Morgunblaðið - 29.05.2015, Síða 1
Svona lítur miðbær Reykjavíkur út frá sextándu
hæð nýja Fosshótelsturnsins á Höfðatorgi. Á
þessari efstu hæð hótelsins verða eingöngu svít-
ur og mun nóttin í þeim dýrustu kosta 160 þús-
und á háannatíma. Fundasalur er í stærstu svít-
unum. Risahótelið verður opnað á mánudag. »17
Svíturnar á risahótelinu að verða tilbúnar
Morgunblaðið/Golli
F Ö S T U D A G U R 2 9. M A Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 124. tölublað 103. árgangur
RUGBY HIN
FULLKOMNA
HÓPÍÞRÓTT
ALLT UM
GRILLIÐ OG
GARÐVINNUNA
ÓPERU-LÍSA
BLUNDAÐI Í
HÁLFA ÖLD
24 SÍÐNA BLAÐAUKI FURÐUVERÖLD LÍSU 46ÍÞRÓTT FYRIR ALLA 10
Ljósmynd/Páll Guðmundsson
Skálinn í Hrafntinnuskeri Gríðarmikill
snjór er nú víða á hálendinu.
„Það er óhemjumikill snjór á há-
lendinu,“ sagði Páll Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Ferðafélags Ís-
lands. Hann fór ásamt fleirum í
Hrafntinnusker um hvítasunnu-
helgina. Ferðafélagsmenn hafa far-
ið á hverju vori árum saman til að
huga að opnun fjallaskálanna.
„Það hefur ekki verið jafnmikill
snjór á hálendinu og nú í manna
minnum,“ sagði Páll. „Að skálanum
í Hrafntinnuskeri er hátt í þriggja
metra djúpur snjór. Þetta er 5-6
metra hátt hús og maður stóð jafn-
fætis þakbrúninni.“ »9
Ekki jafnmikill
snjór á hálendinu
í manna minnum
Staðan
» Yfirlýsing um aðgerðir
stjórnvalda verður lögð fyrir
ríkisstjórnarfund í dag.
» Ef samningar hafa tekist
verða drög kynnt í félögum í
dag og skrifað undir síðdegis.
» Samið er til rúmlega þriggja
ára, til loka árs 2018.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Samningamenn í Karphúsinu voru
seint í gærkvöldi að ljúka frágangi á
síðustu málunum í nýjum kjarasam-
ingi. Stefnt er að því að bera samn-
ingana undir stjórnir félaga beggja
vegna samningsborðsins um hádegið
og skrifa undir samninga í kjölfarið.
Nokkur stór mál vöfðust fyrir
samninganefndunum á lokametrun-
um eftir að búið var að ganga frá
megintexta samningsdraganna og
öllum bókunum sem þeim eiga að
fylgja. Meðal þeirra var krafa verka-
lýðsfélaganna um sérstaka launa-
hækkun fyrir fiskvinnslufólk. „Þetta
er úrslitaatriði til þess að samningar
fáist samþykktir í félögunum,“ sagði
Arnar G. Hjaltalín, formaður Dríf-
anda stéttarfélags í Vestmannaeyj-
um. Tókst að ljúka þessu máli um
klukkan tíu í gærkvöldi. Þá voru
verslunarmenn enn í viðræðum við
atvinnurekendur um sérmál.
„Þetta er mjög kostnaðarsamur
kjarasamningur fyrir atvinnulífið.
Miklar hækkanir, sérstaklega á
lægstu launin,“ sagði Þorsteinn Víg-
lundsson, framkvæmdastjóri SA, en
bætti við að vonir væru bundnar við
að með samningi til svo langs tíma
tækist að vinna áfram á grundvelli
aukins kaupmáttar og áframhald-
andi stöðugleika.
Síðustu hnútarnir hnýttir
Samningamenn unnu fram eftir kvöldi við að finna lausn á kröfum fiskverka-
fólks Kostnaðarsamir samningar fyrir atvinnulífið, segir framkvæmdastjóri SA
MStefnt að undirritun »4
Morgunblaðið/Golli
Á sjúkrahúsi Þorgerður Egilsdóttir
ásamt Brynhildi dóttur sinni.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Landspítalinn er núna rekinn sem
bráðaspítali þar sem öllu er for-
gangsraðað og eingöngu sinnt
bráðum aðgerðum. Um helmingur
hjúkrunarfræðinga á sjúkrahúsinu
er að störfum í verkfallinu.
Verkfall hjúkrunarfræðinga sem
starfa á sjúkrahúsum ríkisins hefur
nú staðið yfir í á þriðja sólarhring.
Að öllu jöfnu liggja 18 sjúklingar
á deild B5, sem er bæklunarskurð-
deild á Landspítalanum í Fossvogi.
Í gær voru þeir átta og einn þeirra
var Þorgerður Egilsdóttir. Hún er
áttræð og var flutt á Landspítalann
eftir að hafa lærbrotnað á heimili
sínu á þriðjudaginn. Hún beið í sól-
arhring eftir að komast í röntgen-
myndatöku og fór í framhaldinu í
aðgerð. Þorgerður og dóttir henn-
ar, Brynhildur Inga Einarsdóttir,
segjast vel verða varar við verkfall
hjúkrunarfræðinga en ítreka að
þeir sem séu að störfum leggi sig
alla fram.
„Vissulega hefur maður áhyggj-
ur af aldraðri móður sinni á sjúkra-
húsi sem er ekki fullmannað,“ segir
Brynhildur. „Manni finnst að mað-
ur þurfi að fylgjast vel með henni.“
Á ekki að gerast
Mæðgurnar segjast styðja kröfur
hjúkrunarfræðinga. „Þetta á ekki
að gerast á sjúkrastofnunum,“ seg-
ir Brynhildur. „Fólk á að fá mann-
sæmandi laun svo það þurfi ekki að
fara út í svona aðgerðir.“
Verkfallið hófst á miðnætti á
þriðjudagskvöldið, en boðað hefur
verið til sáttafundar í kjaradeilunni
í dag. »6
Forgangsraðað og helmingur í vinnu
Beið í sólarhring eftir röntgenmyndatöku Engir fundir hafa verið boðaðir
Sameinuðu
þjóðirnar eru að
endurskoða sam-
starf sitt við Al-
þjóða knatt-
spyrnusam-
bandið, FIFA,
vegna ásakana
um stórfellda
spillingu. Helstu
styrktar-
fyrirtæki knattspyrnu í heiminum,
Coca-Cola, Adidas, McDonald’s og
Visa, leggja fast að FIFA að gera
hreint fyrir sínum dyrum og setja
sér strangari siðareglur.
Öll spjót standa á Sepp Blatter,
forseta FIFA, en hann virðist telja
sig öruggan um að ná endurkjöri í
dag, þrátt fyrir andstöðu aðild-
arþjóða í Evrópu. »20 og Íþróttir
Öll spjót standa
á Sepp Blatter
Sepp Blatter