Morgunblaðið - 26.03.2015, Síða 94
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015
áfram telja. Halldór segir Dixon
hafa samið lög fyrir Muddy Wa-
ters, blússtandarda sem allir hljóti
að kannast við.
Ein áhrifamesta kona blússins
Bob Margolin er margverðlaun-
aður tónlistarmaður og áhrifamik-
ill í Chicaco-blúsnum síðustu ára-
tugi. Hann lék í hljómsveit Muddy
Waters á árunum 1973-80 og Bob
Stroger er goðsögn í blúsnum, að
sögn Halldórs, orðinn 84 ára.
„Hann er bassaleikari blússins,
margverðlaunaður og best dress-
aði blúsmaður heims,“ segir Hall-
dór um hinn smekklega Stroger.
Þriðji aðalgesturinn er svo Deb-
bie Davies. „Hún er mjög áhuga-
verð og hefur verið kosin blúsmað-
ur ársins í Bandaríkjunum,“ segir
Halldór. Davies sé frábær gít-
arleikari og söngkona, ein áhrifa-
mesta kona blústónlistarinnar
undanfarna áratugi og margverð-
launuð. „Debbie Davies er merki-
leg að því leyti að hún var ákveð-
inn frumherji, var t.d. að spila
með Albert Collins sem var mjög
frægur og góður blúsari. Hún var
lengi í bandinu hjá honum,“ segir
Halldór. Davies hafi einnig leikið
með John Mayall og eftir að Ste-
vie Ray Vaughan lést hafi hljóm-
sveitin hans, Double Trouble, gert
plötu með henni sem gítarleikara.
Það segi sitt um gæði Davies.
Gefandi menn
Halldór hefur fengið margar
blúshetjur til landsins á hátíðina
frá því stofnað var til hennar og
leikið með þeim. Spurður að því
hvort hann hafi aldrei fundið fyrir
stressi að leika með þessum
hetjum segir hann svo ekki vera.
Það hafi þó komið fyrir að hann
fyndi fyrir kvíða. „Það er bara
gott,“ segir Halldór um kvíðann og
bætir því við að reyndir tónlist-
armenn séu almennt vel und-
irbúnir og á tánum.
– Blúsinn er líka þannig að þú
veist aldrei hvað gerist á sviðinu,
það er mikill spuni í honum...
„Nákvæmlega, þetta er frjálst
form og svo eru þetta svo gefandi
menn,“ segir Halldór. Blússtjörn-
urnar undrist líka oft hversu góðir
íslensku blústónlistarmennirnir
séu.
Og talandi um íslenska blús-
menn þá koma fram á hátíðinni
KK band, Blúsband Björgvins
Gíslasonar, Vintage Caravan og
Blue Ice band. Yngstir eru strák-
arnir í Vintage Caravan sem léku
á Blúshátíð fyrir nokkrum árum
og slógu í gegn, að sögn Halldórs.
„Þeir eru að túra núna um Evrópu
og það verður rosa gaman að fá
þá. Þetta eru ungir strákar, um
tvítugt og spila blúsrokk af bestu
gerð,“ segir Halldór.
Treginn mýta
Spurður að því hvort blúsmenn
verði ekki að finna til trega til að
geta leikið blús af sannfæringu
segir Halldór að það sé ákveðinn
misskilningur að blús sé tregi.
„Þetta er ekki tregi, þetta er blús
og blús getur verið „happy“ blús,
ánægjulegur og fjörugur. Menn
hafa einhverja mýtu um þetta. Ís-
lendingar voru tregafullir í sínum
rímum, kveðandi skítkaldir undir
húsvegg hjá danska kaupmann-
inum eða eitthvað og þá voru þeir
með einhvern svona trega. En það
er ekki beint blús því blús er
frelsandi afl. Að finna fyrir sjálf-
um sér. Maður finnur fyrir blús
þegar maður kveður barnið sitt
sem er að fara í skóla til Ameríku
í doktorsnám. Þú ferð út á flug-
völl og keyrir til baka með ákveð-
inn blús í hjarta en það er líka
„happy“ blús. Þetta eru kald-
hæðnislegar myndir lífsins, sög-
urnar sem eru í blúsnum. Það
kemur eitthvað fyrir alla í lífinu,“
útskýrir Halldór.
Betri upp úr fertugu
Spurður að því hvort blúsmenn
verði þá ekki betri með aldrinum,
með aukinni lífsreynslu, segir
Halldór að svo sé og að hann hafi
tekið eftir því að blúsmenn verði
betri upp úr fertugu, plöturnar
þeirra verði dýpri. Þetta eigi m.a.
við um plötur B.B. King, Freddie
King, Albert King og Muddy Wa-
ters.
– Það gerist eitthvað um fer-
tugt?
„Kannski, ég veit það ekki,“
segir Halldór kíminn. Niðurstöður
hans rannsókna bendi til þess þó
þær séu ekki hávísindalegar.
