Morgunblaðið - 26.03.2015, Side 36

Morgunblaðið - 26.03.2015, Side 36
VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Hugmyndin á bak við verkið var sú, að þegar fimmtugsafmælið kom í fyrra, þá var ekki til neitt um mótin nema í gömlum skák- tímaritum á timarit.is eða gömlum plöggum,“ segir Helgi Ólafsson, stórmeistari í skák, en hann er nýbúinn að gefa út fyrra bindið af tveimur um sögu Reykjavík- urskákmótsins í fimmtíu ár, en þar fer hann yfir framvinduna á fyrstu fjórtán mótunum, sem haldin voru annað hvert ár á árunum 1964 til 1990, en ráðgert er að seinna bind- ið komi út á næsta ári. „Sagan er merk og markmiðið því fyrst og fremst að draga þetta saman á einn stað,“ segir Helgi, en hann segir gamlar skákir gjarnan týnast á netinu. Hann segir marg- ar merkilegar skákir hafa verið tefldar á mótunum og þær skipi auðvitað stóran sess í bókinni. „En hitt er ekki síður merkilegt að fara yfir þátttakendalistann á mót- unum, því að eitt af því sem kemur í ljós er hvað við höfum verið sam- ferða skáksögunni í þessi fimmtíu ár,“ segir Helgi. Tal og Friðrik gáfu tóninn Hann bendir á að Reykjavíkur- mótið hafi frá upphafi verið vel sótt af erlendum stórmeisturum. „Við höfum fengið hingað heims- meistara, bæði verðandi og fyrr- verandi,“ segir Helgi. Þess má geta að á fyrsta Reykjavík- urmótinu 1964 var það „töframað- urinn frá Riga“, Mikhaíl Tal, sem kom, sá og sigraði, en hann var þá tiltölulega nýbúinn að vera heims- meistari frá 1960-1961, en Helgi segir Tal hafa gefið fyrsta Reykja- víkurmótinu mikið vægi. „Tafl- mennska hans var stórglæsileg og það var hver snilldin á fætur ann- arri, sem gaf mótunum byr undir báða vængi,“ segir Helgi. En hvers vegna vildi þetta ein- valalið alþjóðlegra skákmanna koma til Reykjavíkur? „Skákin hefur alltaf verið langt á undan sinni samtíð hérna,“ segir Helgi, og segir að hugsanlega megi þakka það því forskoti sem Íslend- ingar hafi fengið í fræðilegum bak- grunni með bókagjöfum Daniels Willards Fiske um aldamótin 1900. „Íslendingar gátu því aflað sér þekkingar sem var ekki á al- mannafæri.“ Helgi nefnir einnig að Reykja- víkurskákmótið 1964 sé fyrsti al- þjóðlegi viðburðurinn sem nefndur er eftir borginni. „Mér þykir það mikil framsýni og eftir heims- meistaraeinvígið 1972 verður eyjan nokkurs konar tákn,“ segir Helgi og nefnir að einn keppand- inn í fyrra hafi komið hingað í hálfgerða pílagrímsför. „Hann vildi vitja leiðis Fischers og forseti evrópska skáksambandsins sagði að Reykjavík væri einn af þessum áfangastöðum skáklistarinnar sem allir vildu koma til, þó ekki væri nema einu sinni.“ Þá var það einnig mikill kostur í fyrstu Reykjavíkurmótunum að við áttum hér okkar eigin stór- meistara í Friðriki Ólafssyni, sem gat haft í fullu tré við hina erlendu meistara, og hafði alþjóðlega reynslu sem aðra íslenska skák- menn skorti á þeim tíma. „Friðrik varð hin stóra viðmiðun fyrir ís- lenska skákmenn í upphafi. Ef ein- hver Íslendinganna náði að vinna hann þótti það stórsigur, en það var erfitt því hann var svo öfl- ugur,“ segir Helgi, sem bætir við að Friðrik hafi átt sér stóran stuðningshóp hér á Íslandi, sem hafi fylgt Friðriki og hvatt hann til dáða. Byggt á eigin reynslu Helgi segir að í frásögninni hafi hann byggt nokkuð á sinni eigin reynslu af mótunum. En var erfitt fyrir Helga að skilja á milli skák- skýrandans og þátttakandans þeg- ar