Morgunblaðið - 03.01.2015, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 03.01.2015, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015                                    ! "# "$% $ %  % "%% # # $ &'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 $$ !$# "!# "%%% $" % $ $!% "%  " # " !$ "! "$% $"% %!#  "%  #! # $ "%! Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Gúmmíframleiðandinn Hexpol og matvörurisinn ICA eru hástökkvarar síðasta árs, sé litið til stórfyrirtækja í sænsku kauphöllinni. Gengi bréfa í Hexpol hækkuðu um 54% og gengi bréfa í ICA um 52% á árinu. Þá hækkaði gengi bréfa í tækja- framleiðandanum Husquarna um 51% á árinu. Á sama tíma hrapaði gengi bréfa Af- rica Oil og Enquest um nærri 70% og gengi bréfa í sænska snyrtivörufram- leiðandanum Oriflame lækkuðu um 40%. Frá þessu er greint í Sveriges Dagblad. Hexpol og ICA há- stökkvarar í Svíþjóð ● Tæpum 7.200 tonnum af rækju var landað á árinu 2014, sem er mun minna en á árinu 2013 þegar 11 þúsund tonn- um var landað. Um þetta er fjallað í Aflafréttum. Rækjuveiðar voru frjálsar til veiðar í þrjú ár en urðu háðar kvóta þann 1. september 2014. Alls 52 skip lönduðu aflanum árið 2013 en þeim fækkaði niður í 44 í fyrra. Aflahæsti rækjubáturinn árið 2014 var Sigurborg SH sem landaði samtals 687 tonnum í 44 róðrum. Rækjuaflinn minnkar töluvert á milli ára STUTTAR FRÉTTIR ... VIÐTAL Sigurður Nordal sn@mbl.is Fimm milljarða lánveiting Norræna fjárfestingarbankans (NIB) til Isavia, sem undirrituð var skömmu fyrir jól, er sú fyrsta sem bankinn veitir til Íslands án ríkisábyrgðar frá efnahagshruni. Í samtali við Morg- unblaðið segir Henrik Normann, bankastjóri NIB, það ekki vera svo að bankinn hafi horfið frá Íslandi í kjölfar bankahrunsins og sé að snúa aftur. „Við töpuðum vissulega miklum fjármunum, að líkindum stærsta tap í sögu bankans í einu landi,“ segir bankastjórinn, en Norræni fjárfest- ingarbankinn er í sameiginlegri eigu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkj- anna. „Það er hins vegar ekkert ann- arlegt við það að bankar tapi fé þeg- ar efnahagur lands nánast hrynur. Aftur á móti má spyrja sig hvort tap- ið hafi verið óþarflega mikið. Ég vil þó ekki dvelja of lengi við þær vangaveltur, heldur er mun áhugaverðara að reyna að átta sig á því hvað við höfum lært af þessu, sem ég held að sé einkum tvennt. Bankinn þarf að vinna betur á móti hagsveiflunni og þannig hefðum við hugsanlega átt að draga úr lána- starfsemi til Íslands strax og merkja mátti aukna þenslu í hagkerfinu. Hins vegar verðum við að gæta þess betur að í samningsskilmálum okkar séu ákvæði sem gefa okkur færi á gjaldfellingu lána, ef staða banka eða fyrirtækja breytist snögglega.“ Tapið tæplega 12 milljarðar Heildarlánveitingar Norræna fjárfestingarbankans til Íslands nema um 76 milljörðum króna nú um áramótin. Henrik Normann áætlar að tap NIB vegna bankahrunsins hér á landi sé um 75 milljónir evra, eða sem svarar til 11,6 milljarða króna á núverandi gengi. Að hans sögn er það að langmestu leyti vegna lánsfjármögnunar til bankanna, sem þeir lánuðu svo áfram til lítilla og meðalstórra fyrirtækja hér á landi. „Ég blygðast mín ekki fyrir að bankinn hafi tapað fjármunum vegna verkefna sem hann taldi skyn- samleg, enda má alltaf búast við slíku í bankastarfsemi. Hins vegar tel ég mikilvægt að við séum til stað- ar þegar kreppir að og ég vona að við höfum reynst vel í að styðja við end- urskipulagningu fyrirtækja sem lentu í ólgusjó. Því fjármálaþjónusta snýst ekki um að rétta fram regnhlíf- ina í sólskini en heimta hana til baka þegar fer að rigna. Við eigum að vera til staðar til langs tíma.