Morgunblaðið - 03.01.2015, Page 23

Morgunblaðið - 03.01.2015, Page 23
Nánari upplýsingar áwww.rsk.is 4421000 Þjónustuver 9:30-15:30rsk@rsk.is Virðisaukaskattur og vörugjald Með nýsamþykktum lögum frá Alþingi voru gerðar breytingar á lögum um virðisaukaskatt og vörugjald fellt niður. Helstu breytingar sem taka gildi 1. janúar 2015: Almennt skattþrep verður 24% Almennt skatthlutfall virðisaukaskatts lækkar úr 25,5% í 24%. Breytingin tekur til sölu á allri skattskyldri vöru og þjónustu sem ekki er sérstaklega undanþegin eða ber virðisaukaskatt í lægra skatthlutfalli. Lægra skattþrep verður 11% Lægra skattþrep virðisaukaskatts hækkar úr 7% í 11%. Breytingin tekur m.a. til sölu á gistiþjónustu, matvöru, bókum, blöðum, tímaritum, afnotagjöldum útvarps- og sjónvarpsstöðva, aðgangi að vegamannvirkjum, heitu vatni, rafmagni og olíu til hitunar húsa og laugarvatns, geisladiska o.fl. með tónlist. Vörugjald fellur niður Lög um vörugjald nr. 97/1987 falla brott. Þar með falla niður vörugjöld á m.a. sykur, sælgæti, gúmmívörur, ýmis byggingarefni, bílahluta, vinnuvélar, lyftur, teppi, lampa, heimilistæki o.fl. Heimild til stöðvunar á atvinnurekstri Ríkisskattstjóra eru veittar heimildir til þess að stöðva atvinnurekstur skattaðila ef þeir t.d. vanrækja skyldu til færslu bókhalds eða til að nota tilskilið söluskráningarkerfi, vanrækja tilkynningarskyldu eða skilaskyldu á virðisaukaskatti, eða hafa sætt áætlun á skattinum í tvö uppgjörstímabil eða fleiri á næstliðnum tveimur árum frá yfirstandandi uppgjörstímabili. Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði verður 60% Endurgreiðsla virðisaukaskatts sem greiddur er vegna vinnu manna á byggingarstað við nýbyggingu, viðhald og endubætur íbúðarhúsnæðis verður 60%. Jafnframt fellur niður heimild til endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við frístundahúsnæði, vinnu við hönnun og eftirlit með byggingu, viðhaldi og endurbótum íbúðarhúsnæðis og frístundahúsnæðis. Heimild til endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við annað húsnæði í eigu sveitarfélaga fellur einnig niður. Framlengd er heimild til færslu ógreidds virðisaukaskatts vegna innflutnings Framlengd er heimild til þess að færa sem innskatt virðisaukaskatt sem greiða ber í tolli vegna eigin innflutnings þótt einungis hluti hans hafi verið greiddur og gildir fyrir öll uppgjörstímabil ársins 2015. Ívilnun vegna vistvænna bifreiða Heimild til þess að telja hluta söluverðs nýrra vistvænna bifreiða til undanþeginnar veltu og til að fella niður hluta virðisaukaskatts við tollafgreiðslu þeirra er framlengd og gildir út árið 2015.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.