Morgunblaðið - 03.01.2015, Blaðsíða 40
40 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
Ó
lö
f
B
jö
rg
STOFNAÐ1987
einstakt
eitthvað alveg
Ó
Ú r v a l e i n s t a k r a m á l v e r k a o g l i s t m u n a e f t i r í s l e n s k a l i s t a m e n n Sk i pho l t 50a | S ím i 581 4020 | www.ga l l e r i l i s t . i s
Ullarnærföt í útivistina
Þinn dagur, þín áskorun
OLYMPIA
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími 561 9200 • run@run.is • www.run.is
Sölustaðir:
Útilíf • Vesturröst • Hagkaup • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar
Verslunin Bjarg, Akranesi • Verslunin Tákn, Húsavík
Verslunin Blossi, Grundafirði • Kaupfélag Skagfirðinga
Bjarnabúð, Bolungarvík • Hafnarbúðin Ísafirði
Efnalaug Vopnafjarðar • Nesbakki, Neskaupsstað
Kaupfélag V-Húnvetninga • Heimahornið, Stykkishólmi
Eyjavík, Vestmannaeyjum
30
ÁRA
100% Merino ull
Góð og hlý heilsársföt
fyrir karla og konur
Stærðir: S – XXL
Þorsteinn Ásgrímsson
thorsteinn@mbl.is
Það verður æ algengara að skip sem
flytja flóttamenn um Miðjarðarhafið
séu látin sigla á sjálfstýringu án
áhafnar, þannig að ef eitthvað kemur
upp á eru þau í raun stjórnlaus.
Skipverjar á varðskipinu Tý fóru
um borð í flutningaskipið Ezadeen í
fyrrinótt og tóku það í tog, en það
sigldi stjórnlaust án áhafnar í slæmu
veðri. Fylgst hafði verið með skipinu
í nokkurn tíma, en það átti upphaf-
lega að fara frá Kýpur til Frakk-
lands.
Hrafnhildur Brynja Stefánsdóttir,
upplýsingafulltrúi Landhelgisgæsl-
unnar, segir í samtali við mbl.is að
svo virðist vera sem stærri og stærri
skip séu notuð í svona flutninga.
Venjulega sé um að ræða einstak-
linga eða skipulögð glæpasamtök
sem taki aleigu fólks upp í farmiða
og svo séu skipin send af stað. Hún
segir að samkvæmt upplýsingum frá
áhöfn Týs hafi ástand um borð í
flutningaskipinu verið ágætt eftir að
matvælum og vatni hafi verið komið
til fólksins. Það hafi aftur á móti ver-
ið bæði matar- og vatnslaust í
nokkra daga þar á undan.
Í varðskipinu eru menntaðir
sjúkraflutningamenn sem fóru um
borð í flutningaskipið. Hrafnhildur
segir að þeir hafi gert að einhverjum
minniháttar meiðslum, en ekkert að-
kallandi hafi komið upp.
Hefur komið að fjórum málum
Mjög slæmt veður var á þessum
slóðum og Hrafnhildur sagði að ferð-
in sæktist illa. Skipið átti að koma til
hafnar síðdegis í gær.
Mikill fjöldi fólks drukknar ár
hvert í þessum ferðum, en mikið er
einnig um að litlir bátar sem ekki eru
gerðir fyrir lengri siglingar séu not-
aðir. Eru þeir einnig oftast yfirfullir
af fólki sem leitar betra lífs norðan
Miðjarðarhafsins.
Varðskipið Týr hefur undanfarin
sex ár komið að gæslu á Miðjarðar-
hafinu á vegum Frontex-landa-
mæraeftirlitsins, en það hélt utan í
lok nóvember. Á rúmlega mánuði
hefur varðskipið komið að fjórum
málum sem svipar til þessa máls.
Hrafnhildur segir að í tveimur til-
fellum hafi þurft að taka skipin í tog,
en að í þriðja skiptið hafi skipi sem
gat sjálft siglt verið fylgt í höfn. Í
heild hefur fjöldi farþega í þessi fjög-
ur skipti verið um tvö þúsund að
sögn Hrafnhildar.
Flóttafólkið er flutt til þess lands
sem á landhelgi þar sem skipið er
stöðvað, en það fer í flestum tilfellum
í flóttamannabúðir á viðkomandi
stað. Hrafnhildur segir að í þetta
skiptið fari það til Ítalíu, en þar muni
svo þarlend stjórnvöld taka ákvörð-
un um framhald málsins.
Láta skip sigla stjórn-
laust með flóttafólk
150 km
Hundruðum flóttamanna var bjargað úr tveimur áhafnarlausum skipum
Áhafnarlaus skip stöðvuð í Miðjarðarhafi
Adríahaf
Í TAL ÍA
KRÓATÍA
Heimildir: Vesselfinder.com, MarineTraffic
Ítalskir sjóliðar fóru um
borð í flutningaskip sem
var á reki við ströndina
Nær 770 flóttamenn voru
um borð, flestir frá Sýrlandi
Varðskipið Týr tók áhafnarlaust
flutningaskip í tog um 65 km
frá ströndinni
450 flóttamenn um borð
Sikiley
TYRKLAND
GRIKKLAND
Miðjarðarhaf
Corfu
2. janúar
30. desember
Varðskipið Týr tók flutningaskip í tog á Miðjarðarhafi
Kaupa gömul skip
» Varðskip hafa bjargað
tveimur flutningaskipum sem
sigldu stjórnlaust með flótta-
fólk undan suðurströnd Ítalíu.
» Skipin eru meira en 40 ára
gömul. Glæpasamtök geta
keypt slík skip fyrir minna en
130 milljónir króna.
Nálastungulæknirinn Edurne Cornejo stingur nálum í kattuglu (Athene
Noctua) í Brinzal, lækningastöð í almenningsgarði vestan við Madríd. Ugl-
an flaug á reykháf verksmiðju í austurhluta borgarinnar fyrir rúmum
tveimur mánuðum. „Þegar hún kom hingað fyrst gat hún ekki staðið upp.
Seinna gat hún tekið nokkur skref í einu. Nú er hún byrjuð að fljúga,“ seg-
ir Cornejo sem hefur haft ugluna í nálastungumeðferð í tíu vikur.
Ár hvert eru um það bil 1.200 fuglar fluttir í lækningastöðina. Um 70%
ná sér og þeim er komið aftur út í náttúruna.
Bjarga hundruðum fugla á ári
AFP
Ugla í nálastungumeðferð