Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Blaðsíða 32

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Blaðsíða 32
KRISTJÁN B. JÓNASSON og að síðustu hugmyndin um hina afmörkuðu sjálfsvitund sem grundvöll hins sjálfráða og frelsisleitandi einstaklings. Allt eru þetta hugmyndir sem samtímarýnin getur með engu móti kyngt hikstalaust, en sem hún vill þó heldur ekki sleppa af hendinni. Þar er að verki eilítið mótsagnakennt ferli sem er svo sem í stíl við annað á tímum þegar við neyðumst til að lifa við mótsagnir og halda þær út með góðu eða illu. Annars vegar er á ferðinni sá díalektíski borðtennisleikur sem lýst var hér að framan þar sem upphafning- in tekur höndum saman við gagnrýnina með það fyrir augum að færa það sem gagnrýnt er inn á nýtt umráðasvæði innan tungumálsins og menningar- innar, opinbera forsendur, djúpgerðir og merkingarformgerðir sem áður voru lítt sýnilegar. Hins vegar er hér á ferðinni ferli sem er sérstaklega bundið við afbygginguna og gagnrýni hennar jafnt á cartesíska þekkingarfræði sem þýska hughyggju. í stað þess að leysa af hólmi á díalektískan hátt hugtök sem talin eru ótæk með öðrum „sannari", hugtök eins og „þjóð“ og „einstakling- ur“, eru þau gömlu notuð áfram, en á gagnrýninn hátt, rúin sínum draugs- lega hugmyndafræðihala sem þau hafa dragnast með allt frá sínu óræða upphafi. Hugtökin eru sett inn í gæsalappir, deyfð með strokleðri, skrifuð með blýanti inn í blekklestar síðmódernískar stílabækur, en þau eru ekki sett inn í hina miklu hugtakaskilvindu þar sem segir að þegar rjómi er ekki leng- ur rjómi nema í gæsalöppum verði að kalla hann undanrennu. Svo einfalt er það ekki. Um leið og hætt er að tala um rjóma getum við ekki spurt þeirra spurninga sem orðræða rjómans og þau margvislegu tengsl sem búa í rjóma- hugtakinu hljóta að kalla fram. Við gerðum ráð fyrir því að það sé til sannari rjómi sem heitir undanrenna þar sem samsemd hans við eðli rjómans er meiri en gat orðið meðan rjóminn var í gæsalöppum. Og þeir sem lesa grannt hafa áreiðanlega höggvið eftir því að ég talaði um eðli rjómans þegar ég átti í raun við undanrennuna. Ég kemst ekki út úr þeim skorðum sem tungumál mitt setur mér því ég get ekki miðlað táknmyndinni /rjómi/ með táknmiðinu <undanrenna>, um slíkt er ekkert samkomulag meðal málnot- enda á mínu menningarsvæði og fyrst svo er ekki, er fráleitt að ég geti táknað „rjómann“ betur en áður en hann fékk gæsalappirnar. Afi afbyggingarinnar, Jacques Derrida, kallar þetta markahugsun, hugsun sem smeygir sér inn í bilið milli hugsunarviðmiðs sem hugtakið var áður hluti af og afnámsins sem vofir yfir því. Þetta brot eða rof er um leið vísir um hina óendanlegu táknmiðakeðju sem sýnist staðfesta merkingu sem þó er á stöðugum skila- fresti: í hvert sinn sem merkingin sýnist vera heilsteypt til staðar sést við nán- ari skoðun að til að skilja hana þarf að kalla til önnur táknmið og önnur táknkefi, aðra kóða, sem vísa áfram til annarra kóða, merkingin verður aldrei til sem hlutur, samsemd eða nálægð: hún er draugur í þeim eina veruleika sem okkur stendur til boða, sem er veruleiki tungumálsins. 22 www.malogmenning.is TMM 2000:1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.