Morgunblaðið - 03.01.2015, Side 72
72 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2015
HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5 200 200 · GAP.IS
EKKISLEIKJA
MALBIKIÐ Í FROSTINU!
-NAGLADEKKIN
UNDIRHJÓLIÐ
FÁST ÍGÁP
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú átt erfitt með að einbeita þér
vegna innri togstreitu. Taktu hugmyndum
makans um breytingar hvers konar með bros
á vör. Besta ráðið er að sýna þolinmæði.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú gefur heiminum frí í dag og færð
greiðann launaðan. Gerðu eitthvað í málinu
áður en það gerir endanlega út af við þig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er sama hversu mælskur þú ert
um þessar mundir, gerðir þínar segja meira
en mörg orð. Varðveittu undrun þína yfir
eiginleikum makans, þótt þið hafið verið
saman í óralangan tíma.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er enginn tími til að hika eða
efast – þú ert of upptekinn við að gera huga
og líkama gott. Leggðu á ráðin um það hvern-
ig þú getir bætt heimilisaðstæður þínar til
langframa.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Tafir, ruglingur og samskiptaörðugleikar
í vinnunni munu setja svip sinn á þennan
mánuð. Reyndu að takmarka orðaflauminn
og gefa öðrum færi á að segja sína sögu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þið þurfið að vera á tánum ef þið viljið
að ykkar málefni nái fram að ganga. Reyndu
að forðast deilur við maka þinn og vini þótt
þið séuð ekki á einu máli um hlutina.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það eru ýmsir möguleikar opnir í stöð-
unni og þú þarft að gefa þér tíma til að gaum-
gæfa málin vandlega. Gættu þess að fá næga
hvíld til að sinna þínu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Viðræður við vin um vonir þínar
og drauma fyrir framtíðina gætu borið
óvæntan ávöxt. Hugmyndir þínar um venju-
legan dag eru allt öðruvísi en fyrir viku.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú kemst ekki hjá því að leggja
hart að þér á næstunni. En það er mikil kúnst
að sjá alltaf skemmtilegu hliðina á öllu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú metur sjálfa/n þig eftir gildis-
mati þínu eins og flestir. Maður getur bara
tekið við vissu magni af upplýsingum áður en
maður þarf að endurraða á harða diskinum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú hefur góðan byr í seglin en
þarft að gæta þess að kollsigla þig ekki.
Hugsaðu vel um heilsuna og gefðu þér tíma
til að stunda líkamsrækt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þótt þú hafir í mörg horn að líta máttu
ekki láta það verða til að þú missir sjónar á
markmiðum þínum. Reyndu að temja þér
meiri tillitssemi í samskiptum við aðra.
Síðasta laugardagsgáta var eft-ir Pál Jónasson í Hlíð:
Kappar hraustir klífa hann,
kveikjuneista deilir hann,
allir smiðir eiga hann,
í eyru lamba skorinn hann.
Svo er eitt af okkar skáldum
alltaf kennt við hann.
Það er skemmtilegt að nýir
vísnasmiðir bætast í hópinn. Sig-
rún Erla Hákonardóttir á þessa
lausn:
Vísnagátan virðist þessi vera snúin.
Ætla ég þó að ráða reyna.
Rétt er hamar, vil ég meina.
Pétur Þórðarson leysir gátuna
þannig:
Hamar brattan klífur hann.
Hamar rafstraum deila kann.
Hamra skaltu járnið heitt.
Í hamarsmynd er eyrað sneitt.
Frá Hamri orðsnilld andans streymir.
Að eiga slíka oft mig dreymir.
Árni Blöndal svarar:
List er að klifra hamra háa.
Hamra þekki, stóra og smáa.
Allir smiðir eiga gripinn,
ámóta þeir eru á svipinn.
Á eyru lamba er hann skorinn.
Er Þorsteinn skáld á Hamri borinn?
Harpa á Hjarðarholti skrifar:
„Hér er lausnin:
Hamar kappar klífa hér,
kveikjuhamar sýnist mér.
Smíðahamar smiður ber,
smátt ei markið hamar er.
Þorsteinn heitir halur
sem við Hamar kenndur er.“
Guðmundur Arnfinnsson skrif-
aði mér og sagði að dýrt kveðin
svör hefðu borist við laugardags-
gátunni, – „m.a. frá Laugavegs-
karlinum, sem bað um tóbakskorn
í nefið og réð gátuna þegar í
stað, svo að mér hrutu orð af
vörum:
Gild hér svörin greina má
frá gátuvinum snjöllum,
og Laugavegskarlinn, kappinn sá,
kemur ekki af fjöllum.“
Hér kemur svar Guðmundar við
gátu Páls:
Hamarinn klífa kappar enn.
