Reykjalundur - 01.06.1950, Blaðsíða 7
— Vífilsstaðahæii —
Húsið til vinstri við hælið er Vífilsstaðabúið, en hægramegin eru hjúkrunarkvennahús, ibúðarhús yfirlæknis og
íbúðarhús deildarlæknis og aðstoðarlæknis
Starfandi er á hælinu deild innan S.í
B.S., „Sjálfsvörn, félag sjúklinga á Vífils-
stöðum“, stofnað 14. febr. 1939. Samkvæmt
upplýsingum Brynjólfs Einarssonar, ritara
Sjálfsvarnar, eru helztu verkefni félagsins
Joessi:
Hagsmunamál sjúklinga: Félagið vinnur
að ýmsurn hagsmunamálum sjúklinga inn-
an hælis og utan. Meðal helztu áhugamála
félagsins í Jreim efnum er friðun Vífilsstaða-
lands, en Jrar er sem kunnugt er, allmikill
trjágróður, sem liggur undir skemmdum af
ágangi búfjár. Félagið vinnur að því að
fá tekin til framkvæmdar viss atriði í trygg-
ingarlöggjöfinni, svo sem um makabætur,
ennfremur að fá fellt niður lífeyrissjóðs-
gjald sjúklinga á hælum svo og sjúkrasam-
lagsgjald, án réttindaskerðingar þegar út af
hælinu kemur.
Námsflokkastarfsemi: Félagið gengst fyr-
ir námsflokkastarfsemi að vetrinum í sam-
bandi við námsflokka Reykjavíkur, sem
greiða kennslulaun. Sjúklingarnir geta
fengið kennslu í þeim námsgreinum, sem
J^eir óska eftir, sér að kostnaðarlausu, enda
hefur þátttaka verið góð, einkum fyrri
liluta vetrar.
Útvarpstimar: Félagið skipar útvarpsráð
fyrir hverja deild á haustin. Sjá ráðin síðan
um útvarpstíma, sína vikuna hvert allan
veturinn, ca. klukkustundar dagskrá hverju
sinni. Er þarna flutt margvíslegt útvarps-
efni, bæði til fróðleiks og skemmtunar. Út-
varpssaga er lesin þar fyrir utan.
Leiksýningar. Leiksýningum hefur Jnis-
var verið komið upp, ári’n 1941, 1946 og
loks s.l. vetur, er sjúklingar léku „Orust-
una á Hálogalandi“ sex sinnum. Þá hefur
félagið staðið fyrir nokkrum kvöldvökum,
með margvíslegum skemmtunum, og á
vetri hverjum hefur það 3—4 kaffikvöld og
skemmta þá ýmsir listamenn úr bænum.
Á vetrum er staðið fyrir margskonar keppni
í bridge, bæði meðal sjúklinga og við að-
komuflokka ,en að sumrinu er iðkaður létt-
ur og skemmtilegur knattleikur utanhúss,
svonefnt krocket.
Starfsemi fyrir S.Í.B.S. Og loks er einn
5
Revkjalundur