Morgunblaðið - 26.03.2015, Page 26

Morgunblaðið - 26.03.2015, Page 26
legu hræsni Samfylkingarinnar, og hvernig þingmenn þeirra voru til- búnir til þess að svíkja og stinga í bakið,“ segir Vigdís, sem minnist þess að málið hafi verið rætt á þing- flokksfundi Framsóknarflokksins stuttu fyrir atkvæðagreiðsluna. „Það kom aldrei neitt annað til greina en að þetta væri einn fyrir alla og allir fyrir einn og að fjallað yrði um tillög- una í heild sinni. Ég spurði um þetta á fundinum, og þá kom upp hik og sagt var að það gæti ekki verið að það ætti að greiða atkvæði um hvern og einn.“ Vigdís segist hafa ákveðið á grunni þeirra gagna sem hún hafði aflað sér og vinnu þeirra tveggja fulltrúa sem Framsókn hafði í nefnd Atla Gísla- sonar að rétt væri að greiða atkvæði með tillögunni. „En þegar í þingsal er komið, þá er búið að brjóta hana nið- ur, og greidd atkvæði um hvern og einn ráðherra sem kom mér mjög á óvart. Það var fyrst og fremst Sam- fylkingin sem hlífði sínu fólki, það voru engin heilindi, eða raunveruleg- ur vilji á bak við. Það var mjög skrýt- ið andrúmsloft í þingsalnum þegar þetta gerðist, það var svo þrúgandi að það var hægt að skera andrúmsloftið. Eftirleikinn vita allir. Umræðan hef- ur ekki verið tekin nægilega í sam- félaginu, hvers vegna þingmenn Samfylkingarinnar fóru þessa leið,“ segir Vigdís með nokkrum þunga. „Einhver sagði að það hefði átt að stöðva atkvæðagreiðsluna þegar í ljós kom hvernig í pottinn var búið, en ég skil ekki í þáverandi forseta að taka það í mál að brjóta tillöguna upp án þess að vara þingmenn við.“ Vigdís segir nú að málið hafi reynst bæði kostnaðarsamt og tilgangslaust. Engu að síður lagðist Vigdís gegn því að málið yrði dregið til baka, þeg- ar ályktun um slíkt kom aftur fyrir þingið. „Þá var ég á þeim stað á þessu átakaþingi að ég var búin að taka slagi út af stjórnarskránni og ESB, og búin að sæta mikilli gagnrýni, og mér fannst ég ekki geta skipt um hest í miðri á. Eftir á að hyggja var það rangt hjá mér.“ Vigdís segist sjá mikið eftir þætti sínum í þessu máli. „Með hjálp góðra manna tókst mér að koma á fundi með Geir H. Haarde, og ég er búin að biðja hann afsökunar og hann hefur fyrirgefið mér og ég hef gert hreint hefði ekki verið spennandi kostur fyr- ir sig nú, þegar hún væri formaður fjárlaganefndar, enda kynni hún vel við sig þar, og menntun hennar í skatta- og viðskiptalögfræði nýttist þar vel. Hún útilokar hins vegar ekki að hún myndi hafa hug á ráðherra- embætti síðar. Hún er hins vegar nokkuð gagn- rýnin á embættismannakerfið, sem hún segir vera orðið allt of stórt.„Við erum komin fram á brúnina með að við höfum skattfé til þess að greiða fyrir hið opinbera,“ segir Vigdís. Hún nefnir sem dæmi hugmynd sem kynnt var í þingflokknum í vikunni um að reisa viðbyggingu við Alþing- ishúsið. Hún spyr fyrir hvaða fé ætti að reisa þá byggingu. „Ef við viljum styrkja þingið, þá væri nær að styrkja innviði þess frekar en yfirbygging- una,“ segir Vigdís, og vísar til frum- varps um lagaskrifstofu þingsins sem hún hafi flutt en ekki náð í gegn, en með því væri hægt að styrkja löggjaf- arvaldið. Að sama skapi sé mikil tregða innan kerfisins að hagræða og breyta. Vigdís segir sína sannfæringu byggjast á rekstri. „Ég hef rekið fyr- irtæki og þetta er ekkert öðruvísi. Það verða að vera nægar tekjur til þess að borga útgjöldin.