Morgunblaðið - 26.03.2015, Side 66
SJÁVARÚTVEGUR66
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015
fyrirtækja sem vinna að ýmsum
verkefnum tengdum hafinu,“ segir
Bjarki Vigfússon. „Smám saman
hefur starfsemin í húsinu stækkað
og breitt úr sér um efri hæð hússins,
í byrjun árs 2014 voru hér 35-40 fyr-
irtæki og í næstu viku opnum við
formlega þriðja áfangann, með
plássum fyrir um 50 fyrirtæki sam-
tals og veitingastað sem Þórir
Bergsson mun reka.“
Nýtur verkefnið m.a. stuðnings
Faxaflóahafna sem hafa skaffað gott
húsnæðið sem Sjávarklasinn leigir af
þeim og leigir svo áfram til fyr-
irtækja og frumkvöðla.
Eftirtektarverður árangur
Bjarki er hagfræðingur hjá Ís-
lenska sjávarklasanum. Hann segir
starfsemina hafa leyst mikla krafta
úr læðingi og mörg fyrirtækin sem
hafa fengið þar inni, bæði eldri fyr-
irtæki og sprotar, hafa sótt í sig
veðrið á þessum skamma tíma og
stækkað hratt.
„Norðursalt var hér í frum-
kvöðlasetrinu hjá okkur á sínum
tíma en er núna flutt í eigið húsnæði
hérna á Grandanum með alla sína
pökkun og stjórnun undir einu þaki,
og stýra þaðan útflutningi um allan
heim,“ segir Bjarki. „Herberia er
annað dæmi um sprota sem er kom-
inn vel af stað. Fyrirtækið þróar
lausasölulyf sem meðal annars nýta
eiginleika sjávarfangs og fluttu hing-
að inn strax eftir að hafa tekið þátt í
Startup Reykjavík verkefninu. Að-
standendur Herberia eru núna búnir
að ljúka frumfjármögnun og halda
áfram með þetta áhugaverða verk-
efni.“
Bjarki nefnir líka Thorice sem
dæmi, fyrirtæki sem var um tíu ára
gamalt þegar það flutti yfir í Hús
sjávarklasans. „Síðan þá hefur Tho-
rice tekið stórt stökk og er í miklum
ham við að þróa og selja kælitækni
fyrir sjávarútveg, kjúklingavinnslu
og annan matvælaiðnað.“
Kröftug samlegðaráhrif
Það er eins og galdrar hafi verið
leystir úr læðingi þegar svona mörg
fyrirtæki komu saman undir einu
þaki og segir Bjarki að hugmyndin
hafi einmitt verið að skapa þessi já-
kvæðu samlegðaráhrif. „Það mátti
heyra efasemdaraddir um verkefnið
í byrjun, geri ég ráð fyrir, en svo
kom rækilega í ljós að þetta er hægt,
og að þessi umgjörð virkar. Hér hafa
fyrirtækin bæði góða aðstöðu en líka
möguleika á að starfa saman og nýta
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Þ
að kom mörgum á óvart að
sjá hvað starfsemin
blómstraði hjá Sjávarklas-
anum við Grandagarð. Hug-
myndin að verkefninu kviknaði árið
2011 og húsnæðið var opnað árið
2012 í vöruhúsi við Reykjavíkurhöfn
sem lengi hafði staðið ónotað.
„Á fyrstu stigum voru hér á bilinu
12-15 fyrirtæki, mörg þeirra tækni-
fyrirtæki á sviði sjávarútvegs, og
frumkvöðlasetur með hópi sprota-
sameiginlegt tengslanet til góðra
verka. Íslenski sjávarklasinn er líka
stærri en þessi 50 fyrirtæki sem eru
hér í húsinu, í okkar neti eru minnst
100 íslensk fyrirtæki sem vinna með
okkur, og fjöldi erlendra aðila líka.
