Morgunblaðið - 03.01.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
Skáldið Ingibjörg Elsa Björnsdóttir byrjaði að skrifa rúmlega fertug að aldri og segist ekki hafa verið nægilega
þroskuð fyrr. Hún blómstrar í dag og safnar fyrir prentkostnaði ljóðabókar samhliða doktorsnámi í þýðingafræði.
Malín Brand
malin@mbl.is
Ópus fyrir ömmu er ljóða-bók sem er mitt á millimódernisma og róm-antíkur en ég er að reyna
að fara meira inn í rómantíkina því
ég er orðin svolítið leið á póstmód-
ernismanum og pósthúmanism-
anum,“ segir Ingibjörg Elsa um
ljóðabókina Ópus fyrir ömmu en
hún safnar nú fyrir prentkostnaði á
vefsíðunni www.karolinafund.com.
„Ég er að reyna að koma með smá
rómantík aftur inn í skáldskapinn,“
segir hún. Ingibjörg Elsa sökkti sér
ofan í verk rómantískra skálda, ljóð
sem ort voru í lok átjándu aldar og
byrjun þeirrar nítjándu. „Samt er
ég með módernísk ljóð líka og eru
sum blönduð, önnur meira módern-
ísk og enn önnur klassískari.“ Hún
segist einingis vera að safna fyrir
prentkostnaði bókarinnar á Karol-
inafund. „Það er mjög dýrt að
prenta en fólk vill samt fá venjuleg-
ar bækur. Það vill fá ljóðabækur
sem það getur flett þanig að ég er
ekki að safna fyrir neinu öðru en
prentkostnaði.“
Í lagi að byrja seint
Ingibjörg Elsa er þýðingafræð-
ingur og þýðandi. Hún er í dokt-
orsnámi í þýðingafræði og segir að
skáldskapurinn sé tómstundagaman
sem hún nýti frístundirnar í. Samt
sem áður hafa nú þegar komið út
tvær bækur eftir hana. Annars veg-
ar ljóðabókin Rökkursónatan og
hins vegar smásagnasafnið Ferðin
til Rómar. Þær bækur voru prent-
aðar í innan við 100 eintökum og því
ekki fáanlegar lengur. Ingibjörg
Elsa vonast til að geta prentað
Ópus fyrir ömmu í 150 til 200 ein-
tökum.
Það má kannski segja að það sé
óvenjulegt að byrja að yrkja á besta
aldri og það á einmitt við um Ingi-
björgu Elsu. „Ég byrja að skrifa
seint. Ég er að verða fimmtug og
var svo lengi að þroskast. Maður
blómstrar bara svona seint. Sumir
þroskast svo seint að það kemur
ekki fyrr en um fertugt sem kemur
kannski hjá öðrum um tvítugt,“ seg-
ir hún.
Áttræð og ástfangin
Yrkisefnið er margvíslegt en
eldra fólk er Ingibjörgu Elsu hug-
leikið og ratar gjarnan í ljóð henn-
ar. „Ég skrifa um hvernig það er að
verða eldri borgari og um ástfangna
konu sem er um áttrætt og fleira í
þeim dúr,“ segir Ingibjörg Elsa sem
hefur verið töluvert innan um eldra
fólk og það veitir henni innsýn í
veruleika þess. „Ég var mikið hjá
afa og ömmu sem barn og svo hef
ég verið í Rauða krossinum að
heimsækja eldra fólk. Ég er alltaf
innan um eldri borgara.“Aðspurð
hvort hún telji gleymast að eldra
fólk hafi tilfinningar rétt eins og
yngra fólk segist hún halda það.
„Smásagan Ferðin til Rómar er um
áttræða konu sem er ástfangin. Ég
ætlaði aldrei að skrifa ástarsögu en
áttaði mig allt í einu á að ég var bú-
in að skrifa ástarsögu. Af hverju
ætti áttræð manneskja ekki að geta
orðið ástfangin? Fólk hefur sínar
tilfinningar alla ævi og mér finnst
svolítið eins og það gleymist.“ Ingi-
björg Elsa skrifaði líka smásögu um
kvenfélag sem fer í óvissuferð og
skemmtir sér konunglega. „Og þar
er nú meðalaldurinn líka svolítið
hár. Ég er að reyna að vekja athygli
fólks á því að það gerist ýmislegt
eftir fertugt. Lífinu er ekki lokið.“
Kynslóð langömmu
Titill bókarinnar, Ópus handa
ömmu, vekur athygli og kallar á út-
skýringar. „Bókin er tileinkuð lang-
ömmu minni sem hét Ingibjörg
Brynjólfsdóttir. Ég er að skrifa til
hennar. Þetta er til fólksins sem var
hér á 19. öld og bjó við allt aðrar að-
stæður, upplifði kannski Kötlugos
og þurfti að fara yfir sanda og fljót.
Þetta er eiginlega Ópus handa lang-
ömmu en mér fannst það aðeins of
langt þannig að ég breytti því í
Ópus handa ömmu,“ segir Ingibjörg
Elsa Björnsdóttir um bókina Ópus
handa ömmu sem kemur út innan
skamms, en fjöldi eintaka fer eftir
því hvernig söfnunin gengur. Enn
eru 19 dagar eftir af söfnuninni og
geta áhugasamir og þeir sem vilja
tryggja sér eintak af bókinni farið
inn á www.karolinafund.com, smellt
þar á verkefni og fundið bókina
undir Ópus handa ömmu.
Það gerist
ýmislegt
eftir fertugt
Hvort sem um tónsmíðar, skáldskap eða hvers kyns
listsköpun er að ræða skiptir aldurinn ekki máli. Þýð-
andinn og skáldið Ingibjörg Elsa Björnsdóttir var
rúmlega fertug þegar hún byrjaði að skrifa. Hún nálg-
ast nú fimmtugt og er að gefa út sína þriðju bók.
Morgunblaðið/Kristinn
Ást Ellin, ástin og eldri borgarar eru Ingibjörgu Elsu oft yrkisefni. Eldra fólk
getur nefnilega verið ástfangið og tilfinningaríkt rétt eins og það yngra.
Fegurst sá einn fuglinn syngur
sem ber í sér dauðans hjartasár.
Áður en hann úr harmi springur,
falla til jarðar kærleiks tár.
Allt sem frýs í frosti vetrar,
á sér um vorsins ljóma von.
Allt sem deyr í dauðans ranni
rís á ný sem Drottins son.
Ingibjörg Elsa
Björnsdóttir (2014)
Fegursti
fuglinn
Innihurðir
í öllum stærðum
og gerðum!
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Lei
tið
tilb
oða
hjá
fag
mö
nnu
m o
kka
r
• Hvítar innihurðir
• Spónlagðar innihurðir
• Eldvarnarhurðir
• Hljóðvistarhurðir
• Hótelhurðir
• Rennihurðir
• Með og án gerefta
ÚTSALA
38
ÞREP
Laugavegi 49 / sími 561 5813