“ Sér eftir Landsdómsmálinu Talið berst að hatri og heift í stjórnmálum, en Vigdís segir að enn eimi eftir af síðasta kjörtímabili, sem haf einkennst af miklum átökum. „Mjög mörg mál voru sett upp, ESB, stjórnarskrármálið, landsdóms- málið, það átti að umbylta fisk- veiðistjórnunarkerfinu og þetta var mjög átakamikið þing.“ Hún segir forystumenn stjórn- arinnar hafa gert þau mistök að hafa talið sig vera komna til að vera, og því ekki skeytt neitt um það hvaða skoð- anir almennir þingmenn innan þeirra raða höfðu á stefnumálum ríkisstjórn- arinnar. „Þau fórnuðu þingmanni eft- ir þingmann.“ Í því samhengi segir Vigdís að sam- félagið þurfi að ræða atburðarásina sem leiddi til þess að Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, endaði einn fyrir Landsdómi, þar sem nefnd þingmanna hefði gert tillögu um að fjórir ráðherrar myndu sæta ákæru. „Þar komum við að þessari rosa- VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Það kom ekkert annað til greina en að fara eins hátt upp með veislugest- ina og ég gat,“ segir Vigdís Hauks- dóttir alþingismaður. Hún fagnaði á dögunum hálfrar aldar afmæli sínu, en segja má að himinhvolfin sjálf hafi séð um helstu skemmtiatriðin í veisl- unni, þar sem sólmyrkvann fræga bar upp á sama dag, og fengu afmælis- gestirnir að njóta hans úr Turninum í Kópavogi. Vigdís var vel undirbúin fyrir þenn- an merkisviðburð. „Ég hef vitað það í nærri aldarfjórðung að það yrði sól- myrkvi þennan dag, því ég er mikil áhugamanneskja um náttúruna og himinhvolfin. Þegar ég áttaði mig á því að ég yrði fimmtug þennan dag ákvað ég að ég myndi halda upp á það og bjóða fjölskyldu og vinum til veisl- unnar,“ segir Vigdís. Ólíkt því sem gengur og gerist með slík afmælisboð hófst veislan um níu- leytið um morguninn. „Ég varð auð- vitað að nýta sólmyrkvann, og hann varð svona snemma að morgni.“ Vig- dís segir að það hafi síðan gert góðan dag enn betri að náttúran hafi heilsað með heiðskírum degi, þannig að gest- ir gátu notið sólmyrkvans til fulln- ustu. „Það var búið að spá illa fyrir daginn, þannig að það var algjör bón- us að fá svona gott veður. Þetta reyndist líka góður ísbrjótur,“ segir Vigdís, og bætir við að fólk sé enn að lýsa yfir ánægju sinni með viðburð- inn. „Og þá er takmarkinu náð.“ Hafði engu að tapa Vigdís hefur oftar en ekki þótt um- deild í þingstörfum sínum, og hefur mátt þola mikið og illt umtal frá því að hún var fyrst kjörin á þing árið 2009. En hvers vegna ákvað hún að taka þátt í stjórnmálum? „Ég er mikil bar- áttukona, með mjög ríka réttlætis- kennd. Ég hef mikinn metnað fyrir þessu starfi, því að alþingismenn geta haft áhrif ef þeir leggja sig fram um það. Ég hef verið gagnrýnd fyrir það að ég vil ekki lúffa fyrir neinum, hvort sem það er ESB, embættismanna- kerfið eða forsvarsmenn ríkisstofn- ana, ég segi mína skoðun og er því ekkert vinsælust hjá einhverjum hópi fólks. Mér er líka nákvæmlega sama,“ segir Vigdís. Hún segist líta á það sem merki um að hún sé á réttri leið ef umtalið verð- ur mikið. „Þá er ég að hreyfa við ein- hverju sem enginn annar hefur þorað að gera, og það drífur mig áfram í þessu starfi,“ segir Vigdís. Það var ekki heiglum hent að ætla sér að rífa upp Framsóknarflokkinn í höfuðborginni, þar sem hann hafði misst báða þingmenn sína árið 2007, en Vigdís segist vera stolt af þeim ár- angri sem flokkurinn hafi náð þar síð- an. Ekki bara hafi hún náð þar kjöri tvisvar, heldur hafi Framsóknar- flokkurinn aldrei haft fleiri þingmenn á höfuðborgarsvæðinu en nú