Morgunblaðið - 03.01.2015, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
TÖLVUDEILD - ÁRMÚLA 11 - SÍMI 568 1581
www.thor.is
ÞÓR HF - UMBOÐSAÐILI EPSON Á ÍSLANDI Í MEIRA EN 30 ÁR
14.00
0
EPSO
N Exp
ressio
n
Home
XP-32
2
,-
EPSON EXPRESSION HOME XP-322
Einfaldur og þægilegur þráðlaus heimilisprentari
Fjölnotatæki (skanni, ljósritun og prentun)
4 Hylki - Hentar í ljósmyndir & texta.
Þráðlaus og einfaldur í notkun
Prentar allt að 33 bls á mín (15 bls í lit á mín).
Allar helstu skipanir á skjá.
Hagkvæmur í rekstri.
Epson Expression Photo XP-760
Hágæða þráðlaus ljósmyndaprentari
Fjölnotatæki (skanni, ljósritun og prentun)
6 Hylki - Hentar sérstaklega vel í hágæða ljósmyndir.
Þráðlaus (fjöldi aðgerða í boði í iPrint appi)
Prentar allt að 32 bls á mín (bæði í lit og svörtu).
Kortalesari & blæðandi útprentun
Prentar báðummegin á pappírinn.
Allar helstu aðgerðir á stórum snertiskjá.
34.00
0
EPSO
N Exp
ressio
n
Photo
XP-76
0
,- ,-
11.50
0LW
-400
,-
8.500
LW-40
0
EPSON Límmiða prentarar
145.0
00E
B-X18 ,-
EPSON Skjávarpar í miklu úrvali
Mikið úrval af EPSON ljósmyndapappír og bleki!
Glamox Luxo
er leiðandi framleiðandi
LED lýsingarbúnaðar
og býður heildarlausnir fyrir
skrifstofuhúsnæði
Leitaðu upplýsinga hjá löggiltum rafverktökum,
lýsingahönnuðum og arkitektum
Fáðu fagmann í verkið til að tryggja rétta
meðhöndlun, endingu og ábyrgð. Það er þitt öryggi.
www.reykjafell.is
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður
Áramótin voru í alla staði friðsæl
og áfallalaus í Grundarfirði og vel
viðraði til flugeldaskota. Miðað við
ljósadýrðina yfir bænum um mið-
næturbil hafa Grundfirðingar stutt
dyggilega við eina helstu fjáröflun
Björgunarsveitarinnar Klakks um
þessi áramót. Eftir því sem næst
verður komist urðu engin slys eða
óhöpp við uppskot eldverksins, en
fregnir bárust af því að hrossastóð
hefði fælst á bænum Brimilsvöllum
í Fróðárhreppi í nágrenni Ólafs-
víkur og hlaupið sem leið lá yfir í
Eyrarsveit. En það er alkunna að
þegar hross fælast svona halda
engar girðingar. Á nýjársdags-
morgun huldi logndrífan öll um-
merki áramótagleðinnar.
Ferðamenn sáust töluvert á
ferli í Grundarfirði um jól og ára-
mót og áttu hér gistinætur hjá
ferðaþjónustuaðilum. Það þarf því
ekki að koma á óvart að uppi eru
áform um stækkun Hótel Fram-
ness á árinu og var tillaga um
breytingu á deiliskipulagi á lóðum
umhverfis það auglýst skömmu fyr-
ir áramót. Þá eru fleiri fram-
kvæmdir sem tengjast ferðamönn-
um komnar í gang því á dögunum
var flutt á staðinn tvílyft timburhús
ættað frá Akranesi sem haft hafði
viðkomu í Borgarnesi þar sem það
var gert upp áður en það svo endaði
fremst á Framnesi í Grundarfirði.
Þar með hafa Grundfirðingar eign-
ast eitt gamalt hús því að umrætt
hús var reist árið 1908 og á sér
merkilega sögu. Við húsið verður
síðan byggður lágreistur skáli og
mun gluggahlið hans snúa mót
staðardjásninu Kirkjufelli. Í þess-
um byggingum mun þegar líður að
vori vera meiningin að opna veit-
ingahús.
