Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Blaðsíða 40

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Blaðsíða 40
Thor Vilhjálmsson Á ametýstoddi öldunnar Svimhátt lá hann á bakinu og barst á ametýstoddi öldunnar (á brun- andi skriði undir rjúkandi skýjum) hvassbeittum sem broddskar ögn til hliðar við mjóhrygginn í ofvæni andartaksins, þegar allt vatzt úr íjórðu vídd tímans, og er kyrrt í hinum víddunum þremur: svo öskrið verður myndfast; og hann þannig með fætur á lofti og hendurnar í jafnvæginu, á þessum molnandi tindi glærum, sem verður gler fyrir vatn; gimsteinn þó fremur í hátíðniskurði svo svimhraðrar hreyfingar að skynjast sem standandi kyrr; og svo stutt bil tíma að mælist ekki, nema sem eilífð; svo skammvinn sem væri ævarandi; og hangir þar, og hvolfir ein manneskja upp í himin og ský stormsins og fastneglda fugla á bálsins væng, með augu hans viðskila festi af glærum söltum perlum gagnsæjum; blá svo blá, í niflheljarfrosti vitundarspennunnar í þessari angist; og hefur þó sem hliðsjón væri á smaragðgræna skyggnifleti á píramíðahlíðum þessara sæturna; og eru skaraðir líktog ógagnsæjum gluggum randstæðum og hrjúfköntuðum sem skára hver annan, og skera næstum því fugl og fugl; eða skæru, færi allt aftur af stað úr þessum kyrrfrysta dauða; ef ekki væri líf utan um hann. Og sá dauði einsog stormstilla í bálinu miðju; logn innst í hvirflin- um; röstin grenjandi í kring, kjarni ef ekki gat í miðju eirðarleysinu, sem er líf. Og í lofti hangir hvítur salli, þurrrokin ef væri úr splundruðum toppum í hálofti öldutindanna; mylsna fín í dölum sem hafði sargazt úr földum þeirra. Sýluð skip í fjarska, með gulan og rauðbrúnan reykslóða í mjólkur- hvítu ljósi, nærri græntónuðu, meira en mjöll; og hnoðbjarma loftsins íturspennt lögðust lasergeislar að leita mannsins, til að stegla hann í krosslausa kyrrð (því tími var og er og verður, hvert sem hann stefnir, verður hraðbreyttur mest eða seinaður, og færður í aðra átt, og hann hugsar sig á móti straumi frá fossinum sem bíður); og hindra hann 34 TMM 1995:2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.