Morgunblaðið/Kristinn
Blúsmenn Halldór og Muddy Waters, í formi pappalíkneskis, taka lagið saman í hljóðfæraversluninni Rín.
Goðsögn Bob Stroger.Chicago-blúsari Bob Margolin. Áhrifamikil Debbie Davies.
„Blús er frelsandi afl“
Blúshátíð í Reykjavík hefst 28. mars með bílum, blús og beikoni
Helguð 100 ára fæðingarafmæli Muddy Waters og Willie Dixon
Bob Margolin, Debbie Davis og Bob Stroger verða heiðursgestir
Frekari upplýsingar um hátíðina,
dagskrá og miðasölu m.a., má
finna á www.blues.is.
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Blúshátíð í Reykjavík hefst laug-
ardaginn 28. mars og stendur til
og með 2. apríl. Líkt og hin síð-
ustu ár fara þrennir stórtónleikar
fram á Hilton Reykjavík Nordica í
dymbilviku, þriðjudags-, miðviku-
dags- og fimmtudagskvöld. Hátíð-
in hefst með Blúsdegi á Skóla-
vörðustíg sem lýkur með
tónleikum á Borgarbókasafni
Reykjavíkur við Tryggvagötu kl.
16.
„Þetta er tólfta hátíðin. Þetta
byrjaði 2004, á Hótel Borg og við
færðum okkur fljótlega upp á Hil-
ton Reykjavík og höfum verið þar
síðan. Svo hefur þetta smám sam-
an þanist út, við byrjuðum með
Blúsdaginn í miðborginni daginn
fyrir pálmasunnudag árið 2009
með blús og alls konar uppá-
komum,“ segir Halldór Bragason,
blúsmaður og listrænn stjórnandi
hátíðarinnar. Á Skólavörðustíg
verður grillað, Beikonfélagið mun
bjóða upp á blúsbeikon og að
vanda verður glæsilegum forn-
bílum ekið niður stíginn. „Bílar,
blús og beikon. BBB,“ segir Hall-
dór kíminn. „Við förum með blús-
inn til fólksins.“
Ungliðar og gamlir skunkar
Fyrir framan tónleikasalinn á
Hilton Reykjavík Nordica verður
blúsklúbbur starfræktur meðan á
hátíðinni stendur. Þar munu ungir
blúsmenn koma fram með eldri og
reyndari. „Það er stefna okkar að
gefa ungu fólki tækifæri til að
spila á alvöru hátíð og við hófum í
fyrra samstarf við Músíktilraunir.
Á þeim er blúsaðasta bandið valið
og það byrjar hátíðina. Svo hafa
margir, góðir tónlistarmenn debú-
terað á Blúshátíð og við verðum
núna með mjög efnilega ungliða
sem munu koma á óvart. Sumir
þeirra koma aftur og aftur, þrosk-
ast sem tónlistarmenn og kynnast
okkur gömlu skunkunum,“ segir
Halldór og hlær.
– Ungir blúsarar hljóta líka að
læra mest af því?
„Já, já. Þú getur rætt fallhlíf-
arstökk uppi í sófa en þú veist
ekki hvernig það er fyrr en þú
ferð út úr vélinni,“ svarar Halldór.
Til heiðurs Waters og Dixon
Hátíðin í ár er helguð 100 ára
fæðingarafmæli blúsmannanna
Muddy Waters og Willie Dixon og
miklar blússtjörnur munu troða
upp: blúsgítarleikarnir Bob Mar-
golin og Debbie Davis og Bob
Stroger bassaleikari. Halldór segir
árið 1915 hafa verið afar gjöfult
því fleiri meistarar tónlistarsög-
unnar hafi fæðst þá, þ. á m. Billie
Holiday og Sister Rosetta Tharpe.
„Við í blúsnum eigum nátt-
úrlega Muddy Waters og Willie
Dixon mikið að þakka. Kannski
vita menn ekki hver Willie Dixon
var en þetta var bassaleikari í
Chicago sem tók upp plötur fyrir
Howlin’ Wolf og Muddy og samdi
urmul af lögum. Þegar ég var að
byrja að spila og hlusta á Led
Zeppelin, Cream og Rolling Sto-
nes og alla þessa bresku þá var
maður með plötuumslagið og skoð-
aði það meðan maður hlustaði. Þar
stóð alltaf að höfundur væri W.
Dixon, á öllum plötunum,“ segir
Halldór og nefnir nokkur fræg
Dixon-lög sem ensku blúsrokk-
ararnir gerðu að sínum: „You Sho-
ok Me“, „Whole Lotta Love“,
„Little Red Rooster“, „Got my
Mojo Working“. Þannig mætti
Náttúru-
lega
góði
safinn
TRÓPÍ
fæst
núna
líka í
1. lítra
fernum
©
20
15
T
he
C
o
ca
C
o
la
C
o
m
p
an
y
-
al
lr
ig
ht
s
re
se
rv
ed