Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Qupperneq 123

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Qupperneq 123
öldin í algleymingi og þótt fólkið í smá- bænum Kiikenstadt í Neðra-Saxlandi reyni að leiða þá voveiflegu atburði hjá sér teygir stríðið þangað anga sína með komu dauðveiks gyðings á flótta. Gyð- ingur þessi er falinn á gistihúsi bæjarins þar sem aðalsöguhetjan, ung, lífleg og skemmtileg stelpa Marie-Sophie að nafni starfar sem þjónustustúlka en henni er falið að gæta og hlúa að gyð- ingnum uns búið er að finna honum annan og öruggari samastað. Þótt ves- alingurinn, eins og Marie-Sophie kallar hann, sé ekki mikið fyrir augað, horaður, slappur og visinn eiga þau saman undurfallegt ástarævintýri og hnoða saman barni (í bókstaflegum skilningi!) áður en leiðir þeirra skiljast. Þannig er söguþráðurinn í grófum dráttum í Auguþín sáu mig. Hefðbundin ástarsaga... eða hvað? Þetta er vissulega kunnuglegt þema: tvær ókunnugar manneskjur sem mætast í skugga stríðsógnar, verða ástfangnar og „brenna saman“ með hefðbundnum afleiðing- um. En þær leiðir sem Sjón fer í þessari sögu eru vissulega öðruvísi en gengur og gerist í „venjulegum“ ástarsögum. Eins og hans er von og vísa kryddar hann söguna með alls kyns útúrdúrum og krúsídúllum, sögum af englum og púk- um, prinsi og glæpamönnum sem við fyrstu sýn virðast allsendis óskyldar ör- lagasögu persónanna en fléttast lipur- lega saman við aðalsöguna sem verður fyrir vikið bæði skemmtilegri og dular- fyllri en gengur og gerist um „rauða rómansa“. Hliðarsögurnar eru sagðar til skiptis af Marie-Sophie og sögumanni. Hún styttir sjálffi sér og gyðingnum stundir með því að segja honum alls kyns sögur og fer létt með það enda málglöð með afbrigðum. Af munni hennar hrýtur t.a.m. saga af barni sem gerir óviður- kvæmilegar athugasemdir um dverg í sporvagni en sér að sér effir suss mömmunnar og segir í huggunarskyni við dverginn um leið og hann fer út: „Mér finnst þú vera stór!“ (54). Af þess- ari sögu má draga þá ályktun að Marie-Sophie vilji hugga vesalinginn þar sem hann liggur ósjálfbjarga í eymd sinni: það er jú ekki alltaf allt sem sýnist. Og söguna af prinsinum og fátæku stúlkunni sem eiga sér ástar- fund í skógi má heimfæra upp á líf Marie-Sophie sjálfrar sem dregur þá ályktun af eigin sögu að menn skuli ekki leita langt yfir skammt. Þannig á það sem gerist í hugarheimi Marie- Sophie sér einatt samsvaranir í hennar eigin veruleika eins og þegar hún eftir afdrifaríkan og átakanlegan fund með Karli Maus, manninum sem hún kallar unnusta sinn, kemst óvænt í tæri við „Blóðfót“, barnamorðingjann illa og glæpahyskið sem Fritz Lang gerði um þá eftirminnilegu kvikmynd „M“. Þau hliðarspor sem sögumaður stíg- ur út af beinni braut frásagnarinnar skipta einnig máli fyrir framgang sög- unnar þó áheyrandi hans, óþolinmóð og drífandi kona, sé ekki alltaf á sama máli. Sögumanni liggur ekkert á, hann vill segja sem nákvæmast ffá enda sonur aðalpersónanna og fýrir vikið bæði við- kvæmari og vandvirkari en ella, enda hans eigin sköpunarsaga í húfi. En kon- an er ekki ginnkeypt fyrir slíkri við- kvæmni, verður hvefsin og pirruð og stoppar sögumann óhikað af þegar henni finnst hann fjarlægjast efnið um of, t.d. þegar hann í miðri spennandi frásögn af sinni eigin sköpun fer að vísa í Hamskipti Kafka sem í hans útgáfu heitir reyndar Umskiptin og segir af manni nokkrum sem vaknar upp í rúmi sínu og uppgötvar að hann hefur breyst í risavaxinn hvítvoðung. Þetta finnst konunni út í hött: TMM 1995:2 117
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.