Morgunblaðið - 03.01.2015, Qupperneq 67
MINNINGAR 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
✝ Eysteinn JóhannesViggósson vélstjóri,
fæddist 20.8. 1931 í
Stykkishólmi og lést á
Sólvangi, Hafnarfirði,
hinn 30. nóvember 2014.
Hann var sonur hjónanna
Viggós Bjarnasonar, f.
26.9. 1801 í Svefneyjum á
Breiðafirði, og Maríu
Þórðardóttur, f. 15.8.
1804 á Hofstöðum í Gufu-
dalssveit, A-Barða-
strandasýslu. Eysteinn ólst upp í
Stykkishólmi en dvaldi lengi í
Bjarneyjum á Breiðafirði hjá
Hallfríði og Pétri Kúld. Þar lék
hann sér frjáls í náttúrunni með-
al fugla í móum og sjávardýra í
fjörunni. Honum leiddist aldrei
að segja okkur sögur úr Bjarn-
varður Sigurbjörn Steins-
son, f. 10.9. 1891 á Kleif á
Skaga og Bentína Þorkels-
dóttir, f. 27.7. 1898 í
Reykjavík. Þegar Hall-
dóra var fjögurra ára
fluttist hún með foreldrum
sínum á Sauðárkrók þar
sem faðir hennar gerðist
bílstjóri í Skagafirði á T-
Ford-vörubíl sínum SK 1.
Á unglingsárum fór hún í
síld á Siglufjörð um tíma
en réð sig svo í vist í Reykjavík
þegar hún var á 16. aldursári.
Maki 1. (skildu) Haraldur Guð-
mundsson. Börn þeirra; Fanney,
f. 1940, d. 1992, Ester Guðbjörg,
f. 1941, Sigríður Kolbrún, f.
1942, d. 2006, Bentína, f. 1944,
og Guðvarður, f. 1949.
eyjum og stóð við það síðar að
nefna börn sín eftir þeim hjón-
um.
Halldóra Sigríður Guðvarð-
ardóttir fæddist 16.8. 1922 í
Reykjavík en lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði hinn 27. ágúst 2008.
Foreldrar hennar voru Guð-
Eysteinn lauk mótorvélstjóra-
prófi 1950 og var á togurum í sjö
ár, sigldi um heimsins höf og var
vel að sér í sögu landa og menn-
ingu þeirra. Elskaði gríska tón-
list og hélt mikið upp á Theodo-
rakis, þó sérstaklega lagið Zorba.
Fór allur á ið við hljómfallið enda
dansinn fallegur og lifandi hvar
sem hann er dansaður í heimin-
um og ógleymanlegt var að sjá
Anthony Quinn leika hinn gríska
Alexis Zorbas. Þá mynd sáum við
saman margoft. Þar sem grískir
tónar heyrðust jókst hjartsláttur
hans og adrenalín og löngun hans
til að dansa með var alltaf til stað-
ar, það þurfti ekki rauðvín til.
Hann lauk vélvirkjanámi frá
Stálvík 1976 og fékk vélstjórnar-
réttindi með ráðherrabréfi 1984.
Á þessum árum vann hann á varð-
skipum Landhelgisgæslunnar og
var 1. vélstjóri og yfirvélstjóri hjá
Hafrannsóknastofnun frá 1977.
Pabbi var góður tungumálamað-
ur, þótti sopinn góður en alltaf
traustur til vinnu, bara hella upp
á sterkt kaffi þá var hann klár.
Hann var heilsuhraustur og
sterkur, kenndi sér aldrei meins
fyrr en heilsan gaf sig á þessu ári.
Eysteinn kynnist Halldóru
árið 1954. Mamma var ekki
heilsuhraust, var með barna-
astma og tíðar voru ferðirnar á
sjúkrahúsið á Sauðárkróki. Á
þessum árum voru berklar til
staðar og var álitið að hún væri
smituð og var meðhöndluð þann-
ig. Það voru erfiðir tímar fyrir
barn að dvelja langtímum saman
á sjúkrastofnun í einangrun,
missa af skólagöngu, barnaleikj-
um og vera fjarri fjölskyldu.
