Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Page 68

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Page 68
— Sé dagur númer eitt, unir þú honum betur. Þú færð ekki að koma með upp á þessi býti, þótt þú stígir svona í vænginn við mig. Hringdu svo bara í Hlaðvarpann hóran þín! segir Ugla og flýgur út að sækja sínar. Líður nú og bíður, daga og nætur við það sama, þótt hikið í svari stúlkunnar stækki með kveldi hverju. Ein situr stúlka og horfir í gatið átthymda, og hin fjarlæga mynd verður bjartari og skýrari og endist langt fram eftir nóttu. Upplýstur salurinn og fallega fólkið á björtu klæðunum sem borðar ljúfar krásir við fagurt borð og ríkulega búið, og rennir þeim niður með hákúltúrvíni fagurlega merktu og rándýru. Hikið stækkar og efinn vex uns. Kvöld eitt þegar klukkan rekur sukkarasveit Uglunnar sem oftar um hásal turnherbergisins, er hin fagurfláa stúlka því við öllu búin. Hún hefur haft mök við öll ský í nándinni sér til lítils gagns. Það er skammgóður vermir að hafa ský milli fóta. Blökumar bruna á mótorhjólum inn, með skýja- tætlur hangandi lufsulega utan á sér. Uglan fer fyrst gegnum hleðsluna, með risastóran hjálm á höfði. Þetta er tækifærið sem stúlkan bíður eftir, komin í kóngulóametsokkabuxur undir heiðarlega síðan og gagnsæjan blómakjólinn. Hún vippar sér aftan á leðurhjól sinnar eigin ektablöku, hann klappar henni létt á lend, og þau smjúga steininn inn í veislubúna nóttina. Allt stendur til boða á náttvissri hátíðinni. Rækjur, kjúklingar, krækl- ingar og eiturlyf. Enda verða ölvaðir stjómmálamenn sér varanlega til skammar, og hlegið er að þeim í innlöndum fjær, svo bergmálar um sali. Fúndamentalistar ganga um með greddulegasta glampann í augunum, gangsýrðir af gulu dufti, og enginn vill sjá þá. Þegar Uglan, sem ekki sér vel fyrir hjálminum sínum, lítur í áttina til svakajakablökunnar, vinar stúlkunnar, felur hún sig að handleggsbaki hans, sem strá bak við klett. Út rennur lágnættið og miðnættið og hánættið svo gengið snýr aftur, Uglan ofurglöð með skakkan hjálm og ýmislegt fleira fer fyrir söng- flokknum, og syngur ,,Förumannaflokkar“ svo bergmálar um húsasund- in kringum planið. Vatnsniður heyrist frá klósettinu og götulýsingin afarslæm. Ekki hafa þau fyrr smogið vegginn en stúlkan lætur sig falla af bifhjólsbaki í klósótta sæng sína, og sefur með det samme, hafandi glefsað í eplabúðinginn sinn, ánægð með nýja tilhugalífið. — Betra er að hafa bifhjól en bláský milli fóta, og fá að njóta, andvarpar 66 TMM 1993:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.