Morgunblaðið - 03.01.2015, Síða 6
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vísbendingar eru um að ýmis kostn-
aður sem leggst á fyrirtæki við að
ráða starfsfólk hægi á fjölgun starfa.
Þetta er mat Katrínar Óladóttur,
framkvæmdastjóra Hagvangs, sem
segir framboð á störfum fyrir há-
skólamenntað fólk lítið hafa aukist
að undanförnu. „Það hefur aðeins
aukist eftirspurn eftir t.d. bókurum
sem ekki þurfa háskólamenntun.
Það er verið að leita að sölufólki sem
er mjög jákvætt. Það er verið að
leita að fólki til að sinna þjónustu,
enda verkefnum að fjölga. Það er
hins vegar ekki sama eftirspurn eftir
háskólamenntuðu fólki,“ segir Katr-
ín.
Það segir sitt um eftirspurnina
eftir störfum að alls 811 umsóknir
bárust um nokkrar stöður hjá Ríkis-
skattstjóra, þar af 441 umsókn um
aðeins fimm stöður, að því er fram
kemur í riti embættisins, Tíund.
Katrín telur aðspurð að ef efna-
hagsbatinn haldi áfram og stigin
verði skref í afléttingu hafta „hljóti
að fara að skapast ný tækifæri hjá
fyrirtækjum sem geri það að verk-
um að þau fara að kalla eftir há-
skólamenntuðu fólki“.
Dýrt að hafa fólk í vinnu
– Hvernig meturðu kostnaðinn við
að hafa starfsfólk?
„Hann er gríðarlega mikill. Hverj-
um starfsmanni fylgja ekki aðeins
laun, heldur ýmis launatengd gjöld
sem fyrirtækin eru að sligast undan.
Þess vegna ráða þau ekki fólk í eins
miklum mæli og þau myndu ella
gera. Tryggingagjaldið er enn mjög
hátt. Venjuleg fyrirtæki munar
gríðarlega um þann kostnað. Svo er
aukaframlag fyrirtækja í séreign-
arsjóði gríðarlegur pakki fyrir fyr-
irtækin,“ segir Katrín og vísar til
þess að margir launþegar nýta sér
skattleysi séreignar, í tengslum við
leiðréttingu verðtryggðra íbúðalána.
Með þennan kostnað í huga
kveðst Katrín „uggandi yfir um-
ræðum um kjaramál“. „Hvert eiga
fyrirtækin að sækja þessa peninga
sem eiga að fara í launaleiðréttingar
á meðan þau skila ekki meiri fram-
legð og á meðan hagvöxtur er ekki
meiri en þetta?“ spyr Katrín sem
telur þetta kerfi orðið of flókið.
Hún bendir á að innan fjármála-
fyrirtækja sé verið að segja upp
fólki. Lægstu tekjuhóparnir eigi erf-
itt með að láta enda ná saman.
„Maður finnur þrýstinginn hjá
fólki sem er með minna en meðal-
tekjur. Neyslumynstrið hefur breyst
talvert mikið hjá þeim hópi. Það er
oft þungur róður fyrir foreldra sem
eru með börn í skóla að standa
straum af öllum útgjöldum. Þetta er
orðið tvískipt þjóðfélag að þessu
leyti. Við erum annars vegar með
stóran hóp fólks sem er með ágætar
tekjur og svo hins vegar hóp sem
sjálfsagt fer stækkandi sem hefur
ekki nóg. Það er því mikilvægt að
kjaraviðræður séu ekki sífellt að
þjóna öllum þessum hópum. Að það
komi ekki flöt hækkun á alla hópa,“
segir Katrín sem svarar því aðspurð
til að það þurfi „að sjálfsögðu að
hækka laun á lægri endanum“.
Helga Jónsdóttir, ráðgjafi og
meðeigandi hjá Capacent, hefur
starfað við starfsmannaráðningar
frá árinu 1987. Hún segir framboð
starfa fjölbreyttara en nokkru sinni.
Fyrir raungreinamenntað fólk hafi
framboðið t.d. aukist mikið. Breidd-
in á vinnumarkaði sé orðin töluverð.
„Íslenskur vinnumarkaður sveifl-
ast alltaf töluvert. Það var mikil
þensla 1987 og síðan upp úr 1990
verður viss samdráttur, bæði hér og
hjá norrænu þjóðunum og víðar. Síð-
an fer allt á góðan skrið hjá okkur
upp úr 1995 og 96. Þá voru stofnuð
nokkur stór fyrirtæki. Símafyr-
irtækið Tal hóf starfsemi og Íslensk
erfðagreining tekur til starfa. Mörg
fyrirtæki voru skráð á markað í
Kauphöllinni. Mikil uppbygging fór í
hönd. Það varð sprenging í hugbún-
aðargeiranum í kringum aldamót og
2000-vandann. Allir þekkja söguna
fram til 2008. Þetta eru miklar
sveiflur, hafa alltaf verið og munu
alltaf verða.“
Spurð hvernig lýsa megi framboði
á störfum í byrjun nýs árs segir hún
erfitt að lýsa því í fáum orðum.
„Kjarasamningar eru opnir. Deil-
ur á vinnumarkaði skapa erfiðleika
og óvissuástand sem gerir erfitt að
spá um framhaldið. Það er margt í
pípunum. Maður heyrir það og veit
það. Það er alltaf eftirspurn eftir
ákveðinni menntun, eins og verk-
fræði, t.d. rafmagnsverkfræði, for-
ritun og tölvunarfræði. Það er við-
varandi eftirspurn,“ segir Helga
sem kveðst aðspurð ekki hafa orðið
vör við mettun í tölvunarfræði.
„Lögfræðingum hefur fjölgað
töluvert á síðastliðnum 3-4 árum.
