Morgunblaðið - 03.01.2015, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
Karl Eskil Pálsson
karlesp@simnet.is
„Maður verður alltaf að vera
bjartsýnn, slíkt kemur manni í
flestum tilvikum lengra. Ég fagna
allri umræðu um byggðamál, enda
er full þörf á að ræða þetta stóra
mál. Vissulega kemur fyrir að um-
ræðan fari út um víðan völl, en
fyrst og fremst er jákvætt að mál-
ið sé komið á dagskrá,“ segir Stef-
án Vagn Stefánsson, formaður
byggðarráðs Skagafjarðar og for-
maður Norðvesturnefndarinnar,
sem ríkisstjórnin setti á laggirnar
á síðasta ári. Nefndin hefur skilað
ríkisstjórninni tillögum sínum til
eflingar Norðurlandi vestra. Með-
al annars er lagt til að höfuð-
stöðvar Rarik verði fluttar á Sauð-
árkrók og rekstur skipa
Landhelgisgæslunnar í Skaga-
fjörð.
„Ég bjóst við því að tillög-
urnar þættu umdeildar, en hlut-
verk nefndarinnar er aðeins að
leggja fram hugmyndir, en ríkis-
stjórnin fer svo með ákvörðunar-
valdið í þessum efnum. Þegar
nefndin var skipuð í maí voru efa-
semdaraddir ekki háværar, en
núna stendur ekki á viðbrögðum.
Þetta kom mér svolítið á óvart.
Ég er mikill talsmaður lands-
byggðarinnar, sem á sannarlega
undir högg að sækja á margan
hátt. Þjóðin þarf þess vegna að
standa saman um að verja lands-
byggðina. Að mínu viti á umræðan
ekki að snúast um réttmæti eða
tilvist nefndarinnar. Við kappkost-
uðum að vinna þetta eins mikið og
hægt var með stjórnvöldum, enda
um að ræða samstarfsverkefni
stjórnvalda og sveitarfélaga.“
Hugsanlega fordæmi
Stefán Vagn segir að boltinn
sé nú hjá ríkisstjórninni. Hann
bendir jafnframt á að opinberum
störfum hafi fækkað mikið á
Norðurlandi vestra á undan-
förnum árum, sérstaklega í Skaga-
firði. Þess vegna þurfi að grípa til
opinberra úrræða.
„Þessi nefnd hefur sem sagt
skilað sinni skýrslu og það kæmi
mér verulega á óvart ef ríkis-
stjórnin stendur ekki við loforð
um að flytja opinber störf út á
land og dreifa þjónustunni. Ég er
sannfærður um að hingað norður
verða flutt opinber störf. Ef vel
tekst til er hugsanlega komið for-
dæmi fyrir önnur landsvæði, sem
þarf klárlega að styrkja með ein-
hverjum hætti.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skagafjörður Opinberum störfum hefur fækkað á Norðurlandi vestra og formaður byggðarráðs Skagafjarðar seg-
ir nauðsynlegt að fjölga opinberum störfum á svæðinu. Hann er sannfærður um að það verði gert.
Boltinn í byggðamál-
um hjá ríkisstjórninni
Formaður Norðvesturnefndar sannfærður um
að opinber störf verði í auknum mæli flutt út á land
Morgunblaðið/Styrmir Kári.
Flutningur Norðvesturnefndin vill að höfuðstöðvar RARIK verði fluttar á
Sauðárkrók og skiparekstur Landhelgisgæslunnar í Skagafjörð.
FRAMUNDAN 2015 JANÚAR FEBRÚAR MARS APRÍL MAÍ JÚNÍ JÚLÍ ÁGÚST SEPTEMBER OKTÓBER NÓVEMBER DESEMBER
Áttu fullt af græjum sem liggja ótengdar?
Leyfðu okkur að aðstoða!
S: 444 9911 – hjalp@taeknisveitin.is – www.taeknisveitin.is
Tengjum heimabíóið
Setjum upp þráðlaust net
Standsetjum nýju tölvuna
Tengjum saman ólíkar græjur
Sjónvarpsmerki í öll sjónvörpin
Lagnavinna á heimilinu
...og margt, margt fleira!
Hvað gerum við?
TÆKNISVEITIN
til þjónustu reiðubúin!
Við komum til þín, veitum ráðgjöf, setjum tækin
upp, gerum við, leggjum lagnir, tengjum tækin
saman við önnur og fáum allt til að virka.
Svo færðu kennslu líka ef þörf er á því.
Gleðilegt ár!
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
Þökkum ánægjuleg viðskipti á liðnu ári