Morgunblaðið - 03.01.2015, Page 2

Morgunblaðið - 03.01.2015, Page 2
Snjókoma hefur sett svip sinn á nýárið og þekur nýfallinn snjórinn Árbæinn eins og sjá má á viðkomandi mynd. Samkvæmt Veðurstofu er umhleyp- ingatíð framundan og í dag er útlit fyrir að það gangi á með éljum. Á sunnudaginn er von á að það hláni, dagurinn gæti byrjað á snjó- komu en endað í slyddu eða rigningu. Kortin segja að á mánudaginn verði orðið svalt aftur með hugsanlegu élja- lofti. Morgunblaðið/RAX Snjókoman hefur sett svip sinn á nýárið 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015 Kaupum bíla Hærra uppítökuverð Við staðgreiðum bílinn þinn og þú getur þar með fengið staðgreiðsluafslátt af nýja bílunum. Sendu okkur upplýsingar í gegnumwww.seldur.is og við sendum þér staðgreiðslutilboð þér að kostnaðarlausu. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Gangagerð í Vaðlaheiði gekk afar illa fyrir jólafrí og búist er við að svo verði áfram fyrst eftir að vinna hefst að nýju. Vegna lélegs bergs hafa gangamenn þurft að byggja stálgrind innan í göngin jafnóðum og grafið er frá og sprauta steypu innan á hana. Gangagröftur hefst aftur á mánudag í Vaðlaheiðargöngum og Norðfjarðargöngum eftir jólafrí. Miklar tafir hafa orðið í Vaðlaheiði vegna vatns- aga Eyjafjarðarmegin og lélegs bergs Fnjóskadals- megin. Grafnir hafa verið út 3,4 km sem er 47,5% af fyrirhuguðum göngum. Valgeir Bergmann, fram- kvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga, áætlar að verkið sé 3-4 mánuðum á eftir áætlun. Betur hefur gengið í Norðfjarðargöngum og er Guðmundur Ólafsson, verkefnastjóri hjá Suðurverki, ánægður með framvinduna. Þar er sprengt frá báðum endum. Frá Eskifjarðarmunna var búið að grafa 2,7 km fyrir jólafrí og Norðfjarðarmunna liðlega 2,1 km. Jafngildir þetta tæplega 64% af heildarlengd ganga í bergi. Mikið innrennsli af heitu vatni sem erfitt var að stöðva gerði það að verkum að vinnu var hætt Eyja- fjarðarmegin. Verktakarnir, ÍAV og Marti Contrac- tors, hófu sprengingar austanmegin, í Fnjóskadal, 6. september. Aðstæður hafa verið allt aðrar en vest- anmegin því lítið vatn lekur úr berginu en það er aftur á móti frekar veikt. Sumar vikur hefur gengið vel og í bestu vikunni voru grafnir 84 metrar. Síðustu vikur hafa verið seinfarnar vegna mikilla styrkinga, 6-8 metrar á viku. Samhliða hefur verið unnið að því að bæta vinnu- aðstæður í göngunum Eyjafjarðarmegin þannig að hægt verði að hefja gangagröft þar á næstu mánuðum. Ekki er ljóst hvenær byrjað verður að grafa frá báðum endum en Valgeir vonast til að það verði fljótlega. Upphafleg verkáætlun gerði ráð fyrir að ganga- greftri lyki í september í ár og framkvæmdinni í heild fyrir lok árs 2016. Verktakar vinna nú að því að upp- færa og endurgera verkáætlun með tilliti til breyttra forsendna. Þurfa að bleyta í rykinu Síðustu vikuna fyrir jólafrí voru grafnir rúmir 75 metrar í Norðfjarðargöngum, 39,5 metrar frá Norð- fjarðarmunna og 35,7 frá Eskifjarðarmunna. Vatnsagi er ekki að trufla verktakann. Guðmundur Ólafsson segir raunar að Eskifjarðarmegin sé svo þurrt að flytja þurfi vatn inn í göngin til að bleyta í rykinu. Hætt verður að grafa Norðfjarðarmegin þegar sá leggur verður kominn í rúma þrjá kílómetra sem áætl- að er að verði í lok apríl. Haldið verður áfram frá Eskifirði og ef allt gengur upp verður slegið í gegn í byrjun september 2015. Hægt gengur vegna styrkinga í veiku bergi  Sex metrar á viku í Vaðlaheiði  Byrjað aftur á mánudag Ljósmynd/Valgeir Bergmann Bogagöng Stálvirkið sem sett