Þegar Halldóra og Eysteinn
kynnast er mamma einstæð
móðir með fimm börn og hann
gengur þeim öllum í föðurstað.
Þau giftu sig 1. maí 1955. Hann
starfaði til sjós á þessum árum og
vann mikið en hún hvatti hann til
áframhaldandi náms. Þau búa
saman á Hverfisgötu 54 í Hafn-
arfirði fyrstu árin. Saman eignast
þau Ómar Örn 1954 (d.1996), Pét-
ur Kúld 1958 (d. 1996) og síðast
Hallfríði 1961. Þau byggja ein-
býlishús á Hvaleyrarholtinu, að
Svalbarði 10, og leggja allan sinn
frítíma í að byggja, laga, mála og
skreyta garðinn, allt frá grunni.
Heimili þeirra, húsmunir og
handavinna mömmu, allt var svo
fallegt. Þau voru svo stolt af
garðinum sínum og fékk hann
viðurkenningu frá Hafnarfjarð-
arbæ.
Mamma var ótrúlega sterk
manneskja en sorgin sótti hart að
henni þegar elsta dóttir hennar,
Fanney, deyr 1992. Pétur deyr í
júní 1997 og Ómar í júlí, mánuði
seinna. Þannig missti pabbi báða
syni sína. Á þessum tíma verða
miklar breytingar á þeirra hög-
um. Seinustu árin voru erfið bæði
andlega og fjárhagslega og
reyndi mikið á þau. Blessuð sé
minning þeirra.
Sem kona hún lifði í trú og tryggð;
það tregandi sorg skal gjalda.
Við ævinnar lok ber ást og dyggð
sinn ávöxtinn þúsundfalda,
og ljós þeirra skín í hjartans hryggð
svo hátt yfir myrkrið kalda.
Af eilífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Benediktsson)
Hallfríður Eysteinsdóttir.
Eysteinn Jóhannes
Viggósson og Halldóra
Sigríður Guðvarðardóttir
Elsku fallega
amma mín, þú ert sú
kona sem ert mín
fyrirmynd og mun
ég ávallt hugsa til
þín með virðingu og þakklæti. Það
er svo margt að minnast t.d. þegar
þú saumaðir og hannaðir á mig
falleg föt, jólaboðin með fallegu
skreyttu kræsingunum, sumarbú-
staðaferðirnar, leitin að fallegasta
steininum. Það sem er efst í huga
mér er hláturinn, það var svo
Guðrún
Jónsdóttir
✝ Guðrún Jóns-dóttir fæddist
9. ágúst 1906. Hún
lést 12. desember
2014. Útför Guð-
rúnar fór fram 19.
desember 2014.
gaman að hlæja með
þér, það er ekki
langt síðan við tók-
um bakföll af hlátri
svo tárin runnu og
hvað ég var innilega
glöð og endurnærð
eftir heimsókn til
þín. Takk, elsku
amma mín, að gefa
mér þessar og marg-
ar minningar í minn-
ingarsjóðinn minn.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Kveðja,
Auður Lísa.
Hann er svo skrýtinn og
skemmtilega skondinn þessi
heimur okkar og þar með líf
einstaklinganna sem fylgja jú
með í pakkanum.
Gunna Haraldar kom mér
fyrst fyrir sjónir árið ’57 eða 8.
Ég þá polli í sveit í Kerlingadal
austur, ekki enn tíu ára. Hún
rúmlega þrítug og kominn í dal-
inn fagra, grösugan og þröng-
an, sem kaupakona þessa
þurrkdaga „sem nánast engir
voru“, eins og hún sagði síðar.
