Morgunblaðið - 03.01.2015, Qupperneq 60
60
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
Karl Eskil Pálsson
karlesp@simne.is
„Staða þjóðkirkjunnar er sterk
að mínu mati. Mikill meiri hluti
þjóðarinnar treystir kirkjunni og
leitar til hennar bæði í gleði og
sorg. Skólar leita til presta þegar
áföll verða og prestar sinna mikilli
sálgæslu alls staðar um landið.
Kirkjan hefur á að skipa þéttriðnu
neti fagfólks um allt land, sem er
tilbúið að koma til hjálpar við afar
margvíslegar aðstæður. Mikill
fjöldi sjálfboðaliða vinnur að því all-
an ársins hring að halda kirkju-
húsum landsins við, halda þeim
hreinum og fallegum fyrir athafnir
sem oft verða með skömmum fyr-
irvara. Alls staðar er messað um
hátíðar og þá er kirkjusókn góð.
Barna- og æskulýðsstarf kirkj-
unnar er mjög sterkt og þar stönd-
um við feti framar en nágranna-
þjóðir okkar. Árlega er haldið
Landsmót æskulýðsfélaganna og
þar mæta um 600 unglingar, þannig
að staðan er óneitanlega sterk,“
segir séra Solveig Lára Guðmunds-
dóttir, vígslubiskup á Hólum í
Hjaltadal, þegar hún er spurð um
stöðu þjóðkirkjunnar um þessar
mundir.
Þekkir innviði kirkjunnar
vel
Séra Solveig Lára var kjörin
vígslubiskup á Hólum í júní 2012 og
tók við starfinu 1. september það
ár. Hún var sóknarprestur á
Möðruvöllum í Hörgárdal í 12 ár og
sóknarprestur á Seltjarnarnesi í 14
ár og prestur í Bústaðakirkju í
Reykjavík í 3 ár. Hún þekkir því
innviði og rekstur þjóðkirkjunnar í
þaula. Séra Solveig Lára segir að
fjárhagsvandi kirkjunnar sé helsta
vandamálið nú um stundir.
„Fyrir hrun vorum við með 138
embætti presta, en nú aðeins 107
embætti. Auk þess hafa sóknar-
gjöldin verið skert umfram annað í
samfélaginu. Á síðasta ári voru þau
793,53 kr. á mánuði. Á þessu ári
verður það skv. fjárlagafrumvarp-
inu kr. 810, en væri u.þ.b. 1.106 kr.
ef farið væri að sóknargjaldalögun-
um. Þetta er gríðarleg skerðing
bæði fyrir stóra og smærri söfnuði,
sem hefur haft það í för með sér að
stóru söfnuðirnir hafa þurft að
segja upp æskulýðsleiðtogum og
smærri söfnuðirnir eiga rétt svo
fyrir organistakostnaði um hátíð-
ar.“
Hún vonar að ekki þurfi að
fækka prestaköllum enn frekar.
„Vonandi ekki. Það er útilokað að
fækka enn frekar prestum í land-
inu. Hitt er hins vegar annað mál að
tilgangur sameininga prestakalla er
að auka samstarf og jafna þjónustu-
byrðina og það er til góðs, en sam-
einingar prestakalla þar sem prest-
um á svæðinu fækkar er ekki
valkostur að mínu viti.“
Vonar að fjölgi
á ný í kirkjunni
Samkvæmt bókhaldi Hagstofu
Íslands hefur meðlimum þjóðkirkj-
unnar fækkað á undanförnum ár-
um. Þetta á bæði við um fjölda og
hlutfall landsmanna. Samkvæmt
nýjustu tölum voru rúmlega 244
þúsund manns í þjóðkirkjunni á ný-
liðnu ári, en um aldamótin voru
meðlimir um 247 þúsund. Á sama
tíma hefur landsmönnum fjölgað.
Séra Solveig Lára vonar að töl-
urnar verði á nýjan leik jákvæðar.