Svo koma auðvitað fjárfestar að
þessu í auknum mæli sem vilja kynn-
ast sprotunum og við leggjum okkur
fram um að tengja þessa aðila.“
Segja má að starfsemi margra fyr-
irtækjanna í húsinu sé næsta skrefið
í þróun sjávarútvegsins. „Ég útskýri
þetta stundum þannig að áður fyrr
hafi greinin gengið út á það að
bjarga verðmætunum: að veiða sem
mest og finna síðan leiðir til að
bjarga þeim verðmætum, salta fisk-
inn og þurrka, svo hann kæmist á er-
lenda markaði. Síðan breyttist
áherslan, greinin fór að snúast um að
það að skapa verðmæti úr hráefninu,
nýta fiskinn sem best og nota
tæknina til að stjórna vinnslunni og
koma vörum í hæsta gæðaflokki í
hendur neytenda,“ útskýrir Bjarki.
„Nú snýst þróunin um að nýta hrá-
efnið enn betur, og t.d. þá hluta
fisksins sem hafa lent í sjónum eða
ruslatunnunni, s.s. með líftækni-
afurðum sem munu að lokum skila
mjög miklum virðisauka. Eðli máls-
ins samkvæmt verður ekki allur okk-
ar sjávarútvegur byggður á slíkri
starfsemi en mjög líklegt er að í
framtíðinni verði starfandi hér á
landi nokkur mjög öflug fyrirtæki af
þessum toga sem munu skapa gríð-
arleg verðmæti úr hráefni sem áður
var talið rusl.“
Í tilefni af stækkun Húss sjáv-
arklasans verður efnt til „Ný-
sköpunarmessu“ í húsinu á mið-
vikudag milli kl. 15 og 17. „Við
höfum beðið öll fyrirtækin í
húsinu að opna dyr sínar og
sýna gestum hvað þau eru að
fást við. Einnig höfum við boðið
öðrum fyrirtækjum í sjáv-
arklasanum að koma og vera
með, sýna tækni sína og vörur.
Hingað geta gestir komið og
séð starfið með eigin augum og
kannski fengið að smakka ljúf-
feng matvæli eða prufa snyrti-
vörur og fæðubótarefni sem
hafa verið þróuð í húsinu,“ seg-
ir Bjarki. Þessu tengt nefnir
Bjarki að vonir standi til að
opna matarmarkað á jarðhæð
hússins á næsta ári.
„Það verkefni er ekki komið
langt á veg en hugmyndin er
að hafa þar aðstöðu með sölu-
básum og „götumat“, ekki
ósvipað og þekkist á vinsælum
mörkuðum erlendis eins og
Torvehallerne í Kaupmanna-
höfn og Mathallen í Ósló. Þar
myndu gestir geta kynnt sér og
keypt það flottasta og besta
sem íslensk matarmenning og
íslenskur sjávarútvegur bjóða
upp á.“
Sér fyrir sér markað í
anda Torvehallerne
Staður þar sem hlutirnir gerast
Blómleg starfsemi
hefur verið hjá Sjávar-
klasanum undanfarin
ár Æ fleiri fyrirtæki
fá inni á Grandagarði
og þriðja og síðasta
stækkun verður form-
lega vígð á miðviku-
dag Hugmyndir
eru uppi um að mat-
armarkaður verði
opnaður á jarðhæð
hússins
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Samvinna „Hér hafa fyrirtækin
bæði góða aðstöðu en líka mögu-
leika á að starfa saman og nýta
sameiginlegt tengslanet til góðra
verka,“segir Bjarki Vigfússon.
Morgunblaðið/Ómar
Orka Húsakynnin skapa góða umgjörð utan um metnaðarfullt starf.
Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is
Okkar þekking nýtist þér
• Mylur alla ávexti, grænmeti
klaka og nánast hvað sem er
• Hnoðar deig
• Býr til heita súpu og ís
• Uppskriftarbók og
DVD diskur
fylgja með
Lífstíðareign!
Tilboðsverð kr. 109.698
Með fylgir Vitamix sleif
drykkjarmál og svunta
Fullt verð kr. 137.122
Meira en bara
blandari!