Morgunblaðið - 03.01.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
VITA
Skógarhlíð 12
Sími 570 4444
Flogið með Icelandair
Skíðafrí á Ítalíu
Morgunflug með Icelandair
Verð frá69.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
Flugsæti til og frá Verona.
*Verð án Vildarpunkta 79.900 kr.
Síðustu sætin
14. og 21. feb.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Það má búast við að næstu tveir mánuðir
verði rétt undir meðallagi. Í janúar eru áætl-
aðar um 250 fæðingar og 255 í febrúar. Annars
getur þetta sveiflast töluvert,“ segir Anna Sig-
ríður Vernharðsdóttir, yfirljósmóðir á fæðing-
arvaktinni á Landspítalanum.
Desember er yfirleitt nokkuð rólegur, þ.e.
fæðingar eru undir meðaltali og var nýliðinn
desember engin undantekning. Að jafnaði fæð-
ast 260 til 270 börn í hverjum mánuði á Land-
spítala. Þar fæddust 3.159 börn í fyrra.
Rúmlega fjögur þúsund börn fæddust á
landinu árið 2014 samkvæmt lauslegri sam-
antekt Morgunblaðsins en endanlegur fjöldi
barnsfæðinga liggur ekki fyrir.
Nýársbarnið á Akureyri komið
„Nýársbarnið er komið. Á nýársdag kl.
18.43, fæddist stúlka,“ segir Ingibjörg Jóns-
dóttir, yfirljósmóðir á Sjúkrahúsinu á Ak-
ureyri.
Heldur fleiri börn fæddust þar í ár en í
fyrra. Alls komu í heiminn 443 börn í 439 fæð-
ingum, tvíburafæðingar voru því fjórar talsins.
Þetta voru 219 stúlkur og 224 drengir. „Strák-
arnir eru yfirleitt aðeins fleiri en skiptingin er
ótrúlega jöfn milli kynjanna.“
„Ég var að taka á móti barni fyrir klukku-
stund. Það var fyrsta barn ársins hjá okkur,“
segir Sigrún Rósa Vilhjálmsdóttir ljósmóðir á
fæðingardeildinni á Ísafirði. Það var stúlka
sem fæddist um miðjan dag í gær og öllum
heilsast vel.
Á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði
fæddust 39 börn árið 2014, 21 drengur og 18
stúlkur. Ef talið er einhver áhætta geti mögu-
lega fylgt fæðingunni þá fara konurnar til
Reykjavíkur og eiga börnin þar. En hvorki
svæfinga- né barnalæknir er starfandi á Ísa-
firði. Á síðasta ári fóru 14 konur og fæddu í
Reykjavík.
Á Akranesi fæddust 269 börn á síðasta ári
heldur fleiri en árið áður en þá fæddust 224
börn.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Sel-
fossi komu 82 börn í heiminn árið 2014. Aðeins
færri, eða 78 börn fæddust árið 2014 á Heil-
brigðisstofnun Austurlands. Fæðingarnar
voru aðeins fleiri en árið á undan. Fyrsta barn
ársins á Austurlandi var þó ekki komið í gær
en það er þó væntanlegt á næstu dögum.
Færri börn fæðast næstu mánuði
Áætlað að 250 börn fæðist í janúar 2015 Að meðaltali fæðast um 265 börn á mánuði 3.159
börn fæddust á Landspítalanum árið 2014 Fleiri drengir en stúlkur fæddust á Akureyri árið 2014
Morgunblaðið/Kristinn
Barnsfæðingar Fjórar tvíburafæðingar voru
á Akureyri árið 2014, alls fæddust 443 börn.
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Þótt vörugjöld hafi verið afnumin um
áramótin getur áhrifa gjaldsins gætt
í verði ýmissa vara nokkrar vikur
fram á nýja árið. Það er vegna þess
að margar verslanir eru enn með
vörur til sölu sem voru keyptar áður
en vörugjöldin voru afnumin.
Alþýðusamband Íslands (ASÍ)
hvetur neytendur til að fylgjast vel
með áætluðum áhrifum breyting-
anna og hvernig þær skila sér út í
verðlag. Félag atvinnurekenda tek-
ur undir hvatningu ASÍ og fagnar
neysluskattsbreytingunum, sem fela
í sér annars vegar samræmingu
skattþrepa virðisaukaskatts og hins
vegar afnám vörugjalda.
Félag atvinnurekenda hvetur þó
neytendur til að hafa í huga að mörg
fyrirtæki lækkuðu verð sitt til sam-
ræmis við afnám vörugjaldanna
strax í september til að tryggja sölu
það sem eftir lifði árs, ella hefðu ver-
ið líkur á að margir frestuðu kaupum
á raftækjum fram yfir áramót. Þá
segir félagið fyrirtækin hafa tekið
vörugjaldið á sig í nokkra mánuði og
tryggt að neytendur nutu verðlækk-
unarinnar fyrr en ella.