“ Íslenskt efnahagslíf snýr aftur Bankastjóri NIB lítur því ekki svo á að bankinn sé að snúa aftur á ís- lenskan fjármálamarkað eftir fjar- veru. „Það er mun frekar íslenskt efnahagslíf sem hefur snúið til baka. Við höfum alltaf haft áhuga á að lána til Íslands en aðstæður hafa verið með þeim hætti að hér hafa ekki ver- ið verkefni af þeirri stærðargráðu að þau henti okkar útlánastefnu. Nú þegar efnahagsástandið fer batnandi opnast tækifæri til lánveitinga.“ Henrik Normann segir NIB líta helst til verkefna sem styðji við bætta samkeppnisstöðu og sjálf- bærni í umhverfismálum á starfs- svæði bankans. Hann einbeiti sér því einkum að ýmiskonar innviðaverk- efnum, fremur en hótelbyggingum svo dæmi sé tekið. En í ljósi þess taps sem bankahrunið olli, kemur samstarf við bankana til greina á ný? „Gjaldeyrishöftin setja strik í reikninginn þegar kemur að starf- semi viðskiptabanka, en til lengri tíma litið sjáum við íslensku bankana sem góða samstarfsaðila. Þegar við metum lántakendur lítum við til lánshæfis og gæða eigna. Okkar markmið er að bæta einhverju við, því ef innlenda fjármálakerfið getur gert hlutina með ódýrari og betri hætti er engin ástæða til þess að við komum nærri.“ Henrik Normann er hóflega bjart- sýnn um horfur í efnahagsmálum á Norðurlöndunum. „Ef við lítum á svæðið í heild sinni er ástandið frem- ur þunglamalegt. Hins vegar eru já- kvæð merki víða í einstökum lönd- um, meðal annars á Íslandi. Við höfum gjarnan tilhneigingu til þess að líta fram hjá því jákvæða.“ Tap NIB í bankahruninu hið stærsta í einu landi Morgunblaðið/Ómar Fjármögnun Bankastjóri Norræna fjárfestingarbankans segir ýmis jákvæð teikn á lofti í efnahagsmálum á Norðurlöndunum, ekki síst á Íslandi. Lánveitingar NIB til Íslands » Heildarlánveitingar nema um 76 milljörðum króna. » NIB hefur veitt tvö lán til Ís- lands frá bankahruninu 2008. » Lánssamningur við Lands- virkjun að fjárhæð 70 milljónir dala (9 milljarðar króna) var undirritaður í mars 2011 vegna Búðarhálsvirkjunar. » Lán til Isavia að fjárhæð 32 milljónir evra (5 milljarðar króna) undirritað í desember.  Bankastjóri Norræna fjárfestingarbankans segir að læra megi af reynslunni ● Fjármálaeftirlitið (FME) hefur metið Eignarhaldsfélagið Borgun slf. hæft til að fara með virkan 25% eignarhlut í greiðslukortafyrirtækinu Borgun. Sem stendur á Eignarhaldsfélagið Borgun 24,96%. Í lok nóvember 2014 seldi Landsbankinn 31,2% hlut sinn til fé- lagsins á tæpa 2,2 milljarða króna. Þá hefur FME metið Íslenska eigna- stýringu hf., Pivot ehf. og Straum fjár- festingabanka hf. hæf til að fara með aukinn virkan eignarhlut í fjármálafyr- irtækinu Íslenskum verðbréfum sem nemur 100%. FME samþykkir nýtt eignarhald Borgunar og ÍV Arctic selolía Nýtt útlit - meiri virkni Einstök olía Meiri virkni Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Læknar mæla með selolíunni Gott fyrir: Maga- og þarmastarfsemi Hjarta og æðar Ónæmiskerfið Kolesterol Liðina Selolían fæst í: apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og MelabúðSími 555 2992 og 698 7999 Nýtt! D-vítamínbætt Kauptúni 3 / Garðabæ / Sími: 564-3364 Ævintýraleg gæludýrabúð kíktu í heimsókn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.