Morgunblaðið - 26.03.2015, Qupperneq 42
VIÐTAL
Guðrún Vala Elísdóttir
vala@simenntun.is
Logi Bjarnason myndlistarmaður
sýnir verk í Safnahúsinu í Borg-
arnesi þessa dagana. Sýningin
MORPHÉ er hans fyrsta einka-
sýning og stendur til 13. apríl.
Morphé er gríska og þýðir form,
en listamaðurinn sækir efnistök í
hugmyndir og minningar og mótar
í form.
Í Safnahúsinu sýnir hann ný-
stárleg verk, leikur sér að hlut-
bundnu og óhlutbundnu þar sem
mörkin eru óljós. Tvívídd, þrívídd,
málverkum eða skúlptúr er bland-
að saman í miðlun listarinnar.
Hræðsla að koma í þorpið sitt
,,Það er eflaust mesta hræðsla
hvers myndlistarmanns að koma
heim í þorpið sitt og sýna það sem
maður hefur verið að gera, en svo
sá ég að þetta væri kannski góð
leið til að stíga inn í óttann og
koma mínum hugðarefnum á
framfæri,“ segir Logi. Hann er
nefnilega borinn og barnfæddur
Borgnesingur, en flutti héðan um
tvítugt.
Hann lauk málaranámi í iðn-
skólanum og stúdentsprófi og ætl-
unin var að fara síðan í arkitektúr.
,,Ég var alinn upp við að gera eitt-
hvað praktískt,“ segir Logi ,,og
þegar að því kom var praktískara
að fara í verkfræði, en mér fannst
það þurrt og leiðinlegt nám og eft-
ir tvö ár fann ég út að enn prakt-
ískara var að gera það sem mig
virkilega langaði til, en ekki það
sem aðrir voru að segja mér að
gera, svo ég hætti og fór í list-
nám.“
Mikill hugarflugsmaður
Logi hóf nám í Myndlistarskól-
anum í Reykjavík, lauk B.A. prófi
frá Listaháskóla Íslands og M.A.
prófi frá Städelschule í Frankfurt
Þýskalandi. ,,Ég áttaði mig á því
að ég vildi helga mig myndlistinni,
þetta gefur mér frelsi til að tjá
mig og láta sköpunargáfuna njóta
sín. Ég er mikill hugarflugsmaður,
vil fanga hugmyndir og koma
þeim í form í einhverjum miðli“.
Til að dýpka vitundina hefur
listamaðurinn ennfremur numið
heimspeki í eitt ár við Háskóla Ís-
lands.
Heimspekileg nálgun
,,Í skólanum í Frankfurt er ein-
mitt heimspekileg nálgun og það
var mikill heiður að komast þar
inn. Ég var þrjú ár í skólanum en
alls fimm ár í Frankfurt og vann
eftir að námi lauk við gallerí, við
að mála og setja upp sýningar auk
þess að vera með stúdíó. Konan
mín, Margrét Erla Gunnarsdóttir,
var í námi þarna á sama tíma í
borgarskipulagi en hún er verk-
fræðingur og má segja að það hafi
verið býsna praktískt hjá mér að
næla í hana, svo ég gæti sinnt
liststörfum að vild“.
Fyrir um ári síðan fluttu þau til
baka, enda var dóttir Loga sem er
búsett hérlendis orðin langeyg
eftir pabba sínum. ,,Hún var sí-
fellt að minna mig á að ég hefði
bara ætlað að vera tvö ár í burtu,
og ég fann að það var tímabært
að flytja heim“.
Logi hefur tekið þátt í mörgum
sýningum bæði hérlendis og er-
lendis. Að svo stöddu á hann verk
á sýningunni „NÝMÁLAÐ 1“ í
Listasafni Reykjavíkur, Hafn-
arhúsi. Logi hefur hlotið ýmsar
viðurkenningar fyrir list sína, t.d
styrk úr sjóði Guðmundu Andr-
ésdóttur, listamannalaun 2015 og
hefur nýverið verið með vinnu-
stofur bæði í París og Berlín.
Hlaupaleiðir að skúlptúr
Á sýningunni hér fléttar Logi
saman hugarefnum sínum sem eru
hlaup og myndlist. Hann hleypur
ákveðnar leiðir aftur og aftur,
fangar þær með ,,gps tracker“
tekur síðan leiðirnar og kemur
þeim í listform. Hlaupaleiðin er
Borgarnes sem myndar skúlptúr-
inn. Ennfremur hefur hann fang-
að hlaupafatnað sinn í stein-
steypu.
,,Í mínum huga eru íþróttir list-
grein alveg eins og myndlist og
hér gat ég fléttað saman hlaupum
og list. Viðtökurnar eru góðar og
viðbrögðin hafa verið jákvæð, en
myndlist er uppeldi“ segir Logi
,,Fólk þarf að fatta að myndlist er
ekki bara Kjarval. Þetta snýst
ekki um að mála heldur að fanga
hugmyndir í einhvern miðil. Ég
spái því að eftir einhver ár verði
myndlæsi fólks orðið almennara.
Það er líka góð speki að sönn auð-
æfi felast í því sem peningar geta
ekki keypt“.
Tók listina fram yfir verkfræði
Logi Bjarnason myndlistarmaður sýnir í heimabænum, Borgarnesi Á sýningunni fléttar Logi
saman hugðarefnum sínum sem eru hlaup og myndlist Hefur hlotið ýmsar viðurkenningar
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Listaverk ,,Konurnar eru hrifnastar af þessu, hér má sjá nærbuxurnar mínar,“ segir listamaðurinn.
Hlaupleiðir Logi Bjarnson og hlaupaleiðir hans um Borgarnesið.
42 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015
Aukablað alla
þriðjudaga
Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033 Flo
ttir í fötu
m
Við seljum frægu
buxurnar
– frábært úrval
Páll Magnússon ræðir
við áhrifafólk, valdafólk
og „venjulegt fólk” um
pólitík og þjóðfélagsmál.
ÞJÓÐBRAUT
við miðlum af reynslu
www.hringbraut.is