Morgunblaðið - 26.03.2015, Side 86

Morgunblaðið - 26.03.2015, Side 86
86 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015 Við stækkum á hverju ári og höfum stækkað ört eftir hrun,“ seg-ir Svanur Hafsteinsson, eigandi Grillvagnsins. „Við erumkomnir með sjö grillbíla, en það hefur aukist í giftingum, ætt- armótum og fermingum hjá okkur. Við mætum með bílinn á svæðið og afgreiðum fyrir innan yfir vetrartímann. Við erum með þrjá fasta starfsmenn en þegar mest lætur um helgar erum við 12-15 manns. Það er langmest að gera hjá okkur á föstudögum og laugardögum, það vilja allir vera á sama tíma. Á sumrin er meira að gera í miðri viku en það fer eftir sólardögum. En svo get ég nefnt þér dæmi að í fyrra- sumar rigndi mjög mikið en þá fer fólk minna í ferðalög og heldur sig meira heima og því var ekkert minna að gera hjá okkur. Eiginkona mín er Hildur Ruth Harðardóttir, hún var flugfreyja en er hætt að vinna við það og er með annan fótinn í fyrirtækinu. Ég á fjögur börn og þau heita Herdís Guðrún, Hörður Freyr, Hafsteinn Máni og Harpa Árný. Ég verð að vinna í tilefni dagsins en konan ætlar að dekra við mig á morgun, skilst mér alla vega, það er svo mikið að gera í dag. Svo verð- ur haldið upp á afmælið 11. næsta mánaðar og býð ég bestu vinum og ættingjum í veislu.“ Svanur kemst helst í frí á veturna. „Þá reynum við að koma okkur til útlanda. Konan þarf helst að draga mig út svo ég hlaupi ekki alltaf í vinnuna. Svo lokum við alltaf um verslunarmannahelgina og það eru einu sjö dagarnir á sumrin sem maður fær örugglega frí.“ Svanur Hafsteinsson er 50 ára í dag Morgunblaðið/Golli Við grillið Svanur stofnaði Grillvagninn ásamt föður sínum 1990. Stækka á hverju ári Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Fljótsdalshérað Hilmar Óli fæddist á Akureyri 13. apríl 2014 kl. 13.43. Hann vó 3.602 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Birkir Óli Kjartansson og Karen Eva Axelsdóttir. Nýr borgari I ngifinna fæddist á Hallbjarn- arstöðum í Skriðdal 26.3. 1945 en fjölskyldan flutti í Hauga í sömu sveit þegar hún var mánaðargömul: „Þar ólst ég upp í torfbæ þar til ég var sjö ára. Þá fluttum við í húsið sem pabbi byggði á Haugum. Barnaskólinn var farskóli, oftast á heimili mínu. Síðan tók við Alþýðu- skólinn á Eiðum 1960-63 og Hús- mæðraskólinn á Hallormsstað 1963- 64. Fyrir aldamótin tók ég nokkra áfanga í ensku og þýsku í fjarnámi við ME. Á skólaárunum var ég við síld- arsöltun á sumrin og eitt vor í skóg- ræktinni á Hallormsstað en annars við bústörfin á Haugum.“ Eftir námið á Hallormsstað tók við búskapurinn á Hvanná en þar hafði Arnór, eiginmaður Ingifinnu, tekið við búi sem var sauðfjárbú. Þau komu fljótlega upp nokkuð stóru búi en síðar fór Arnór að vinna á vörubíl í vegagerð og var verkstjóri, einkum á sumrin. Þá hafði Ingifinna í nógu að snúast við heyskap og önnur bústörf en börnin hjálpuðu til eftir megni. Árið 1986 var Arnór kosinn í sveit- arstjórn og varð oddviti en á þeim ár- um var mikil uppbygging í sveitinni og því oft mikill erill á heimilinu: „Þetta var lærdómsríkur tími. Ég lærði á tölvu og reyndi að hjálpa til við bókhaldið. Arnór var svo áfram í sveitarstjórn þegar sveitirnar voru sameinaðar, síðast í Fljótsdals- hérað.“ Ingifinna er náttúrubarn: „Ég hef gaman af að smala og jeppaferðir á Ingifinna Jónsdóttir, húsfreyja og bóndi á Hvanná – 70 ára Á hreindýraslóðum Ingifinna og Arnór á veitingastaðnum í Skjöldólfsstaðaskóla í́ tilefni afmælisins um helgina. Úr torfbæ í tölvuöld Traktorar á Haugum Þessir tveir sýna þróun í búvélatækni á sl. 60 árum. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Alhliða þjónusta fyrir vökvadælur og vökvamótora Sala - varahlutir - viðgerðir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.