Það gekk vel undan hrífunni
hennar í slægjunni svo við litlu
dýrin sáum einfært um að við
yrðum að haska okkur líka. Svo
fór hún út í Vík aftur um kvöld-
ið með mjólkurbílnum.
Kannski kom hún daginn eft-
ir, kannski ekki – fór eftir
þurrkinum. En keik var hún á
vellinum, rösk og aðsópsmikil.
Þannig man ég hana alltaf, að-
sópsmikla og stóð þétt með
sjálfri sér, jafnvel lítt árennileg.
Svo liðu þau öll þessi ár og
ég man ekki hvernig það kom
til en allt í einu vorum við búin
að ráða okkur pössunarstelpu á
Bergstaðastrætið. Stóra og
þroskaða eftir aldri, samvizku-
sama og duglega. Hún var
meira að segja með nokkur
börn til viðbótar þarna í sum-
arstarfinu öðrum hvorum meg-
in við ferminguna sína. Hún
hafði fengið saumavél í ferm-
ingargjöf. Það þótti okkur hjón-
unum merkilegt þarna rétt fyr-
ir 1990. En heimasætan okkar
Guðrún
Haraldsdóttir
✝ Guðrún Har-aldsdóttir
fæddist í Kerling-
ardal í Mýrdal 31.
júlí 1922. Hún lést á
Droplaugarstöðum
í Reykjavík 11. des-
ember 2014.
Útför Guðrúnar
fór fram frá Foss-
vogskirkju 19. des-
ember 2014.
var í beztu höndum
hjá henni Marlín,
sem allt í einu
kynnti okkur fyrir
ömmu sinni, henni
Gunnu Haralds
saumakonu, alla
leið austan úr
Kerlingadal.
Það fór vel á
með okkur „sveit-
ungunum“ og hún
sagði mér að hún
ætti nú Hól, fjárhúsið ofarlega í
inntúninu. Í þeim sumarbústað
yndi hún sér í nálægð við gamla
ættarsetrið.
Marlín er fagur erfingi og
arftaki ömmu sinnar. Hörku-
dugleg og fylgin sér, útsjón-
arsöm og klár. Stundum velti
ég fyrir mér hvernig uppeldi
barna gerist og gengur fram og
alltaf hallast ég meira á þá
sveif að fyrirmyndin og örygg-
isþáttur heimilisins sé það
bezta. Þannig ólst Marlín upp
við útsjónarsemi, gamaldags
dugnað og fyrrum gildin góð
sem fleytti ömmustelpunni
meira að segja út í heiminn án
þess að víla fyrir sér.
„Já, já, hún plumar sig prýði-
lega, hún Marlín mín,“ sagði
Guðrún um stoltið sitt þegar
við hjónin litum til hennar í
Lönguhlíðina síðast. Hún var
þá í kaffistofunni. Fannst það
ómögulegt strax og við vorum
ekki almennilegir gestir fyrr en
við höfðum þegið boð í prívatið
hennar.
Við hér á B 59 þökkum kynni
góð og þá arfleifð sem litla fjöl-
skyldan okkar naut alla leið frá
henni Gunnu Haralds.
Ástvinum sendum við hug-
heilar kveðjur og biðjum algóð-
an Guð að færa söknuð þessara
skammdegisdaga til bjartari
daga og fagurra minninga um
stóra konu og sterka. Fjöl-
skyldan Bergstaðastræti,
Pjetur, Ragnheiður
og dætur.
Nú kveðjum við góðan mann.
Mann sem hefur verið hluti af
okkar fjölskyldu síðasta áratug-
inn en sem vinur í lengri tíma.
Daníel höfum við þekkt frá barn-
æsku þar sem hann og pabbi heit-
inn voru æskuvinir og kom hann
oft í heimsókn til okkar. Við feng-
um að kynnast honum enn betur
þegar hann varð hluti af okkar
fjölskyldu og áttum við margar
góðar stundir með honum og
mömmu.
