Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Blaðsíða 30

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Blaðsíða 30
hún búin að margreyna, hafa ekki snefil af mannþekkingu. Hún þarf ekki annað en að opna munninn til að vera álitin saklaus. Það er ekki einu sinni hlustað almennilega á hana, heldur gripið fram í fyrir henni og sagt vingjarnlega ,,ja héma“, síðan er hún send heim. Það er engu líkara en lögin gildi ekki fyrir hana. Hún hefur reynt að koma með skriflegar skýrslur og hún varð fyrri til að upplýsa margan glæpinn, þar sem hún gat bent samstundis á hinn seka, sjálfa sig. Á einstökum atriðum, sem eiga að styðja yfirlýsingar hennar, er enginn hörgull: jafnskjótt og hún gerir sér grein fyrir að hún hefur gert það, öðlast hún stálminni. En alltaf skal öðrum heppnast að flækja sér í málið og hrifsa til sín sökina. Hún getur ekki með nokkru móti lesið um þessi skelfilegu réttarhöld þar sem öðrum er refsað í hennar stað með betrunarvist eða fangelsi. Hún blygðast sín fyrir ástand réttarkerfisins sem vill ekkert af henni vita þó hún sé ævinlega reiðubúin að taka út refsingu fyrir misgjörðir sínar. Allir þeir peningar sem er sólundað í rannsóknir, þvílrkt umstang, og þessi endalausu málaferli! Hvað em þeir að hugsa þessir afglapar sem að lokum játa, hvers konar bilun er það eiginlega sem fær þá til að gangast við einhverju sem þeir hafa alls ekki getað gert? Stundum, þegar þess háttar atburðir hafa valdið henni slíkri örvinglun að hún veit ekki lengur sitt rjúkandi ráð, spyr hún sjálfa sig hvort hugsanlegt sé að einn og sami glæpurinn hafi verið framinn tvisvar sinnum. Getur verið að hún sé eina manneskjan með réttu ráði en allir aðrir afglapar? Það veit guð að þetta er ekki tóm ímyndun í henni, hvemig á manneskja, sem getur gert annað eins, í ofanálag að ímynda sér eitthvað. En alveg er það furðulegt hvað fólk þekkir sjálft sig illa. Hin seka lætur ekki bugast. Hún heldur sér vel, hún safnar kröftum fyrir þann dag sem réttlætið nær fram að ganga. Glæpir koma og glæpir fara en þegar að því kemur að hún fær uppreisn æru, ætlar hún að bera höfuðið hátt og taka þakklát við þeirri refsingu sem henni ber. Hinn blindi Hinn blindi er ekki fæddur blindur, en með svolítilli fyrirhöfn er hann orðinn það. Hann á myndavél sem hann tekur með hvert sem hann fer og hann nýtur þess að hafa augun lokuð. Það er eins og hann gangi í 28 TMM 1993:4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.