Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Page 103
TÖFRARAUNSÆI í ÍSLENSKUM SAMTÍMASKÁLDSÖGUM
Einfríður eða Fríða eins og hún er oftast kölluð, aðalpersónan í Granda-
veginum, á sér líka sinn einkaheim sem er öðrum hulinn en mimurinn liggur í
því að sá heimur kemur til hennar frekar en hún sæki til hans. Sú veröld sem
hún á hlutdeild í en aðrir ekki er veröld hinna dauðu. Fríða er skyggn, um-
kringd látnum ættingjum og fólki sem hefur á einn eða annan hátt tengst hús-
inu sem hún býr í á Grandavegi 7. Fríða er orðin vön hinum dauðu og finnst
oft notalegt að finna fyrir nærveru þeirra. Stundum vill hún þó fá að vera í fr iði
en þeir dauðu sitja um hana eins og vargar og heimta af henni ótrúlegustu
hluti. Þannig hefur Vigdís snúið dæminu við: í stað aðalpersónu sem flýr inn í
einkaheim reynir Fríða að njóta næðis í hinum raunverulega heimi, reynir að
hafa stjórn á þessu aðgangsharða fólki og eigin lífi um leið. En þetta samneyti
Fríðu við annars heims fólk gerir það einmitt að verkum að sýn hennar á sjálfa
sig, heiminn og aðra er þroskaðri en gengur og gerist um 14 ára unglinga. Hún
sér ekki aðeins þá dauðu, heldur einnig myndir úr fortíð og framtíð og getur
lesið í huga annarra persóna ef því er að skipta. Þannig fær hún innsýn inn í
heim hinna fullorðnu þar sem ekki er allt sem sýnist.
Missirinn er eitt aðalþemað í Grandaveginum. Afi hennar og amma
misstu tvö börn úr berklum, Eiríkur einn af fyrrverandi íbúum hússins
missti son sinn í bruna, Einfríður missir bróður sinn Hauk sem drukknar og
hún missir einnig föður sinn sem stekkur að heiman eftir dauða sonarins og
tekur til við að djamma og djúsa sem aldrei fyrr. Sagan er sögð út frá sjónar-
hóli þess sem hefur misst og stendur á þröskuldi nýs lífs og bókin hefst
einmitt á frásögn um missi.
Hundur Einfríðar, einn besti vinur hennar, verður undir bíl og máfar éta
hræ hans upp á augabragði. Þegar Einfríður grefur hundinn að kvöldi hefur
allt breyst. Hún hefur fundið nýjan vin, kærasta sem hún vill eyða með lífinu
og hin brotna eining fjölskyldunnar er aftur heil. Grandavegur 7 er saga af
brotinni fjölskyldu og Einfríður og Haukur bróðir hennar reyna að gera líf
sitt heilt á ný með öllum tiltækum ráðum. Þetta er saga af örvæntingarfull-
um tilraunum barna til að raða sundruðum heimi aftur saman.
Vegna þess hve heitt börnin elska föðurinn er óstöðugt eðli hans sífelld
ógn, hótun um að koma aldrei aftur, að skilja þau ein eftir, að farast og deyja.
Þau eru síhrædd, óttast að hann gleymi sér, sofni og vakni aldrei aft ur. í hvert
skipti sem pabbinn yfirgefur fjölskylduna gleymir hann öllu sem hana snert-
ir og eyðileggur öryggið og merkingu lífs þeirra. Þess vegna eru börnin sífellt
að reyna að ná honum heim með „göldrum". Skyggni sína notar Einfríður til
að sameina fjölskylduna aftur, f gegnum hina ffamliðnu reynir hún að átta
sig á missinum. Hún reynir að sækja skýringar til hinna dauðu því draugarn-
ir hafa allir sömu sögu að segja og hún. Þeir hafa allir orðið fyrir óbætanleg-
um missi í lífinu.
TMM 2000:1
www.malogmenning.is
93