Tímarit Máls og menningar - 01.03.2000, Blaðsíða 106
SIGRÍÐUR ALBERTSDÓTTIR
stúlka, en henni er falið að gæta og hlúa að gyðingnum uns búið er að finna
honum annan og öruggari samastað. Þótt vesalingurinn, eins og Marie-
Sophie kallar hann, sé ekki mikið fyrir augað, horaður slappur og visinn, eiga
þau saman undurfallegt ástarævintýri og hnoða saman barni úr undarleg-
um, ólögulegum klumpi sem maðurinn hefúr meðferðis áður en leiðir skilj-
ast.
Þannig er söguþráðurinn í grófum dráttum í Augu þín sáu mig. Hefð-
bundin ástarsaga . . . eða hvað? Þetta er vissulega kunnuglegt þema: tvær
ókunnugar manneskjur sem mætast í skugga stríðsógnar, verða ástfangnar
og „brenna saman“ með hefðbundnum afleiðingum. En þær leiðir sem Sjón
fer í þessari sögu eru vissulega öðruvísi en gengur og gerist í venjulegum ást-
arsögum. Eins og hans er von og vísa kryddar hann söguna með alls kyns
undarlegum fyrirbærum sem eru algjörlega á skjön við veruleikaskynjun
hins raunsæja lesanda. En þegar púslinu er raðað saman fellur hver biti á sinn
stað.
Formgerð skáldsögunnar á sér stað á þremur sviðum: A) sviði sögu-
mannsins B) frumspekilegu sviði engla og demóna og C) á sögulegu sviði
íbúanna í smábænum Kukenstadt.28 Sá sem segir söguna er sonur aðalper-
sónanna, þ.e. Marie-Sophie og gyðingsins, klumpurinn í hattöskjunni sem
síðar varð barn. Honum er mikið í mun að segja sem nákvæmast ffá enda
hans eigin sköpunarsaga í húfi og í frásagnargleði sinni stígur hann ýmis
hliðarspor út af beinni braut frásagnarinnar, segir sögur í sögunni sem við
fýrstu sýn virðast alls ekki koma aðalsögunni við. Áheyrandinn, stúlkan sem
stöðugt er við hlið hans, vill fá raunsæja sögu, vill að sögumaður haldi sig við
efnið og haldi sig frá öfgum og ofbeldi. Hún grípur inn í þegar henni finnst
hann fara á of mikið flug en hann rökstyður ákvarðanir sínar með innri rök-
vísi sögunnar og vísunum í bókmenntafræði og setur sig þar með í fræði-
mannsspor. Sögumaður hefur semsagt fullt vald á sögu sinni þrátt fyrir
útúrdúra og þegar öllum brotum er raðað saman stendur eft ir heilleg, merk-
ingarbær saga, öfugt við sögurnar í Eftirmála regndropanna.
Svið þrjú fjallar um daglegt líf fólksins í Kukenstadt í skugga styrjaldar-
innar og það er raunsæjasta svið bókarinnar. Þar segir af „venjulegu“ fólki
sem reynir að lifa af við óvenjulegar kringumstæður, þ.e. í skugga stríðsógn-
ar en á sviði 2 segir af Gabríel erkiengli og baráttu hans við satan og önnur
demónísk fýrirbæri. Líkt og á jörðu niðri ríkir barátta góðs og ills á himnum,
þar er hernaðarhyggjan einnig í algleymingi.
Sviðin þrjú byggja á einu eða öðru leyti á trúff æðilegum og dulspekilegum
textum. Til dæmis er sagan af einkennilegu ástarsambandi Marie-Sophie og
gyðingsins unnin upp úr gnostískum og gyðinglegum textum, m.a. hinni
gyðinglegu goðsögu um gólemið.
96
www.malogmenning.is
TMM 2000:1