Morgunblaðið - 03.01.2015, Blaðsíða 53
FRAMUNDAN 2015JANÚAR FEBRÚAR MARS APRÍL MAÍ JÚNÍ JÚLÍ ÁGÚST SEPTEMBER OKTÓBER NÓVEMBER DESEMBER 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Grímur Sæmundsen segir síðasta
ár hafa verið gott fyrir ferðaþjón-
ustuna og bendi flest til þess að á
árinu 2015 verði sambæriegur
vöxtur og árin á undan. Aðalverk-
efni ferðaþjónustunnar sé kannski
fyrst og fremst að glíma við of
hraðan vöxt.
Grímur er formaður Samtaka
ferðaþjónustunnar. „Þessi mikli
vöxtur og meðfylgjandi uppbygg-
ing hefur átt sinn þátt í að orðið
hafa vatnaskil í afstöðu þjóð-
arinnar til greinarinnar. Ferða-
þjónustan er farin að njóta meiri
viðurkenningar sem burðargrein í
íslensku atvinnulífi en var lengi
vel álitin hálfgerð aukabúgrein og
sumariðja. Í dag sjáum við ferða-
þjónustu skila þjóðarbúinu miklum
tekjum og ekki fer milli mála að
það var fyrst og fremst ferðaþjón-
ustan sem hjálpaði landinu að
komast í gegnum hrunið með þeim
miklu gjaldeyristekjum, sem hún
hefur skapað á undanförnum ár-
um.“
Síðasta ár voru stigin mik-
ilvæg fyrstu skref í breytingum á
lagaumhverfi greinarinnar og von
er á enn frekari breytingum á
nýju ári. Grímur segir lagaum-
hverfi ferðaþjónustunnar orðið
áratugagamalt og ekki í samræmi
við umfang greinarinnar í dag.
Segir hann ákveðna vinnu fram-
undan, m.a. um útfærslu virð-
isaukaskattsreglna ferðaþjónust-
unnar, sem urðu að lögum á
nýafstöðnu haustþingi og eins
verði mjög mikilvægt að fá far-
sæla lausn á gjaldtöku vegna
verndar og uppbyggingar ferða-
mannastaða.
Passi eða
gistináttagjald?
Hann segir náttúrupassa eina
leið til að bregðast við vaxandi
ágangi á vinsælum ferða-
mannastöðum. Samtök ferðaþjón-
ustunnar hefðu þó viljað sjá gjald-
tökuna í öðru formi. „Mikilvægt er
að koma á viðvarandi fyr-
irkomulagi sem tryggir verndun
náttúrunnar og uppbyggingu
ferðamannastaða og um þetta rík-
ir almenn sátt. Hins vegar hafa
menn ekki gengið í takt hvað
varðar innheimtu fjárins. Samtök
ferðaþjónustunnar komust að
þeirri niðurstöðu eftir mikla og
markvissa vinnu með félagsmönn-
um að einfaldast, gerlegast og
skilvirkast væri að nýta gistinátt-
agjaldið, sem þegar er innheimt,
og gera um leið ákveðnar breyt-
ingar sem myndu taka íbúða-
gistingu inn í gistináttagjalds-
kerfið. Staðan er hins vegar sú
núna að stjórnvöld vilja fara aðra
leið. Samtök ferðaþjónustunnar
eru með sterka sýn á nátt-
úruvernd, enda er okkar ósnortna
náttúra aðalaðdráttarafl Íslands
og sú vara sem greinin er fyrst og
fremst að selja. Það er gríðarlega
mikilvægt að farsæl lausn finnist á
þessu verkefni nú á vorþingi.“
Með uppganginum í ferða-
þjónustunni heyrast æ oftar radd-
ir sem lýsa áhyggjum yfir því að
vöxturinn sé of hraður og vara við
bólumyndun í greininni. Grímur er
á þeirri skoðun að það væri þægi-
legra fyrir greinina að vaxa um
10% á ári frekar en 20%. „Þessi
mikli vöxtur er alveg á mörkum
þess sem hollt getur talist og
svona hröðum vexti fylgja
ákveðnir vaxtarverkir. Við erum
t.d. í dag þegar að finna fyrir
skorti á bæði gistiaðstöðu yfir há-
önnina og vöntun á afþreying-
arvalkostum en við því er verið að
bregðast. Hins vegar held ég að
vöxturinn í ferðaþjónustunni sé
allt annað en bóla og engin teikn á
lofti um annað en að greinin geti
áfram verið burðargrein í gjald-
eyrissköpun þjóðarinnar næstu
áratugi ef rétt er á spilum haldið.“
Ævintýri á norðurslóðum
Grímur nefnir að í heildar-
samhenginu sé Ísland að fá til sín
aðeins agnarlítinn hluta ferða-
manna á heimsvísu og því sé mikið
eftir af kökunni. Það sé langt frá
því að allir þeir sem á annað borð
vilja heimsækja Ísland hafi þegar
heimsótt landið. „Þá sýna rann-
sóknir að hinn almenni ferðamað-
ur sækist i vaxandi mæli eftir
ferðalögum sem fela í sér upplifun
en þar stendur Ísland vel að vígi.
Hjálpar það líka að almennur
áhugi á norðurslóðum er vaxandi.
Ísland er orðið þekktur áfanga-
staður, fólk veit að landið er
öruggur staður og um 90% ferða-
langa gefa Íslandsheimsókninni
hæstu einkunn í könnunum.“
Mikill árlegur vöxtur þýðir
ekki að ferðaþjónustan geti slakað
á og einfaldlega fylgst með krón-
unum koma í kassann. Grímur
segir eitt af verkefnum nýja árs-
ins vera mótun framtíðarsýnar
fyrir greinina en í október setti
ráðherra ferðamála af stað vinnu-
hóp, samvinnu við SAF, um það
mál og von er á niðurstöðu með
vorinu. „Greinin þarf að horfa á
meira en eingöngu fjölgun gesta
og reyna t.d. að leita leiða til að
laða til landsins betur borgandi
ferðamenn. Einnig er mikið verk
óunnið í að fjölga ferðamönnum
utan háannatíma, dreifa gestum
okkar betur um allt landið og gera
Ísland þannig að eftirsókn-
arverðum áfangastað árið um
kring. Þar kemur markaðs-
verkefnið „Ísland allt árið“, mark-
aðsstarf „Meet in Reykjavík“ og
fleiri aðila sterkt inní myndina.“
Móta þarf framtíðarsýn fyrir greinina
Örum vexti í
ferðaþjónustu fylgja
ákveðnir vaxtaverkir
Morgunblaðið/Golli
Upp Grímur Sæmundsen reiknar
ekki með að hægi á vextinum.
Loke Auriga Modular Las Vegas
Aves NikitaCatwalk Selene
Opið:
Mánudag til föstudag kl.10 -18
Laugardag kl. 11- 16
Sunnudag kl. 12 - 16
www.rafkaup.is
Úrval ljósa á betra verði
10-70%
afslátt
ur