. Sigríður Gunnarsdóttir, Jóhanna Þ. Gunnarsdóttir, Þorsteinn Eiríksson, Helgi Magnús Gunnarsson, Anna Guðrún Viðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SVANHVÍT HJARTARDÓTTIR, Svana, frá Geithálsi í Vestmannaeyjum, síðast til heimilis að Boðahlein 10, Garðabæ, lést á Landspítalanum Hringbraut fimmtudaginn 18. desember. Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 2. janúar kl. 13.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Hjörtur Bollason, Eyþór Bollason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.