Kveikjuhamarinn brúka menn.
Smiðir greiða með hamri högg.
Hamar er merking í eyra glögg.
Skáldið frá Hamri lífvæn ljóð
löngum býður sinni þjóð.
Og ný gáta eftir Guðmund:
Klukku gefur gjallan hljóm.
Greitt um loftið flýgur sá.
Á stilkum ýms hann bera blóm.
Brotnar sjávarklettum á.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hamar er einfalt orð og þó margrætt
Í klípu
„ÞETTA LÍTUR VEL ÚT. ÉG VONA BARA
AÐ ÞÚ SÉRT EKKI AÐ LEIÐA OKKUR Í
MOLDINA Á NÝ.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„KONAN ÞÍN FÓR MEÐ BARNIÐ HEIM Í
LEIGUBÍL FYRIR KLUKKUSTUND.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að trúa að þau hafi
lifað „hamingjusöm um
aldur og ævi“.
HEFURÐU EINHVERN
TÍMANN SETT SKÓNA Á
ÞIG Á UNDAN SOKKUNUM?
Ó, EKKI
ÉG HELDUR!
JÁ,
JÁ
NEI
FYRIR HÖND HINNA FÁTÆKU
OG KÚGUÐU ÍBÚA NOREGS,
KREFST ÉG ÞESS AÐ ÞÚ GEFIR
OKKUR AUÐÆVI ÞÍN!
HVER HELDUR ÞÚ AÐ ÞÚ SÉRT –
HRÓI HÖTTUR?!
Áramótaheit eru það sem flestirtala um þessa dagana. Hvernig
og um hvað áramótaheitin snúast
sem fólk strengir er vinsælt um-
ræðuefni.
Víkverji á í erfiðu sambandi við
áramótaheit. Hann viðurkennir að
hann er eitthvað hræddur við að
strengja slíkt – kannski hreinlega af
ótta við að standa ekki við heitin.
Ástæðan er einnig sú að áramóta-
heit eru í tísku. Margir strengja þess
heit að hreyfa sig meira, hætta að
reykja og drekka minna. Því miður
springa margir á limminu. Hluti af
ástæðunni gæti hreinlega verið að
fólk er ekki búið að undirbúa sig nóg
og tekur ákvörðun um breytingar af
því að allir aðrir eru að strengja
þessi heit. „Af hverju ekki að taka
þátt?“ hugsa eflaust margir.
x x x
Og já, Víkverji hefur lesið sjálfs-hjálparbækur sem segja að
vissulega séu meiri líkur á að þeir
sem setji sér markmið eigi frekar
eftir að ná þeim, svo ekki sé nú talað
um ef þau eru gerð opinber t.d. á
Facebook. Að sjálfsögðu hafa marg-
ir komið auga á þessa tilhneigingu
hjá okkur mannskepnunni. Margar
verslanir, svo ekki sé nú talað um
líkamsræktarstöðvar, eru með tilboð
á þjónustu sinni. Fólk hleypur til og
vill festa kaup til dæmis á tilboðs-
kortum því jú, auðvitað rímar það
við fyrri yfirlýsingar sem gefnar
voru um að taka heilsuna fastari tök-
um.
x x x
Áramót eru tímamót og því er ekk-ert óeðlilegt við það að líta yfir
farinn veg og horfa á það sem vel
gekk og það sem miður fór. Draga af
því lærdóm og halda áfram. Tíma-
mót fela ávallt í sér ákveðna von.
Von um að bæta sig. Staldra við og
líta í eigin barm um vonir og vænt-
ingar til sjálfs sín og lífsins.
Í áramótaveislu Víkverja sögðu
allir frá hápunktum og lágpunktum
ársins. Það var segin saga að af lág-
punktum ársins hlaust alltaf eitt-
hvað gott í kjölfarið þegar það var
sett í samhengi. Því fagnar Víkverji
hverjum mistökum sem gerð voru á
árinu, hvort sem þau voru í vinnu, í
fjölskyldulífinu, áhugamálinu eða
öðrum sviðum lífsins. Hann telur sig
a.m.k. hafa lært. víkverji@mbl.is
Víkverji
En mín gæði eru það að vera nálægt
Guði, ég gerði Drottin að athvarfi
mínu og segi frá öllum verkum
þínum. (Sálmarnir 73:28)