Það gæti tekið tíma fyrir þá að kom-
ast á vinnumarkaðinn að námi loknu,
en vissulega er það menntun sem
nýtist á mörgum sviðum.
Þá er mjög stór hópur með BS í
viðskiptafræði, rekstrarfræði og
skyldum fræðum og það er spurning
hvort allir fái strax vinnu við sitt
hæfi. Maður finnur þó að það er mik-
il hreyfing á markaðnum. Mér finnst
hins vegar mjög erfitt að segja fyrir
um framhaldið á þessu ári.“
Of dýrt fyrir fyrirtæki að ráða fólk
Framkvæmdastjóri Hagvangs segir mörg fyrirtæki að sligast undan launatengdum gjöldum
Margt háskólafólk án vinnu Sérfræðingur hjá Capacent segir offramboð af lögfræðingum
Morgunblaðið/Golli
Steypuvinna Atvinnuleysi meðal fólks með iðnmenntun hefur minnkað
mikið síðan í janúar 2012. Þar hefur atvinnulausum fækkað um 1.200.
Helga
Jónsdóttir
Katrín
Óladóttir
Menntun atvinnulausra
Grunnskólanám
eða sambærilegt
Starfstengt nám
á framhaldssk.stigi
Iðnnám
Stúdentspróf
Háskólanám /
sérskólar við háskólastig
Samtals
jan. 12
5.945
1.122
1.725
1.358
1.930
12.080
apr. 12
5.442
971
1.459
1.297
1.821
10.990
júl. 12
4.204
811
1.021
1.039
1.621
8.696
okt. 12
4.137
847
1.060
978
1.570
8.592
jan. 13
4.370
920
1.192
1.127
1.680
9.289
apr. 13
3.899
766
1.008
1.073
1.597
8.343
júl. 13
3.293
695
768
930
1.598
7.284
okt. 13
2.987
664
722
853
1.540
6.766
jan. 14
3.558
845
822
971
1.650
7.846
apr. 14
3.316
742
686
962
1.499
7.205
júl. 14
2.621
611
532
769
1.442
5.975
okt. 14
2.479
635
509
669
1.448
5.740
nóv. 14
2.575
638
514
690
1.421
5.838
Hlutf.
fækkun
-57%
-43%
-70%
-49%
-26%
100%
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
Jólatíðin er nýafstaðin og leituðu
margir á náðir hjálparsamtaka og
þáðu matargjafir. „Hluti af þeim
hópi sem leitaði til okkar er þó hætt-
ur að koma. Til dæmis hafa atvinnu-
lausir fengið vinnu,“ segir Bjarni
Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálp-
arstarfs kirkjunnar og telur stöðuna
almennt hafa skánað frá fyrri árum.
„Við sjáum hins vegar einstæða
foreldra og mæður, öryrkja og aðra
sem höfðu það erfitt fyrir efnahags-
hrunið hafa það enn erfitt og hefur
þeim lítið fækkað,“ bætir hann við.
Bjarni telur heildarnálgun á þessi
mál nauðsynlega til að stöðva víta-
hring fátæktarinnar, til dæmis með
námskeiðum og aðstoð með fjár-
málin. „Við viljum ekki bara að þú
lifir af til morguns heldur að þú getir
séð fyrir þér sjálfur,“ segir Bjarni.
Til Fjölskylduhjálparinnar leituðu
fleiri um jólin en fyrri ár, að sögn Ás-
gerðar Jónu Flosadóttur, formanns
Fjölskylduhjálpar Íslands, og telur
hún að efnahagur fólks sé mun verri
og fátæktin dýpri. Mataraðstoðin
hafi farið til þeirra sem bágust hafi
kjörin og hafi úthlutun staðið fram á
aðfangadag því þá horfðust margir í
augu við það „að ekki næðust endar
saman þótt þeir hafi reynt sitt
besta,“ að sögn Ásgerðar.
Hjá Mæðrastyrksnefnd Reykja-
víkur var aðsóknin svipuð og áður þó
mikið væri um ný andlit, að sögn
Ragnhildar G. Guðmundsdóttur, for-
manns stjórnar. Bendir hún einnig á
að fleiri konur sæki aðstoð til þeirra
en karlar, sem sé bagalegt því körl-
um hætti frekar til að loka sig af án
aðstoðar. Ásgerður og Ragnhildur
telja nýtt ár ekki boða betri tíð fyrir
þá sem bágstaddir eru þar sem
stytta eigi atvinnuleysisbótatímann
á árinu. Búast þær því við að veita
þurfi mun frekari mataraðstoð nú en
áður hefur verið af þeim sökum.
laufey@mbl.is
Ljósmynd/Mæðrastyrsnefnd
Góð gjöf Félagar í Kiwanisklúbbnum Grími í Grímsey færðu Mæðrastyrks-
nefnd Akureyrar 500 þúsund krónur. Félagarnir eru 24 talsins.
Mataraðstoð hjálpar-
samtaka nýtt um jólin
Fjöldinn var svipaður Nýtt ár verður erfitt
Alaskasigling
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790
bokun@baendaferdir.is
Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Sp
ör
eh
f.
Fararstjóri: Ari Trausti Guðmundsson
Kynningarfundur verður haldinn
7. janúar kl. 20:00 hjá Bændaferðum
í Síðumúla 2, 2. hæð.
Ævintýraleg lúxussigling frá Vancouver til Seward í Alaska
undir tryggri fararstjórn Ara Trausta. Á vegi okkar verður
ótrúlegt landslag, vogskornir firðir, skógivaxnar eyjar, sker og
skriðjöklar. Viðkoma verður í helstu bæjum og borgum Alaska
þar sem við fræðumst um menningu og mannlíf.
11. - 21. ágúst