Ríkisstjórnin féllst ekki á tillögur
félagsins um að innflytjendur fengju
endurgreidd vörugjöld sem þeir hafa
þegar greitt til ríkissjóðs af vörum
sem þeir eiga óseldar á lager um ára-
mót. Ólafur Stephensen, fram-
kvæmdastjóri Félags atvinnurek-
enda, segir erfitt að setja fingurinn á
hversu háar þessar fjárhæðir geta
verið sem endurgreiðslan hefði num-
ið. „Innflytjendur hafa verið að flytja
inn sem allra minnst fram að ára-
mótum til þess að lenda ekki í því að
þurfa að velta vörugjaldinu áfram út
í verðlagið, en þetta eru vörur fyrir
mjög háar upphæðir sem ríkisvaldið
krækti í tekjur af á síðustu dögum
ársins 2014.“
Áhrif vörugjalda til staðar
Mergð Margir kaupa á útsölunum.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Neytendur
hvattir til að fylgj-
ast vel með
Færeyska skipið Finnur Fríði landaði fyrsta kol-
munnafarminum á þessu ári hjá Loðnuvinnsl-
unni á Fáskrúðsfirði í gær. Skipið kom með
2.500 tonn sem fóru í bræðslu. Aflinn fékkst á
þremur sólarhringum, að sögn Alberts Kemp,
fréttaritara.
Trondur í Götu, annað færeyskt skip frá sömu
útgerð, er væntanlegur með önnur 2.500 tonn til
löndunar á Fáskrúðsfirði. Skip frá þessari út-
gerð hafa landað á Fáskrúðsfirði í mörg ár.
Beitir NK átti að fara til kolmunnaveiða í gær-
kvöldi, að sögn Gunnþórs Ingvasonar, fram-
kvæmdastjóra Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.
Hann hafði heyrt að fleiri íslensk skip væru einn-
ig á leið á kolmunna.
„Loðnuvertíðin er næsta verkefni á dagskrá
hjá okkur. Ég reikna með að við einbeitum okk-
ur að henni,“ sagði Garðar Svavarssonar, deild-
arstjóra uppsjávarsviðs hjá HB Granda. Skip HB
Granda, Faxi RE, Ingunn AK og Lundey NS
veiddu allan sinn kolmunnakvóta í fyrra. Garðar
sagði að fyrir áramótin sé kolmunninn feitur og
skili góðri lýsisnýtingu. Hann horast síðan fram
á vorið, en þá veiðist best og eins eru uppsjáv-
arskipin þá yfirleitt ekki við aðrar veiðar.
Garðar kvaðst binda vonir við að aukið verði
við loðnukvótann. Mæling haustið 2013 á ung-
loðnu hafi gefið góð fyrirheit. Hann býst við að
fyrstu loðnuskipin haldi til veiða næstu daga,
jafnvel þegar í dag. gudni@mbl.is
Færeysk uppsjávarveiðiskip landa kolmunna á Fáskrúðsfirði
Morgunblaðið/Albert Kemp
Fyrsti kolmunnafarmur ársins kominn á land
Félag íslenskra bif-
reiðaeigenda sendi í
gær út tilkynningu
þar sem óskað var
eftir rannsókn á ið-
gjöldum bílatrygg-
inga. FÍB segist
hafa ástæðu til að
ætla að afnám vöru-
gjalda af vara-
hlutum bíla og
lækkun virðisaukaskatts eftir áramót
komi ekki fram í lægri iðgjöldum bíla-
trygginga. Þá telur FÍB eðlilegt að
slík rannsókn sé framkvæmd af Neyt-
endastofu.
„Við höfum þó ekkert að fela“
Samkvæmt tilkynningunni gefur
lausleg könnun FÍB meðal bíleigenda
til kynna að iðgjöld hafi ekki lækkað
eins og lög gera ráð fyrir, heldur
hækkað eða staðið í stað. Árið 2014
hækkuðu iðgjöld ökutækjatrygginga
langt umfram verðbólgu þrátt fyrir
fækkun alvarlegra umferðarslysa.
FÍB telur tilefni til að iðgjöld trygg-
ingafélaganna verði tekin til rann-
sóknar, þar sem ástæða er til að ótt-
ast að jákvæðar ytri aðstæður í
ökutækjatryggingum skili sér ekki til
neytenda.
„Við erum tilbúin til viðræðna hvað
þetta varðar, við höfum þó ekkert að
fela. Annars á ég erfitt með að tjá mig
um þetta þar sem ég hef ekki séð til-
kynninguna sjálfur. Við verðum bara
að skoða þetta betur,“ segir Her-
mann Björnsson, forstjóri Sjóvár.
davidmar@mbl.is
FÍB fer
fram á
rannsókn
Hermann
Björnsson
Sjóvá til viðræðna