eftir síð- ustu kosningar. Vigdís er ekki síður ánægð með þann árangur sem náðist í borgar- stjórnarkosningunum síðustu, þrátt fyrir mikinn andróður. „Öll sú hat- ramma hatursumræða sem skapaðist í kringum framboðið varð til þess eins að auka fylgi flokksins,“ segir Vigdís, og bendir á að hin illa umræða um framboðið hafi byrjað þegar til álita kom að Guðni Ágústsson yrði oddviti flokksins í borginni. Hagræðingin gengur of hægt Þegar Vigdís er spurð hvort að hún gangi með ráðherrann í maganum segir hún að hún hefði þegið það strax eftir kosningarnar 2013, en til þess kom ekki á þeim tímapunkti. Vigdís segir að umhverfisráðuneytið fyrir mínum dyrum. Það sýnir hvað Geir er stórbrotinn persónuleiki að taka svona afsökunarbeiðni. Það sýn- ir styrk hans sem einstaklings, og hvað hann kemur heilsteyptur út úr þessum harmleik,“ segir Vigdís. Eftir á að hyggja segir Vigdís ljóst að málið hafi komið úr ranni forystu- manna ríkisstjórnarinnar, hún hafi fyrir því öruggar heimildir. Hún bæt- ir við að hún hafi einfaldlega gengið í gildruna sem forysta ríkisstjórnar- innar hafi lagt. Sér hafi því eiginlega runnið blóðið til skyldunnar að biðja Geir afsökunar. Viðræðunum hefur verið slitið En það var ekki bara Landsdóms- málið sem reyndist erfitt á síðasta kjörtímabili. Hún segir það skýrt að aðildarumsóknin að Evrópusam- bandinu hafi siglt í strand þegar í mars 2011, þegar sambandið gat ekki lagt fram rýniskýrslu sína í sjávar- útvegskaflanum. „Bæði þingi og þjóð var haldið í blekkingu árin 2012 og 2013 og látin standa í þeirri trú að viðræður væru í gangi allan þennan tíma, sem síðan kom í ljós að var ekki.“ Vigdís segir hlutverk núver- andi stjórnarflokka hafa orðið það að taka til eftir Samfylkinguna í Evrópusambandsmálinu. Nokkrar umræður hafa orðið um það hvaða gildi bréf Gunnars Braga Sveinssonar, utanríkisráðherra, til Evrópusambandsins hafi, og svo virðist sem að sambandið sjálft líti ekki á það sem ígildi viðræðuslita. Vigdís er annarrar skoðunar. „Þetta er þvílíkur dónaskapur og hroki hjá embættismannaelítunni í Brussel, að koma svona fram við sjálfstætt og fullvalda ríki, maður á ekki orð til að lýsa því hvílíkur hroki birtist þarna,“ segir Vigdís. „Ég lít svo á að það sé búið að slíta þessum viðræðum, þetta ferli er búið. Þingsályktunin getur ekki bundið sitjandi stjórnvöld,“ seg- ir Vigdís, og bætir við að „pakkinn margfrægi“ sé í raun Lissabon- samningurinn vafinn í sellófan. „Og sellófan er gegnsætt, og þeir sem vilja sjá í pakkann vita hvað er í hon- um. Þessi málflutningur um að kíkja í pakkann er svo mikill hálfsannleikur, og reynt að slá ryki í augu fólks. Ef við viljum inn þurfum við að aðlaga okkur að öllum lögum og reglugerð- um sem ESB stendur fyrir.“ Búin að biðja Geir afsökunar  Vigdís Hauksdóttir alþingismaður segir samfélagið þurfa að ræða Landsdómsmálið  Búið er að rifta viðræðunum við ESB frá hennar sjónarhóli  Nauðsynlegt að láta tekjurnar duga fyrir útgjöldum Morgunblaðið/RAX Ákveðin Vigdís Hauksdóttir segist sjá eftir því að hafa greitt atkvæði með því að ákæra Geir H. Haarde, og hefur beðið hann afsökunar á því. 26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015 Dökkblár (e. Marine/Rouge) Vínrauður (e. Cedre/Aubergine) Svartur (e. Noir) Náttúrulegt gúmmí Stærðir 36–41 Austurveri, Háaleitisbraut 68 • sími 568 4240 Opið: mán.–fös. 10–18, lau. 10–16 Flottir frá
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.