Gleði og bros fannst okkur ein-
kenna Daníel. Alltaf var hann boð-
inn og búinn að hjálpa og var af-
skaplega bóngóður. Ef Daníel
heyrði af því að okkur vantaði að-
stoð af einhverju tagi þá var hann
mættur tilbúinn til aðstoðar.
Daníel var margt til lista lagt.
Daníel Gunnar
Sigurðsson
✝ Daníel GunnarSigurðsson
fæddist í Bakkaseli
í Hrútafirði 1. apríl
1941. Hann lést á
Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu
Grund 25. nóv-
ember 2014.
Daníel var jarð-
sunginn frá Há-
teigskirkju 8. des-
ember 2014.
Hann var samvisku-
samur maður og
hugsaði vel um sitt
og sína. Allt sem
Daníel tók sér fyrir
hendur var gert af
mikilli vandvirkni,
ekkert verk var hálf-
klárað. Þar má sér-
staklega nefna bú-
staðinn hans í
Hrútafirði og íbúð-
ina þeirra mömmu í
Kópavoginum sem hann lagaði og
dundaði við af mikilli natni. Daníel
hafði einnig gaman af því að
ferðast bæði hér heima og erlend-
is. Líklega eru ekki margir stað-
irnir á Íslandi sem hann hafði ekki
komið til og ferðuðust þau
mamma töluvert saman um landið
ásamt því að skella sér í nokkrar
utanlandsferðir. Hann var ein-
staklega ánægður með þær ferðir
sem leyndi sér ekki í frásögnum
hans af þeim.
Daníel sýndi okkur og okkar lífi
mikinn áhuga. Hann var afskap-
lega barngóður og hændust börn-
in okkar að honum og var hann
kallaður afi Danni af þeim. Við
kveðjum hér Daníel með söknuði
en góðar minningar í hjarta.
Erna, Ólöf og Edda
Guðjónsdætur.
Elsku amma mín,
nú ertu farin frá
okkur og mér finnst
þetta voða óraun-
verulegt ennþá og er alltaf svona
hálfpartinn að bíða eftir að þú
hringir í mig. Ég sit hérna að
skrifa minningargrein um þig að
hlusta á uppáhalds jólasálminn
þinn á afmælisdaginn minn og
hugsa um allar góðu minningarn-
ar sem ég á með þér. Man hvað
mér fannst gaman að heyra sögur
frá því þú varst lítil fyrir norðan,
það sem ég gat hlustað á þær aftur
og aftur án þess að verða leið á
þeim. Svo þegar við tókum göngu-
túrana, alltaf varstu svo dugleg að
labba og ég átti alltaf erfitt með að
halda í við þig þótt ég væri mikið
yngri, það var kraftur í þér. Man
líka hvað mér þótti gaman þegar
Marý Valdís
Jónsdóttir
✝ Marý ValdísJónsdóttir
fæddist 29. október
1927. Hún lést 7.
desember 2014. Út-
för Valdísar fór
fram 19. desember
2014.
við sátum við snyrti-
borðið þitt að gera
okkur fínar, aðallega
þú en þú gerðir
stundum við mig líka
og mér fannst það
sko toppurinn, svo
gat ég horft á þig
með aðdáun meðan
þú gerðir þig fína og
alltaf varstu svo
glæsileg.
Ég mun varðveita
allar þessar minningar, sem og all-
ar hinar sem ég á með þér.
Ég er svo þakklát fyrir að þú
fékkst að sjá börnin mín þrjú ég
veit þú munt vaka yfir þeim og
fylgjast með þeim, minning þín
mun lifa.
Bið að heilsa Rúnu og þangað
til ég hitti þig næst þá kveð ég að
sinni.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Þín nafna,
Marý Valdís.
Óskari kynntist ég ungur að
aldri í sumarvinnu hjá 66°N hf.,
sem síðar varð yfir 20 ára sam-
starf okkar þegar ég síðar réð
mig í fast starf hjá fyrirtækinu.
