Morgunblaðið - 26.03.2015, Side 88

Morgunblaðið - 26.03.2015, Side 88
88 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú bregst kröftuglega við umhverf- inu um þessar mundir. Passaðu bara upp á staðreyndirnar og hafðu hemil á egóinu. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er í mörg horn að líta og þér finnst þú stundum ekki komast yfir allt saman. En ef maður teygar lífið í botn má allt eins búast við því að maður sulli niður á sig. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert með hugann við allt of margt og þarft að geta verið í næði til að koma jafnvægi á hlutina. Að setja saman sögur og ljóð er góð dægrastytting. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Himintunglin fylgjast með þér á ferð og flugi. Kannski kaupir þú eitthvað nýstár- legt, tæknilegt eða nútímalegt. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þeir möguleikar sem þú stendur nú frammi fyrir virðast óvenju fjölbreyttir. Hugsaðu þig því vel um áður en þú deilir um þau við vin þinn og vertu viðbúinn að missa hann. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Fyrir löngu settir þú þér viðmið og þú gerir það aftur í dag. Reyndu að gæta þess að láta ekki útgjöldin vera fram úr hófi. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er hætt við því að hugmynd þín um breytingar á heimilinu reynist kostn- aðarsöm. En þegar fjölskyldan er í sífellu að rífast gengur þetta ekki lengur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Ef þú leyfir egóinu að ráða ferðinni gæti það orðið þér að falli. Næsta áætlun, takk! Um leið og þú færð verkefni sem vekur hjá þér áhuga fyllistu orku. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Breytingar breytinganna vegna hafa ekkert upp á sig – eru aðeins flótti frá raunveruleikanum. Stöðvaðu hugsanir sem valda þér samviskubiti eða minnimáttar- kennd. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er ástæðulaust að hafa horn í síðu annarra fyrir það eitt að þeir eru ekki alltaf sammála þér. Gerðu þér samt ekki of miklar vonir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ástvinir munu vilja hjálpa þér og leysa öll þín vandamál – í flestum tilfellum á rangan hátt. Ef þú reynir að breyta þessu mun ýmislegt koma þér á óvart. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér finnst allt vera mögulegt í dag og því er svolítil hætta á því að þú missir tengslin við raunveruleikann. Láttu funda- höld ekki taka of mikinn tíma frá þér. Þetta byrjaði allt á sunnudaginnþegar Friðrik Steingrímsson skrifaði í Leirinn: Reynir var efins og rengdi sig og Rúna af ástríðu flengdi sig. En Júdas var klaufi í jarðnesku gaufi, hann gekk bar’út og hengdi sig. Hallmundur Kristinsson var í þeim svifum á Boðnarmiði: Síðan var Laufey líka ljómandi hugguleg píka. Hún fékk stundum greitt fyrir það eitt. Fegurðin gerði hana ríka. Og áfram hélt hann: Svo þegar Hildur frá Heiði helst vildi sofa hjá Eiði og viðraði það, vitið þið hvað? Hann virtist á öndverðum meiði! „Flott limra Hallmundur“ sagði Sindri Heimisson, „Stóðst ekki mát- ið að prjóna við stefið“: Svo virðist sem Hildi frá Heiði hrjái nú talsverður leiði. Því ekkert hún fékk og enn síður gekk sú ætlan að sofa hjá Eiði. Karlinn á Laugaveginum hafði sína sögu að segja: Að hugsa sér hamingju mína! Hún hringdi og lét í það skína. Ég ók upp í Kjós og fór út í fjós og úr flórnum þar horfði á mig, – Stína. Og enn kvað hann: Það var bankað, – ég las milli lína. – hvort langaði í nærveru mína. Ég ekki’ í það spáði. Fór út samt og gáði: Já, auðvitað var það hún Stína Kerlingin á Skólavörðuholtinu dæsti og sagði: Hér ligg ég á dasaðri dýnu, döpur með niðurgangspínu, við kulnaðan arin og Karlinn er farinn að eltast við einhverja Stínu. Skírnir Garðarsson var með hug- ann uppi í Kjós : Með flórsköfu fipast ei Dóra, við fjósverkin mun ekki slóra, sá kvensami piltur, sem hvergi er stilltur, en kveðst á við Írafells-Móra. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Júdasi, karli og kerl- ingu og ýmsum kvinnum Í klípu „GOTT. NÚ SLÆRÐU INN LYKILORÐIÐ.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG HRINGDI ÁÐAN, EN KONAN ÞÍN SAGÐI AÐ ÞÚ VÆRIR EKKI NÓGU GÁFAÐUR TIL AÐ LESA ÞESSAR BÆKUR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að feta þá braut sem þið ákváðuð saman. KLÓR, KLÓR, KLÓR KLÓR, KLÓR, KLÓR KLÓR, KLÓR, KLÓR HÆTTU AÐ KLÓRA SÓFANN, GRETTIR! ÉG ÁTTI EKKI VIÐ AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ BYRJA AFTUR Á SÓFANUM! HÆTTU AÐ KLÓRA GLUGGATJÖLDIN, GRETTIR! ÉG VAR AÐ ÁTTA MIG Á ÞVÍ... ... AÐ ÉG ER MJÖG LOFTHRÆDDUR. Það heitir víst að bera í bakka-fullan lækinn að tala um ástand gatna á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana, þar sem holur og á sumum stöðum skurðir í malbikinu valda ökumönnum ýmsum búsifjum. Til að mynda náði ein holan að fara illa með miðstöð Víkverja hægra megin, þannig að þeir sem hætta sér með honum í bílferð þurfa að þola kaldan blástur alla leiðina. x x x Víkverji kýs reyndar að taka þannpól í hæðina að líta jákvæðum augum á þetta skelfingarástand, því að Víkverji er orðinn nokkuð góður í ökuleikni að eigin mati og sveigir framhjá verstu sökudólgunum áður en bíllinn lendir í holunum líkt og hann væri heimsmeistari í stórsvigi án atrennu. Þessir pollýönnutaktar Víkverja breyta því þó ekki að hann er orðinn nokkuð langeygður eftir því að geta keyrt í og úr vinnu án þess að hafa áhyggjur af ónýtum dekkjum, eða því að bíllinn hoppi og skoppi og fari hreinlega í sundur áð- ur en hann kemst á áfangastað. x x x Raunar virðist sem að á einum staðá akstursleið Víkverja hafi verið farið út í einhvers konar „reddingu“, þar sem búið var að fylla í stærstu holurnar. Fyllingarnar voru þó ekki betri en svo, að í staðinn fyrir holur voru komnar einhvers konar mal- biksþúfur og varð árangurinn því sá sami, að bíll Víkverja hoppaði og skoppaði líkt og fyrr, nema bara í öf- ugri röð. x x x Víkverji fylltist engri sérstakrigleði þegar fyrirliði Liverpool til margra ára, Steven Gerrard, ákvað að stoppa við í um 40 sekúndur í leik Bítlaliðsins við lið Víkverja í enska boltanum. Raunar fann hann eigin- lega bara til með honum. Síðasti leikurinn gegn erkifjendunum í Manchester United, og ekki bara fær fyrirliðinn ekki að byrja leikinn, heldur endar hann á því að gera nán- ast út um vonir síns eigin liðs með fáránlegri hegðun sem verðskuldaði beint rautt. Þau hafa eflaust oft ver- ið léttari sporin af vellinum en þann daginn. víkverji@mbl.is Víkverji Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. (Jóhannesarguðspjall 15:12) Hvern ætlar þú að gleðja í dag?
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.