Morgunblaðið - 26.03.2015, Qupperneq 102
102 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2015
AF TÓNLIST
Heiða Eiríksdóttir
heidatrubador@gmail.com
Á þriðja undanúrslitakvöldiMúsiktilrauna var mikiðum skemmtilegar tilraunir,
jafnt í hefðbundnara rokki sem og
raftónlist, og stóðu því tilraun-
irnar vel undir nafni að þessu
sinni. MSTRO hóf leik, einn í sinni
hljómsveit ásamt tölvu og raf-
magnsgítar og þrátt fyrir örlítið
stress í upphafi tók tónlistin fljót-
lega á flug og lagasmíðar voru
hrífandi og mikið lagt í útsetn-
ingar. Einnig hljómaði röddin vel.
Calicut var dúett frá Hafnarfirði
og Reykjavík og þar var líka flott-
ur söngur en tónlistin var lág-
stemmt raf-popp byggt á stemmn-
ingu og hljómi fremur en
framvindu laga.
Þriðja hljómsveitin, Fjöltengi,
snarbreytti raftilraunum í pönk-
tónleika, enda hljómsveit frá
Kópavogi, þaðan sem Fræbbbl-
arnir, konungar íslenskrar pönk-
tónlistar koma. Það var ekki laust
við að maður greindi áhrif frá
þeirri merku sveit og pönkið lifir
greinilega góðu lífi í Kópavogi.
Við fengum næst hefðbund-
ustu sveit kvöldsins, John Doe frá
Skaganum, sem spila klassískt
rokk. Sumar tilvitnanir í gömlu
meistarana voru kannski full-
augljósar jafnvel þótt ekkert sé
svo sem nýtt undir sólinni, en það
mætti samt vanda betur lagasmíð-
ar og liggja örlítið meira yfir
þeim.
Stígur var síðasta hljómsveit
fyrir hlé og þar var einn af fimm
meðlimum hinn færeyski Dávur í
Dalí. Tvímælalaust eitt mest kúl
nafn sem ég hef heyrt lengi, en
Dávur lenti hins vegar í heilmiklu
gítarbasli í fyrra laginu, sem trufl-
aði flæðið. Þegar allt gekk upp í
síðara lagi kom þessi framúrskar-
andi hljómsveit í ljós, með afar
fínni söngkonu. Hljómsveitin þarf
kannski örlítið meiri spilareynslu
en þarna er fínn efniviður.
Eftir hlé hóf Sara leik og hún
fékkst við tilraunakennda naum-
hyggju-raftónlist. Sönglínur voru
óhefðbundnar en helst vantaði upp
á fyllingu í undirspili í fyrra lagi.
Síðara lagið gekk hins vegar upp,
taktur og söngur frábær, og þar
komst hún á flug.
Hughrif voru næst, sjö með-limir sem komu héðan og
þaðan af Suðurlandi. Sveitin segist
ekki vera búin að festa sig í neina
tónlistarstefnu heldur spili bara
það sem þeim þyki skemmtilegt.
Hún hefur þó starfað mjög stutt, í
um 2 mánuði, og á því eflaust bæði
eftir að finna sig betur og semja
sín bestu verk, en það gekk furðu-
vel upp að raða tónum skipulega í
rýmið þótt fyrra lagið hafi verið
frumlegra, en það er bara um að
gera að halda áfram að semja. Æf-
ingin skapar meistarann og allt
það. Silver killer tók þá við en
hljómsveitarmeðlimir eru allir frá
Grafarvoginum. Það er erfitt að
lýsa því hvernig tónlist hún spilar
en það er greinilega eitthvað mjög
dularfullt að gerast uppi í Graf-
arvogi, svo mikið er víst.
Næst síðasta hljómsveit
kvöldsins var frá Hvolsvelli í
Rangárþingi eystra og innihélt
fjóra krakka, 15 og 16 ára, tvær
stúlkur og tvo stráka. Þau kalla
sig Sykurpúðana og það gefur
auðvitað tóninn að skíra hljóm-
sveit sína Sykurpúðana enda er
tónlistin sykursæt og líklega
óhætt að kalla hana krúttaða líka.
Stelpurnar syngja vel og radda
flott en rödd söngvarans passaði
ekki alltaf alveg inní í fyrra lag-
inu. Síðara lagið var þó töluvert
betra og sérdeilis ágætur texti á
íslensku var til við það. Raunveru-
legt unglingadrama, enda hét það
Dramadrottning dauðans.
Að lokum tóku Frenzy við,
instrumental trio með nemum úr
FÍH, sem spiluðu djassaða rokk-
hræru og það var erfitt að fylgja
öllum hugmyndum þeirra eftir,
svo hratt komu þær og fóru. Fyrir
vikið varð ég að minnsta kosti svo-
lítið ringluð, en það er kannski
ágætt stundum að láta rugla sig í
ríminu.
Tvær sveitir voru kosnaráfram: Salurinn valdi Kópa-
vogspönkarana í Fjöltengi en
dómnefnd kaus Calicut. Þá er eftir
eitt undanúrslitakvöld áður en al-
vara lífsins og skemmtun ársins,
sjálft úrslitakvöld Músiktilrauna,
verður haldið næsta laugardag.
Tilraunir til fyrirmyndar
Silver Killer Sveit frá Grafarvogi.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fjöltengi Snarbreytti raftilraunum í pönktónleika, enda frá Kópavogi.
»Raunverulegt ung-lingadrama, enda
hét það Dramadrottning
dauðans.
Hughrif Æfingin skapar meistarann. Sykurpúðarnir Fluttu sykursæta tónlist.
Frenzy Lék djassaða rokk-hræru.
Stígur Framúrskarandi hljómsveit.
Sara Naumhyggju-raftónlist. MSTRO Eins manns hljómsveit.
Calicut Dómnefnd kaus Calicut. Flottur söngur og tónlistin lágstemmt raf-
popp byggt á stemmningu og hljómi fremur en framvindu laga.
John Doe Spiluðu klassískt rokk.
- Þín brú til betri heilsu
Taktu í taumana og finndu þitt jafnvægi
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010
Hvað hentar þér? Hafðu samband og fáðu fría ráðgjöf
– Eru kílóin að hlaðast á?
– Er svefninn í ólagi?
– Ertu með verki?
– Líður þér illa andlega?
– Ertu ekki að hreyfa þig reglulega?
– ....eða er hreinlega allt í rugli?
www.heilsuborg.is