kom að sögurituninni? „Ég hef reyndar komið mér upp fyrir löngu nokkuð góðu kerfi til að að- greina þessa tvo þætti. Þetta eru tveir aðilar sem talast ekki endi- lega mikið við meðan á þessu stendur,“ segir Helgi. „Hluti af því að taka þátt í þessum mótum er að fylgjast með því sem er að ger- ast,“ segir Helgi, sem lýsir í bók- inni nokkrum atvikum sem hann sjálfur varð vitni að. Helgi segir einn styrk mótanna þann hversu margir hafi komið að þeim í gegnum tíðina. Hann segir að eftirminnilegasti skákstaðurinn hafi verið þegar mótin voru haldin á Hótel Loftleiðum um tíu ára skeið, en nú sé mjög vel búið að mótinu í Hörpunni. „Hún vekur mikla athygli keppenda, og hefur gengið alveg prýðilega þar,“ segir Helgi. Samferða skáksögunni í 50 ár  Helgi Ólafsson stórmeistari hefur tekið saman sögu Reykjavíkurskákmótsins í hálfa öld  Fyrra bindi af tveimur komið út  Reykjavík mikilvægur áfangastaður fyrir alla skákmenn Morgunblaðið/Árni Sæberg Reykjavíkurmót Friðrik Ólafsson (t.v.) hefur unnið mótið þrisvar sinnum. Morgunblaðið/Eggert Tók saman söguna Helgi Ólafsson stórmeistari segir sögu Reykjavíkurmótsins og er fyrra bindið komið út. 36 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015 Í bók Helga er að finna margar skemmtilegar lýsingar á því sem fram fór á Reykjavíkurmótunum, í bland við greiningar á helstu skák- um sem tefldar voru á hverju móti fyrir sig. Í fyrstu skákinni sem Helgi rekur í bókinni um Reykjavíkurskákmót- in er fjallað um fræga skák á milli Jóns Kristinssonar og Mikhaíls Tals, fyrrverandi heimsmeistara, en hún var tefld í fimmtu umferð mótsins, en Jón hafði þar hvítt. Tal tefldi Taímanov-afbrigði af Sikil- eyjarvörn, en gaf Jóni færi á að fórna manni í 13. leik og virtist sem eina leiðin úr stöðunni fyrir Tal væri sú að stýra skákinni í jafntefli með þrátefli, en í Morgunblaðinu birtist 31. janúar myndaröð á bak- síðu, með myndatextanum: „Loks þurfti Tal að hugsa.“ Þegar Tal lýsti skákinni hins veg- ar eftir á, sagði hann: „En það er of langt á milli Riga og Reykjavíkur til að gera jafntefli í 15 leikjum,“ og fórnaði drottningunni í skiptum fyrir sókn, en fórnin gaf Tal mun lakari stöðu. Jón náði hins vegar ekki að nýta sér tækifærið og neyddist á endanum til þess að gefa skákina. Svo fór að Tal vann allar skákir sínar á fyrsta mótinu nema eina, gegn Guðmundi Pálmasyni, sem náði jafntefli við heimsmeist- arann fyrrverandi. Tal í kröppum dansi Baksíða Morgunblaðsins 31. janúar 1964. Of langt milli Riga og Reykjavíkur  Tal fórnaði drottningunni Við prentum skýrslur - allt árið • Kjölheftun • Kjöllímdar • Rafræn vefútgáfa • Allar stærðir • Allt að 124 síður • Þykkari kápa • 80 -130 gr. innsíður Umslag annast prentanir ársskýrslna á gæðapappír og sér um allan frágang í framhaldinu. Stafræn prentun ársskýrslna er góður kostur og heldur kostnaði niðri og skiptir þá engu hvort óskað sé eftir einu eintaki af ársskýrslu eða 100. Hið sama gildir um annars konar skýrslur, t.d. afkomuskýrslur fyrir hvern fjórðung eða hálfsárslega, eða annars konar prentefni sem fyrirtæki eða félög þurfa að prenta og dreifa til hluthafa og/eða viðskiptavina. Fáðu tilboð í síma: 533 5252 eða umslag@umslag.is Við bjóðum hraða og góða þjónustu! Umslag | Lágmúli 5 | Reykjavík | Sími 533 5252 | umslag@umslag.is Hagnýtar upplýsingar www.umslag.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.