Konan hans, Rut Kristjánsdótt-
ir, var jafnframt starfandi mest-
an sinn starfsaldur hjá fyrirtæk-
inu sem verkstjóri, en hún stýrði
sjó- og regnfataframleiðslunni af
miklum myndarskap. Óskar var
þessi ómissandi fagmaður sem
smíðaði mikið af áhöldum og
tækjum sem sérsmíða þurfti fyr-
ir framleiðsluna. Þetta var bún-
aður til að auka framleiðni, en
jafnframt til að leysa tæknileg
vandamál í nýrri vöruþróun.
Smíðaði hann þetta í bílskúrnum
heima hjá sér í Sæviðarsundinu,
þar sem hann stundaði bílavið-
gerðir. Seinna þegar fram-
leiðslustöðum 66°N fjölgaði og
voru orðnir sjö, víða um landið,
var hans smíði nauðsynlegur
hluti af framleiðslukerfum þeirra
staða
Alveg frá því að ég tók bílpróf
18 ára var Óskar mér mikill
bjargvættur. Hann var alltaf
boðinn og búinn að bjarga mál-
unum er gamlir bílskrjóðar sem
ég átti á þessum árum neituðu að
hlýða og fara í gang. Þegar allt
annað var fullreynt var hringt í
Óskar og var þá fyrsta spurning
hans yfirleitt: „hvar ertu stadd-
ur?“ og síðan var hann mættur
að vörmu spori. Þannig var hann
alltaf ósérhlífinn og hjálpsamur.
Með fjölgun framleiðslustaða
66°N á landinu komu stundum
Óskar
Hjartarson
✝ Óskar Hjart-arson fæddist
29. ágúst 1927 í
Vestmannaeyjum.
Hann lést á hjarta-
deild Landspítalans
við Hringbraut 15.
desember 2014.
Útför Óskars fór
fram frá Fossvogs-
kirkju í Reykjavík
22. desember 2014.
upp tæknileg
vandamál sem
þurfti að leysa með
stuttum fyrirvara.
Er mér minnisstætt
er við þurftum eitt
skipti að fara á Sel-
foss en loftpressan
fyrir aðalfram-
leiðslulínuna hafði
bilað og flestar vél-
arnar stopp. Ég
kom við hjá Óskari
og hann klæddur skyrtu og
þunnum vinnuslopp stökk upp í
sendibílinn hjá mér með verk-
færatöskuna í annarri hendinni
og þunna úlpu í hinni. Þetta var
um miðjan vetur og veðurspáin
svört, spáð brjáluðu veðri seinni
partinn. Við keyrðum Hellisheið-
ina austur og gekk ferðin vel.
Þegar við svo snérum heim um
kl. 19 að kveldi var komið vit-
laust veður og Hellisheiðin ófær
og ekki um annað að ræða en að
keyra Þrengslin. Veðrið var orð-
ið þannig að það var kominn
brjálaður snjóstormur. Bíllinn
spólaði látlaust í brekkunni og
þurftum við að láta hann ítrekað
renna aftur á bak út í kantinn til
að dekkin næðu spyrnu í smá
sandkornum. Svona gekk þetta
smátt og smátt, og þurfti annar
okkar að standa úti að lóðsa en
skyggnið var lítið sem ekkert.
Við urðum því mikið fegnir að
komast upp á jafnsléttu þar sem
ferðin fór að ganga betur eftir
tveggja klukkustunda hrakn-
inga, en mig grunar að Óskari,
eins og mér, hafi verið brugðið
við þetta allt enda kominn á átt-
ræðisaldur, en hann lét samt
ekkert á sér finna en varð að orði
að við þyrftum að gera ráðstaf-
anir til að vera betur búnir í
svona ferðir.
Fallinn er frá mikill höfðingi
og í hjarta mínu finn ég fyrir
söknuði þó að við höfðum ekkert
hist í yfir 10 ár, blessuð sé minn-
ing hans.
Gestur Már Þórarinsson.