Morgunblaðið - 26.03.2015, Side 48

Morgunblaðið - 26.03.2015, Side 48
48 FRÉTTIRKappakstur MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015 www.gilbert.is OKKAR MISSIR ALDREI EINBEITINGUNA ÚRSMÍÐAMEISTARI BAKSVIÐ Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Af úrslitum fyrsta móts ársins í form- úlu-1 kappakstrinum mætti ætla að Mercedesliðið muni áfram drottna á þeim 19 kappakstursbrautum heims- ins sem ökumenn leiða saman hesta sína á. Lewis Hamilton og Nico Ros- berg færðu liði sínu tvöfaldan sigur í Melbourne 15. mars en alls er óvíst að þeim verði jafn auðveldur leik- urinn í næstu mótum. Mun raunsann- ari mynd af stöðu einstakra liða og ökumanna mun fást strax í næsta móti, sem fram fer í Sepang í Malasíu um helgina. Ný vertíð, sú 66. í röðinni, hófst með nýjum bílum og breyttum reglum. Ár eftir ár hefur Al- þjóðaakstursíþróttasambandið (FIA) hert á tæknireglum með þeim afleið- ingum að hönnuðir liðanna hafa sótt út á ystu nöf til að ná sem mestum krafti úr bílunum og allri þeirri skil- virkni sem fræðilega er unnt að ná. Liður í því hefur verið að slípa burtu veikleika úr bílum síðasta árs. Fyrir vikið verða kappakstursbílarnir betri og betri með ári hverju. Skilvirkni aukin með því að spila á straumfræði þeirra; loftflæði undir og yfir bílinn, með hliðum hans, um vængi og vind- skeiðar. Stærsta breytingin í bílhönnuninni frá 2014 er að nefhönnunin hefur ver- ið skorin upp. Eru trjónur lægri í ár og mjókka jafnt og þétt fram á nef- broddinn. Leiðir það til minni loft- mótstöðu sem býður upp á að prófa sig áfram með vélarstillingar til að gera aflrásirnar enn skilvirkari. Í fyrra sætti veiklulegt og kraft- laust vélarhljóð bílanna mikilli gagn- rýni. Breytingar til hins betra hafa átt sér stað við þróun 2015-bílanna og þykja hljóðin frá þeim mun hraust- legri en í fyrra. Hefur mótorsmiðjum tekist að auka afl þeirra líka, ekki síst Mercedes og Ferrari, þrátt fyrir að styrkja yrði vélarnar svo hvert ein- tak endist lengur en í fyrra. Hefur ökumaður einungis úr fjórum vélum að spila í ár í stað fimm í fyrra. Renault virðist hafa setið eftir í vélsmíðinni við litlar vinsældir Red Bull liðsins sem segist hafa úr allt að 100 hestöflum minni krafti að spila en til dæmis bílar Mercedes Benz. Kenna báðir hinum um. Renault segist hafa stytt sér leið í mótorsmíðinni í vetur fyrir áeggjan Red Bull sem heimtað hafi að gengið yrði eins langt og unnt væri til að auka afl vélanna. Því segist Renault hafa hlaupið yfir venjuleg ferli í vél- arþróuninni til að þóknast Red Bull. Ekki hafi unnist tími til að ráða bót á vandamálum, sem upp hafi komið, fyrir fyrstu mót. „Við kunnum okkar fag og höfum smíðað kappakst- ursvélar í 36 ár og munum því ráða bót á þessu,“ sagði yfirmaður véla- deildar Renault í síðustu viku. Nýr vélasmiður er mættur til leiks í ár, Honda, sem leggur til aflrásir keppnisbíla McLaren. Þeir voru ekki sérlega beysnir í Melbourne en það getur átt eftir að breytast mjög því vélarafl þeirra var stórlega skrúfað niður í Ástralíu. Rauði liturinn og Räikkönen Ferrariliðið hefur gengið í gegn- um miklar breytingar frá í fyrra og virðist vera að komast til fyrri heilsu eftir slakan árangur 2014. Nýi stjór- inn Maurizio Arrivabene hefur breytt nær öllu nema rauða litnum á bílunum og Kimi Räikkönen. Það virðist vera að skila sér því Ferr- arifákurinn er hraðskreiðari og snarpari en í fyrra. Yfirbyggingin er knappari og aðskornari en í fyrra, einkum við vélarhús og afturenda. Loftaflið er sagt meira og gamla