Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Qupperneq 48
RÓBERT H. HARALDSSON
þau álitamál sem verkið glímir við, en leysir ekki, verða ljós er við skoðum
hvernig persónur Ibsens tala saman, lýsa dagdraumum sínum og fyrirætlun-
um, koma orðum að hugsunum sínum og metnaði. Á þetta sérstaklega við sé
orðræða einnar aðalpersónu verksins, Torvalds Helmer, skoðuð og hún borin
saman við orðræðu annarra persóna. Að því búnu verður leitað svara við því
hvað hin aðalpersóna verksins, Nóra Helmer, meini þegar hún kvartar undan
skorti á alvarlegum samrœðum í hjónabandi sínu og einnig hvað hún eigi við
með orðunum „hið undursamlega“ og „hið undursamlegasta“. í niðurlagi
greinarinnar verður síðan vikið að fáeinum skilyrðum alvarlegrar samræðu.
Siðjrœði Brúðuheimilis - leyndarmál Nóru
Brúðuheimili, líkt og fleiri leikverk Ibsens, er þaulhugsað og fágað. Sérhvert
orð þjónar tilteknu hlutverki í framvindu leikritsins og ekki verða fundin
stök orðaskipti sem mega missa sín án þess að heildin raskist að einhverju
leyti.6 Brúðuheimili er eins og ljóð sem öðlast nýja og dýpri merkingu eftir
hvern lestur. Ekki er því auðvelt eða áhættulaust að gera verkinu skil í stuttu
máli. Þó má segja að leyndarmál knýi atburðarás Brúðuheimilisí átt að sögu-
frægu uppgjöri og auðveldi okkur að halda í hina fjölmörgu þræði og
glöggva okkur í senn á fortíð persónanna og þankagangi. Forsaga verksins er
sú að söguhetjan Nóra Helmer hefur á laun tekið hátt lán til að standa straum
af kostnaði við Ítalíuferð fjölskyldunnar eftir að læknar höfðu tjáð henni að
líf eiginmanns hennar, Torvalds Helmer, ylti á að hann kæmist í suðrænna
loftslag. Leyndarmál leyndarmálsins er hins vegar að Nóra falsaði undir-
skrift dauðvona föður síns á skuldabréfið. Hún vildi hlífa honum við áhyggj-
um af heilsufari tengdasonarins; þess vegna fékk hann aldrei að vita af
skuldabréfmu. Þegar frú Linde, æskuvinkona Nóru, kemur í bæinn að leita
sér atvinnu trúir Nóra henni fyrir leyndarmáli sínu (fyrst að hluta, síðar í
heild). Hún útvegar henni einnig starf við Hluthafabankann, þar sem Hel-
mer er nýráðinn bankastjóri. Þó vill svo óheppilega til að Helmer lætur frú
Linde fá stöðu lögmanns nokkurs, Krogstads, þess sem veitti Nóru lánið.
Krogstad hótar að leysa frá skjóðunni beiti Nóra ekki áhrifum sínum til að
hindra að hann missi starfið við bankann. Helmer er hins vegar óhagganleg-
ur enda vill hann nýta fyrsta tækifæri sem gefst til að losna við Krogstad. Frú
Linde grunar að Rank læknir, nánasti fjölskylduvinur Helmerhjónanna, og
daglegur gestur á heimili þeirra, hafi lánað Nóru peningana en áttar sig síðar
á því að það er Krogstad, fyrrum ástmaður frú Lindu. Uppljóstrun leyndar-
málsins leiðir síðan á endanum til þess að Nóra yfirgefur eiginmann sinn og
börn, og einnig þess að með Krogstad og frú Linde takast ástir að nýju og þau
stofna fjölskyldu.
38
www.malogmenning.is
TMM 2000:1