Morgunblaðið - 03.01.2015, Page 16

Morgunblaðið - 03.01.2015, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Kostnaður við áramótaskaupið var 26 milljónir króna í ár og er hann svipaður og hann var í fyrra. Til samanburðar var kostnaðurinn við framleiðsluna 31 milljón króna ár- in 2011 og 2012. Samkvæmt upp- lýsingum frá Skarphéðni Guð- mundssyni, dag- skrárstjóra RÚV, tóku um 50 manns þátt í gerð skaupsins í ár. Þar á meðal voru óvenjumargir leik- arar ráðnir sem helgast af því að hver og einn lék í færri atriðum en gjarnan hefur verið. Aðspurður segir hann að fram- leiðandi, leikstjóri og höfundar fái fasta greiðslu fyrir skaupið óháð því hve margar vinnustundir þeir leggja til verksins. „Oftast nær hefst vinna að hluta um mitt ár, stundum fyrr og stundum ekki fyrr en að hausti. Aðalskrifin fara svo fram að hausti og tökur hefjast vanalega í nóvem- berbyrjun og standa fram í desem- ber,“ segir Skarphéðinn. Hann segir að umsjónarmenn og leikstjóri fái fullt frelsi og umboð til þess að hafa efnistökin eins og þeim hentar. „Í fyrra og fyrir þetta nýj- asta skaup töldum við tímabært að kalla til sögunnar úrval af hæfileika- ríkum konum sem tekið hafa þátt í gerð grínefnis í gegnum árin, sum- part í tilefni af því að 30 ár eru liðin síðan hið sama var gert með eftir- minnilegum árangri. Í millitíðinni hefur konum í íslensku gríni fjölgað mjög, ekki síst í hópi höfunda, og því þótti okkur tilvalið að kalla til hóp kvenna sem spannar nokkrar kyn- slóðir í íslensku gríni,“ segir hann. Líkt og önnur ár hafði fólk mis- jafnar skoðanir á skaupinu. Skarp- héðinn bendir á að það sé ekki heigl- um hent að gera öllum til geðs. Nett klikkun „Það er satt best að segja nett klikkun að höfundarnir vilji leggja annað eins á sig miðað við þær kröf- ur sem þjóðin gerir til skaupsins. Sama hvað hverjum og einum finnst um einstaka skaup þá er ég ekki viss um að þjóðin vilji breyta miklu varðandi fyrirkomulag í kringum það. Þetta er jú einn af hápunktum sjónvarpsársins ef ekki sjálfur há- punkturinn – í það minnsta sé tekið mið af áhuga, áhorfsmælingum og umtali.“ 26 milljóna króna skaup  50 manns tóku þátt í gerð áramótaskaupsins  Fá fasta greiðslu óháð vinnustundum  Erfitt að gera öllum til geðs Áramótaskaupið Þorsteinn Bachmann í hlutverki sínu í áramótaskaupinu. Kostnaðurinn við skaupið var um 26 milljónir króna líkt og í fyrra. Skarphéðinn Guðmundsson Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, tók við lyklum að ráðuneytinu úr höndum Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, í gær en hún tók við embættinu á ríkisráðs- fundi á gamlársdag. Sigrún hefur ráðið Ingveldi Sæmundsdóttur aðstoðarmann sinn en Ingveldur var áður aðstoðarmaður Sigurðar Inga í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Sigrún er jafnframt tíundi ráð- herrann í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tíundi ráðherrann í núverandi ríkisstjórn Skákþing Reykjavíkur hefst á morgun, sunnudaginn 4. janúar, kl. 14. Tefldar verða níu umferðir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörk 1½ klst. á 40 leiki auk 30 sek. á leik. 15 mínútur bætast við eftir 40 leiki auk 30 sek. á leik. Umferðir fara fram tvisvar í viku, á mið- vikudögum kl. 19.30 og á sunnu- dögum kl. 14. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12. Áhorfendur eru velkomnir. Mótið í ár er haldið sérstaklega til heiðurs fyrsta stórmeistara þjóð- arinnar, TR-ingnum Friðriki Ólafs- syni, sem verður áttræður meðan mótið stendur yfir. „Skákmenn eru hvattir til að heiðra meistarann með þátttöku sinni í aðalmóti vetr- arins sem nú fer fram í 84. sinn,“ segir í tilkynningu. Skráning fer fram á heimasíðu TR. Skákþing Reykjavík- ur haldið til heiðurs Friðriki Ólafssyni Færri bifreiðir fara um götur borg- arinnar á nagladekkjum en áður. Þrátt fyrir ófærðina og hálkuna sem einkenndi síðastliðinn desembermánuð fjölgaði ekki nagla- dekkjum. Þá velja 70% bílstjóra aðra kosti en nagladekk undir bif- reiðir í Reykjavík. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fréttatil- kynningu Reykjavíkurborgar sem send var út í gær. Hlutdeild negldra dekkja í Reykjavík var 31% í desember en 69% bifreiða reyndust á ónegldum samkvæmt niðurstöðum talningar sem gerð var 17. desember. Á sama tíma árið 2013 voru 32% bifreiða á negldum hjólbörðum og 33% árið 2012. Þá sýndi talning 13. nóvember síðastliðinn að 25% bifreiða voru á negldum dekkjum en prósentutalan var 28% á sama tíma árið áður. Reykjavíkurborg mælir ekki með nagladekkjum á götum borgarinn- ar, m.a. sökum hávaða- og svifryks- mengunar en auk þess eyða nagla- dekk malbiki hundraðfalt meira en önnur dekk. davidmar@mbl.is Færri aka um á nagla- dekkjum en áður Til leigu vandað skrifstofuhúsnæði 486 fm+ 41 fm sameign á 8. hæð í Húsi verslunarinnar. Á hæðinni ermótttökuaðstaða / biðstofa. Tíu lokaðar skrifstofur, 2 fundarherbergi og 2 stór vinnu- rými. Auðvelt er að fjölga / fækka skrifstofum þar sem parketið er fljótandi og veggir færanlegir. Tækjarými og geymslur á hæðinni. Snyrtileg eldhúsaðstaða. Kerfisloft með innfeldri lýsingu og öflugu loftræstikerfi, stillanlegt fyrir hvert rými. Atvinnueign ehf - Síðumúla 13, 108 Reykjavík - s: 577 5500 - www.atvinnueign.is Halldór Már Sverrisson Viðskiptafræðingur Löggiltur fasteignasali Löggiltur leigumiðlari 898 5599 halldor@atvinnueign.is Fasteignasala og leigumiðlun Skrifstofuhúsnæði að Kringlunni 7 Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17 DIMMALIMM ÚTSALAN er hafin 40-50% afsláttur IanaReykjavik Haust/Vetur 2014

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.