er upp þar sem berg er veikast myndar bogagöng og er steypu sprautað á. Smáþjóðaleikarnir fara fram hér á landi í sumar og verður keppt í strandblaki í Laugardal. Reykjavík- urborg hefur hafið útboð á svæðinu sem mun hýsa keppnisvellina og er það við hliðina á vatnsrennibraut- inni. Opnað verður fyrir tilboð í verkið 14. janúar. Svæðið er rúmir 800 fermetrar að stærð og mun rúma tvo strand- blaksvelli og áhorfendaaðstöðu. Strandblaksvöllur er 16 metra langur og átta metra breiður með neti í miðjunni sem skilur vall- arhelmingana að. Strandblak hefur lengi verið spil- að á ströndum um allan heim og þróaðist út frá tómstundagamni í ólympíugrein en keppt var á leik- unum í Atlanta 1996. Helsti mun- urinn á blaki og strandblaki er sá að í strandblaki eru tveir í liði í stað sex í blaki. Á Smáþjóðaleikunum er keppt í sex einstaklingsíþróttagreinum og tveimur hópíþróttagreinum. Skipu- lagsnefnd hverra leika getur bætt við tveimur greinum til viðbótar og var valið að keppa í fimleikum og golfi en þetta er í fyrsta skipti sem keppt verður í golfi á Smáþjóða- leikum. Risavöllur gerður fyrir strandblak Teikning Í útboðsgögnum má sjá hvar strandblaksvöllurinn verður. Varðskipið Týr var væntanlegt til Corigliano á Suður-Ítalíu um tíuleyt- ið í gærkvöldi. Týr var með flutn- ingaskipið Ezadeen í togi en um borð í Ezadeen voru rúmlega 400 flóttamenn, þar af um 60 börn. Týr kom að Ezadeen um klukkan 22.00 í fyrrakvöld. Þá var skipið út af Tarantoflóa við Suður-Ítalíu. Það stefndi til lands á fullri ferð en áhöfnin hafði yfirgefið skipið. Fimm varðskipsmenn fóru um borð í Ezadeen í fyrrinótt við mjög erfiðar aðstæður. Um 40 hnúta vind- ur og krappur sjór var á svæðinu. Fólkið var orðið matar- og vatnslítið eftir langt volk á sjó. Varðskips- mönnum tókst að koma dráttarvír yfir í varðskipið um klukkan hálfsex í gærmorgun. Ezadeen var þá orðið vélarvana. Snemma í gærmorgun fóru björg- unarmenn frá ítölsku strandgæsl- unni um borð í Ezadeen úr þyrlu. Varðskipsmenn sneru þá til baka um borð í Tý. »40 gudni@mbl.is AFP/LHG Ezadeen Týr tók skipið í tog og dró það til hafnar á Suður-Ítalíu. Stjórnlaust skip með 400 flóttamenn  Varðskipið Týr dró skipið til hafnar Samningafundur Skurðlæknafélags Íslands og ríkisins stóð enn þegar Morgunblaðið fór í prentun. Fund- urinn hófst hjá Ríkissáttasemjara klukkan 15.00 í gær. Samningafundur er boðaður í kjaraviðræðum Læknafélags Ís- lands við ríkið klukkan 13.30 í dag. Samninganefndir Læknafélagsins og ríkisins funduðu frá klukkan 13.00 til 18.00 í gær. Sigurveig Pétursdóttir, formaður samninganefndar Læknafélagsins, vildi ekki tjá sig um gang viðræðn- anna að loknum samningafundinum í gær. Hún sagði það eitt að samn- ingsaðilar sæju ástæðu til að halda áfram að funda. „Við höldum áfram og gerum okkar besta,“ sagði Sig- urveig. Læknar hafa boðað þrjár lotur fjögurra sólarhringa verkfalla í jan- úar, febrúar og mars. Á mánudag hefst verkfallslota Læknafélagsins á aðgerðasviði og flæðissviði Land- spítalans og hjá ýmsum stofnunum. Hinn 12. janúar hefst verkfallslota á lyflækningasviði LSH og Sjúkra- húsinu á Akureyri, hinn 19. á rann- sóknarsviði og kvenna- og barna- sviði LSH og á heilbrigðisstofnunum og hinn 26. á geðsviði og skurðlækningasviði LSH. Ný lota verkfallsaðgerða Skurðlæknafélags Íslands á að hefj- ast 12. janúar. gudni@mbl.is  Skurðlæknar sátu fram á kvöld Langar viðræðulotur í læknadeilunni í gær Morgunblaðið/Þórður Læknadeilan Stöðug fundahöld.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.