Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Page 78

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1993, Page 78
um (á það ekki síst við um ýmsar hræringar sem kenndar eru við póststrúktúralisma, en hugtakið „textatengsl" er einmitt sprottið upp úr honum). Jafnframt hefur þýðinga- fræði mjög sótt í sig veðrið sem lykilgrein samanburðarbókmennta.3 Vart mun ofsagt að ein meginástæða þeirrar kreppu sem yfir greinina gekk hafi falist í þeim ógöngum sem áhrifarýni rataði í á öld frumleika og tortryggni. Sú hugsun hafði sótt í sig veðrið að áhrif minnki þann sem fyrir þeim verður, nema haga megi samanburðinum þannig að eftirkomandinn njóti mjög góðs af stærð „föðurins“ eða standi á einhvem hátt á öxlum hans. Ljóst er að umfjallendur, ekki síst höfundarnir sjálfir, geta mótað viðtöku verka með áhrifatali — þeir setja verkin í ákveðið samhengi fyrir aðra með því að nefna höf- unda sem hafi mótað þá að einhveiju leyti. En er líklegt að treysta megi orðum höfund- ar um raunverulega áhrifavalda þegar frumleiki hans er í veði? Samhliða þessu verður ljóst að sjálfsvit- und um sköpun og glímu við eldri verk (við hefðina) vex með nútímabókmenntum og er iðulega mjög innbyggð í skáldskapinn sjálfan. Oft er óljóst hvaða merkingu skuli leggja í „áhrif ‘ ef þau byggjast á togstreitu fremur en samsemd. Það er tímanna tákn að tilþrifamestu hugmyndir um „áhrif* sem fram hafa komið hin síðari ár skuli vera kenningar bandaríska bókmenntafræðings- ins Harolds Bloom um óttann við áhrif. Bloom segir í upphafi bókar sinnar The Anxiety of Influence að sögu ljóðlistar sé ekki hægt að skilja frá Ijóðlistaráhrifum, því að „sterk skáld mynda þá sögu með því að mislesa hvert annað til þess að búa sjálf- um sér sköpunarrými."4 Stórskáld komast semsagt ekki hjá því að glíma við fyrirferð- armikla forfeður sína, en með því að „mis- skilja“ þá, þ.e. túlka, endurskoða og „leiðrétta" þá á skapandi hátt, lánast hinum síðbornu að öðlast sess í ættartré skáldskap- arsögunnar. Kenningar Blooms kunna að eiga við um sambönd vissra höfunda en slík innbyrðis átök einstakra stórskálda veita okkur afar þröngt sjónarhom á sögu bókmenntanna. Skáldskapur nærist ekki síst á fjölbrey tileg- um samböndum texta úr fortíð og nútíð (og reyndar alls ekki skáldskapartexta einna). Nútímaskáldskapur dregur, sem fyrr segir, oft litla dul á tengsl sín við hina ýmsu texta og á þetta við um ýmis tímamótaverk módernismans, eins og Eyðilandið eftir T.S. Eliot, Cantos-bá\k Ezra Pounds og Ulysses (Ódysseif) eftir James Joyce. Mörgum þótti Eliot ganga út í öfgar með 76 TMM 1993:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.