Veðurfar er eitthvað sem menn
tala um þegar umræðuefni skortir
en það er ekki örgrannt um að
merkja megi vissar breytingar á
veðurlagi a.m.k. ef litið er til baka
yfir liðið ár. Frá áramótum og fram
undir vor var klakalag á öllum göt-
um bæjarins því aldrei gerði al-
mennilega sunnanátt, heldur var
hálfgerð veðurleysa með frosti og
hláku til skiptis. Sumarið var
hvorki gott né vont en haustið, sér-
staklega október og nóvember, með
besta móti. Í desember snjóaði allt
á kaf einkum eftir að jólasöngva-
vertíðin hófst og farið var að syngja
„meiri snjó, meiri snjó“. Þegar svo
miklar lægðir tóku að ganga að
landinu þá sluppum við ótrúlega vel
við verstu veðrin þar sem vindáttin
var ýmist austan við suðaustrið eða
vestan við suðvestrið en loks á
fjórða degi jóla brast hann á með
ekta Grundarfjarðarsunnan og asa-
hláku og upp tók allan snjó og
Kvernártúnið hvarf undir vatn.
Þessi hvellur kom aðeins við hesta-
menn því nokkrar einingar í reið-
höll Snæfellings hurfu út í veður og
vind og Landstólpamenn sem
reistu húsið hafa vafalítið fengið
hiksta.
Viðraði vel til flugeldaskota
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Öldungur Gamla húsið sómir sér vel með Kirkjufell í baksýn.
Lögreglan í Reykjavík opnaði um áramótin end-
urbætta vefsíðu á sama léni, logregla.is. „Helstu
breytingar eru þær að við erum komin til nútímans,
ef svo má segja. Þetta er vefur lögreglunnar í land-
inu og við lögðum áherslu á það,“ segir Eva Gunn-
laugsdóttir, verkefnastjóri verkefnisins. Eins og á
gamla vefnum er þarna margt að finna, ýmiskonar
fréttir, fróðleik, eyðublöð og upplýsingar. Þá er
einnig hægt að lesa sér til um algengar spurningar
sem lögreglan fær og er þar meðal annars farið yfir
hver á réttinn í hægri rétti. „Nýi vefurinn er að-
gengilegri fyrir alla sem þurfa að leita upplýsinga.
Þetta er samt fyrsti áfanginn og við erum ekkert
hætt þótt vefurinn sé kominn í loftið. Við munum
vinna áfram í honum og tökum glöð við ábendingum
á nyrvefur@lögreglan.is. Við viljum fá ábendingar
og vinna með þær.“
Eva bendir á að hægt sé að skoða hina skemmti-
legu og margfrægu instagramsíðu lögreglunnar
með aðeins einum smelli, en síðan er trúlega ein
frægasta instagramsíða landsins og þótt víðar væri
leitað.
„Þetta var mjög skemmtilegt verkefni og margir
sem tóku þátt í því.
Næsta skref er að setja meiri fræðslu, svör við
fleiri spurningum, fleiri eyðublöð. Vinnan er rétt að
byrja.“
Ný og endurbætt vefsíða lögreglunnar
Nýi vefurinn Þar má finna ýmiskonar fréttir, fróðleik,
eyðublöð og upplýsingar.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæð-
inu, utan Kópavogs, hafa gert með
sér samkomulag um sameiginlega
akstursþjónustu fatlaðs fólks og
aldraðra. Strætó bs. var falið að
reka þjónustuna frá og með áramót-
unum, en Strætó hefur annast slíka
þjónustu í Reykjavík frá árinu 2001.
„Markmið Strætó er að tryggja
notendum akstursþjónustunnar
bæði sveigjanlegri og öruggari
þjónustu en þeir hafa áður fengið,“
segir í fréttatilkynningu frá Strætó.
„Aukinn sveigjanleiki felst meðal
annars í því að nú geta notendur
pantað ferðir með tveggja klukku-
stunda fyrirvara í stað eins sólar-
hrings áður. Þjónustuverið verður
opið mun lengur en áður, eða með-
an ökutæki fyrirtækisins eru í
akstri. Aukið öryggi notenda verður
m.a. tryggt með endurnýjun öku-
tækja akstursþjónustunnar auk
þess sem á þeim verða gerðar
reglubundnar gæða- og öryggis-
úttektir.“ gudni@mbl.is
Aukin akst-
ursþjónusta