Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Side 125

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1995, Side 125
ans og hinnar guðlegu veru í ljósi sög- unnar, út frá grandalausri þjóð sem lét djöfulinn blekkja sig. Það er einmitt það sem gerist uppi á himninum yfir Kiiken- stadt en á meðan á þeirri baráttu stendur lifir fólkið í bænum sínu venjubundna lífi, reynir hvað það getur að leiða hörm- ungarnar hjá sér, vonar og elskast rétt eins og Marie-Sophie og gyðingurinn sem verða þó að skilja. Skilnaðurinn er óumflýjanlegur og á sér stað á sömu stundu og ákveðin vending verður í samskiptum satans og engilsins (stríð- andi afla á jörðu niðri?) Svipaða nálægð stríðsins má greina í sögunni af englin- um Freude sem skráir draumfarir manna í bænum og í einum af þeim draumum leikur Hitler stórt og greini- legt hlutverk, er eins og í sögunni sjálfri nálægur í andanum þó maðurinn sé víðs fjarri (100-102). Og þó að flestar persónur bókarinnar séu bæði vel mein- andi og friðelskandi er þar einnig að finna illskuna holdi klædda: Karl Maus unnusta Marie-Sophie, afbrýðisaman og drykkfelldan náunga. Hann er nasist- inn á svæðinu, fylgist grannt með öllu því sem fram fer á gistihúsinu og lýkur hlutverki sínu í sögunni eins og vænta má af föntum af hans sauðahúsi. Sam- skipti Marie-Sophie og Karls endur- spegla ástandið í Evrópu þar sem Karl er í hlutverki kúgarans en Marie-Sophie persónugervingur hinna kúguðu, smáðu og limlestu fórnarlamba stríðs- ins og þannig er ógnin ávallt nálæg þó ekkert heyrist stígvélatrampið eða vél- byssugeltið. Að bæta enn einu orðinu í klisjusafn- ið og segja að Augu þín sáu mig sé marg- slungin saga er örugglega ekki ofsagt og hér hef ég aðeins tínt til fáar af þeim hugleiðingum sem kviknuðu við lestur- inn. Ég hef ekki minnst á hinar mörgu og ólíku stíltegundir sem höfundur leik- ur sér að jafn öruggur og fimleikamaður í fjölleikahúsi. Ekki hafa aukapersónur bókarinnar fengið að njóta sín í þessari umfjöllun en þær eru ekki síður áhuga- verðar en turtildúfurnar tvær, oft óborganlega fyndnar, allt að því farsa- kenndar. Ekki heldur hef ég gert húmor- inn að sérstöku umtalsefni en textinn leiftrar af kímni og gleði sem undirstrik- ar einmitt lífsþorsta þessa „venjulega" fólks sem hefur einsett sér að lifa af þrátt fyrir aðsteðjandi ógnir. Fleira mætti nefna enda Auguþín sáu wigflókin saga og rík af myndum, orðum og athöfnum sem gaman væri að skoða út ffá ýmsum sjónarhornum. Þetta er úthugsað verkþar sem engu orði er ofaukið, hvert tákn og hver vísun á sér öruggan samastað í af- burða sögu þar sem ástin sigrar grimmd- ina og dauðann á eftirminnilegan hátt. Sigríður Albertsdóttir TMM 1995:2 119
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.