„Ég sé ekki fyrir mér að mikið
fleiri segi sig úr þjóðkirkjunni af því
að ég held að fólk sé farið á átta sig
á þeirri staðreynd að kirkjan skiptir
máli og ef þau segja sig úr þjóð-
kirkjunni þá verði þróunin sú að við
getum ekki haldið uppi því þjón-
ustustigi sem við höfum núna, sem
byggist á því að við þjónum öllum.“
Ekki alltaf sanngjörn um-
ræða
Hún segir að opinber umræða
um þjóðkirkjuna hafi ekki alltaf
verið sanngjörn, hins vegar eigi
kirkjan að vera áberandi í um-
ræðunni.
„Það er alltaf matsatriði
hversu sanngjörn þjóðfélags-
umræða er. Við sem sinnum bisk-
upsþjónustunni í landinu núna höf-
um lagt okkur fram við að hlusta á
fólk, heimsækja söfnuði og bregðast
við þeim vandamálum sem upp
kunna að koma strax. Það er gríð-
arlega mikilvægt. En auðvitað má
alltaf hlusta betur og eiga samtal
við þjóðina.“
Sóknarfæri
Séra Solveig Lára segir að
sóknarfæri þjóðkirkjunnar liggi í
því að þjóna fólkinu í landinu sem
best.
„Þá fjölgar þeim sem vilja til-
heyra kirkjunni. Vandinn er að nú
tilheyra aðeins 75% þjóðarinnar
þjóðkirkjunni, en 95% þiggja útfar-
arþjónustu kirkjunnar og yfir 80%
barna láta ferma sig í kirkjunni. Við
erum því að þjóna miklu stærri hópi
en þeim sem tilheyra kirkjunni. En
motto kirkjunnar er að þjóna öllum
burt séð frá trúfélagsaðild. Margir
sögðu sig úr kirkjunni á tímabili
vegna þess að þau vildu mótmæla
yfirstjórn kirkjunnar, en áttuðu sig
ekki á því að það bitnar einungis á
heimasöfnuðinum. Ef fólk segir sig
úr kirkjunni fer gjaldið ekki til
heimakirkjunnar, en rennur beint í
ríkissjóð. Þannig bitnar það að-
allega á barna- og æskulýðsstarfi í
heimakirkjunni ef fólk segir sig úr
þjóðkirkjunni. Þarna þurfum við að
vinna vel að upplýsingu og fá fólk til
liðs við okkur.“
Prestar virkir á Facebook
Vígslubiskupinn á Hólum segir
að þjóðkirkjan þurfi að tileinka sér
nýjar aðferðir við að koma boðskap
sínum á framfæri, til dæmis með
aðstoð samfélagsmiðla. Það geri
hún reyndar með nokkuð myndar-
legum hætti.
„Það felast óendanlegir mögu-
leikar í nýjum samfélagsmiðlum og
kirkjan hefur svo sannarlega not-
fært sér þá, þó að alltaf megi gera
betur. Allt barnaefni kirkjunnar er
inni á efnisveitu kirkjunnar. Þar
eru myndasögur, bíómyndir, brúðu-
leikrit og margt fleira áhugavert,
„Treysti Guði til að benda
mér á verkefni sem
verðugast er að vinna“
Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, segir
stöðu þjóðkirkjunnar sterka. Kirkjan njóti trausts í gleði og sorg
Biskupar Séra Solveig og fyrirrennari hennar, séra Jón A. Baldvinsson.
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 106.900
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 125.765
Meira en bara
blandari!
Hæ sæti, hvað ert þú að borða?
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
Verð frá
2.494 kr.
– fyrir dýrin þín
Bragðgott, holl
t og næringarr
íkt
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
FRAMUNDAN 2015 JANÚAR FEBRÚAR MARS APRÍL MAÍ JÚNÍ JÚLÍ ÁGÚST SEPTEMBER OKTÓBER NÓVEMBER DESEMBER