Morgunblaðið - 03.01.2015, Page 24
24 FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
Í ferðalagið
Á vinnustaðinn
Í sumarbústaðinn
Í eldhúsið • Klippir plastfilmur og ál
• 35% sparnaður
• Ódýrari áfyllingar
• Má setja í uppþvottavél
Fæst í Hagkaupum,
Fjarðarkaupum og Byko
Engar flækjurEkkert vesen
www.danco.is
Heildsöludreifing
Wrapmaster
Skammtari fyrir plastfilmur
Hlaða Draga út og vefja Þrýsta og skera Geyma
breytingum á þessum áratug en í
heila öld þar á undan. Við búum
við allt annan veruleika í dag en
fyrir örfáum árum enda hraði
tækninýjunga mikill og nauðsyn-
legt fyrir okkur að vera á tánum,“
segir Orri sem tók við rekstri
Skipta árið 2013 þegar hann var
ráðinn forstjóri félagsins. Hann
réðst strax í breytingar á rekstr-
inum og skipulagi fyrirtækisins
auk þess sem efnahagsreikningur
félagsins var einfaldaður. Reynsla
Orra sem framkvæmdastjóri Sam-
taka iðnaðarins á árunum eftir
hrun mun án efa nýtast honum til
að stýra stærsta og elsta
fjarskiptafyrirtæki landsins inn á
nýjar slóðir í síbreytilegu um-
hverfi tölvu-, tækni- og fjarskipta-
fyrirtækja.
Skýrari efnahagsreikningur
Bókfært tap Skipta, móð-
urfélags Símans og fleiri fyr-
irtækja, nam tæplega sautján
milljörðum króna í fyrra og segir
Orri að efnahagsreikningurinn
endurspegli nú betur umfang fé-
lagsins. „Breytingarnar hjá okkur
hafa verið tvenns konar. Annars
vegar hefur farið töluverð vinna í
efnahagsreikninginn og hins vegar
í reksturinn. Talsverðu af skuldum
félagsins var breytt í hlutafé sem
dregur niður vaxtakostnað hjá fé-
laginu. Þá lækkaði viðskiptavild
um 14 miljarða. Þær breytingar
auk lækkunar á skattainneign sem
útkljáð var af dómstólum í lok árs
2013 og byrjun árs 2014 hafa
minnkað efnahagsreikninn og gert
hann skýrari.“ Orri segir einnig
hafa verið gengið frá sölu á kröf-
um Símans í gamla Glitni fyrir
ásættanlegt verð. „Söluverðið er
nokkuð hærra en bókfært virði
þeirra var skráð hjá okkur og
þetta aftur einfaldar og skýrir
okkar efnahagsreikning og dregur
úr allri óvissu. Við erum því betur
í stakk búin til að takast á við
breytta tíma en auðvitað er svo
aðhald í rekstrinum verkefni sem
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Tækninýjungar hafa kallað á tölu-
verðar breytingar á rekstri og
starfsemi fjarskiptafyrirtækja á
21. öldinni enda stöðugar framfar-
ir og þróun á sviði tækni og vís-
inda, sem hafa í för með sér
breytt rekstrarfyrirkomulag fyr-
irtækja í tækni- og fjarskiptageir-
anum. Orri Hauksson, forstjóri
Símans, segir spennandi og áhuga-
verða tíma framundan fyrir fram-
sækin fjarskiptafyrirtæki en gert
er ráð fyrir að Síminn og Skipti,
sem hafa verið móðurfélag Símans
og annarra fyrirtækja á borð við
Mílu og Skjáinn, muni renna sam-
an og er það liður í breytingum á
bæði rekstri og efnahag samstæð-
unnar. „Viðskiptamódel Símans og
annarra fyrirtækja á fjar-
skiptamarkaðnum hafa tekið meiri
lýkur aldrei þó andrýmið sé meira
í dag.“
Samkomulag við
Samkeppniseftirlitið
Sameining Skipta og Símans fel-
ur í sér margs konar breytingar
innan samstæðunnar. Síminn tek-
ur við sem móðurfélag og breyt-
ingar verða á dótturfélögunum
Mílu og Sensa. „Sensa er öflugt
fyrirtæki í eigu Símans sem alltaf
hefur skilað hagnaði og farið fram
úr öllum okkar væntingum. Við er-
um að fjórfalda starfsemi fyr-
irtækisins með því að færa upplýs-
ingatæknihluta Símans inn í Sensa
og vonumst til að við það eflist það
enn frekar og styrkist. Varðandi
Mílu er í gildi samkomulag við
Samkeppniseftirlitið sem tekur
breytingum í tengslum við samein-
inguna sem gerir Mílu enn sjálf-
stæðara fyrirtæki en það er í dag.
Þannig verður Eftirlitsnefnd um
jafnan aðgang fjarskiptafyrirtækja
efld og starfsemi hennar gerð
skýrari auk þess sem Síminn mun
ekki hafa meirihluta í stjórn
Mílu.“ Þetta fyrirkomulag á stjórn
Mílu og aukið hlutverk eftirlits-
nefndarinnar mun koma öllum að-
ilum á markaði til góða að sögn
Orra.
Keppa við Apple og Google
Fjarskiptafyrirtæki landsins eru
með reikningssamband við flesta
einstaklinga og nærri öll fyrirtæki
landsins. Síminn er með talsvert
stóran hluta af þessum viðskiptum
en Orri segir umfang viðskiptanna
eiga eftir að breytast á komandi
árum. „Það sem við innheimtum
úr þessum viðskiptum verður allt
annað í lok þessa áratugar en í
byrjun hans. Hefðbundnar tekjur
fjarskiptafyrirtækja í Vestur-
Evrópu munu mögulega helm-
ingast út þennan áratug og til að
bæta fyrir þá sviðsmynd verðum
við að auka vöruúrval, pakka þeim
upp á nýtt og sýna aðhald í öllum
kostnaði til þess að halda í horf-
Stýrir Símanum inn í framtíðina
Tekið til í rekstrinum og efnahagsreikningurinn einfaldaður Þróa nýjar vörur og finna fyrir
samkeppni um virðisauka við stærstu tölvurisa heims Síminn hefur aukið fjárfestingar sínar
Forstjóri Orri Hauksson tók við
rekstri Símans í lok árs 2013 og
hóf strax að vinna að einföldun
efnahagsreiknings félagsins,
endurskipulagningu og leggja
línurnar fyrir framtíðarvöxt og
þróun fyrirtækisins.