nef- ið, sem minnti á ryksugubursta, er horfið og lengra og línulegra komið í staðinn. Ferrarifákurinn er þó ekki jafn öflugur og bíll Mercedesliðsins og mætti því ætla að hlutskipti Ferr- ari verði að slást um titilinn „næst- besta liðið“ við Williams og Red Bull í ár. Stóra breytingin hjá Ferrari er að þar er Sebastian Vettel nú í skip- rúmi eftir margra ára keppni fyrir Red Bull. Við fyrstu sýn virðist sem Merce- desbílarnir hafi tekið einna minnst- um breytingum milli ára. Þar á bæ hefur þó mikil vinna verið lögð í að bæta íhluti sem ekki sjást. Trjónan er mjórri og lengri og pakkað hefur verið þéttar og þrengra um aftur- hluta bílsins en í fyrra. Herfræði Ekki var um flókna eða útsjón- arsama herfræði að ræða af hálfu keppnisliðanna í Melbourne. Aðeins eitt stopp hjá flestum til að skipta um dekk. Við öðru verður að búast strax í næsta móti og þeim sem framundan eru. Sepang-brautin bókstaflega hámar bíldekkin í sig á hrjúfu mal- bikinu í löngum og hröðum beygjum. Lágmark tvö dekkjastopp blasa við og jafnvel fleiri. Dekkjaframleiðandinn Pirelli hef- ur brugðist við aukinni getu keppn- isbílanna með því að endurhanna dekkin. Fyrir vikið er heildar „pakk- inn“ – dekk og bíll – mun fljótari í förum en í fyrra. Útlit fyrir drottnun Mercedes  Bílarnir eru straumlínulagaðri og vélarhljóðið er hærra og hraustlegra en á síðasta tímabili Ný dekkjahönnun Pirellidekkin eru betri og hraðskreiðari í ár en áður. Ný hönnun Trjónurnar hafa lækkað og mjókkað á bílunum, svo sem hjá Sauber. Framvængir liða eru engir eins. Eflaust er mörgum enn í góðu minni næstum því blóðugt stríð milli liðs- félaganna hjá Mercedes um heims- meistaratitil ökumanna í fyrra. Háðu þeir taugastríð innan vallar sem utan og harðvítug átök allt fram í lokamót ársins. Á endanum stóð Lewis Hamilton uppi sem meistari. Ökumenn formúlunnar hafa meira sjálfstraust en margur og því segir Nico Rosberg að röðin sé komin að sér í ár. Hamilton verður eflaust stærsta hindrunin í vegi hans og spurningin er hvort hann ráði við hann. Styrkur Rosberg var í tímatök- unum í fyrra en hann verður að sýna að hann geti líka lagt hann í lengri akstri en einum hring. Ætli hann sér titilinn er eins gott að hann verði kominn með undirtökin og það traust áður en ágústmánuður renn- ur upp. Þá mun honum fæðast frum- burður sem hugurinn verður líklega fremur við. Svefnlitlar nætur í við- urvist hvítvoðungs gætu komið nið- ur á honum á seinni hluta vertíð- arinnar og gagnast Hamilton. Þegar þessar línur eru skrifaðar hefur Lewis Hamilton ekki enn framlengt ráðningarsamning sinn við Mercedes. Og það þrátt fyrir að bæði hann og forsvarsmenn liðsins hafi ítrekað sagt í fyrrasumar og haust að samningar væru svo gott sem frágengnir. Þess vegna vakti það athygli í vikunni að Mercedes- maðurinn skyldi kaupa sér splunku- nýjan Ferraribíl sem smíðaður er í takmörkuðu upplagi og kostar 1,5 milljónir dollara, um 200 milljónir ís- lenskra króna. Virðist hann fremur kjósa þann bíl á götum úti en sport- bíl frá Mercedes. LaFerrari heitir bíll sá, er með 350 km/klst hámarks- hraða og kemst úr kyrrstöðu upp í 200 á sjö sekúndum. „Fyrir okkur er þetta ekkert vandamál,“ sagði Mercedesstjórinn Toto Wolff er kaupin urðu opinber. Hvort reyndin verður önnur verður tíminn bara að leiða í ljós. Sjálfstraust Nico Rosberg hjá Mercedes stefnir að því að vinna heimsmeist- aratitil ökumanna en þarf þá að sigra liðsfélaga sinn, Lewis Hamilton. Annað blóðugt stríð hjá Mercedes
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.