Morgunblaðið - 29.05.2015, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015
Malín Brand
malin@mbl.is
Fyrir síðustu helgi var gert sam-
komulag á milli dýralækna og kjúk-
linga- og svínaræktenda um að sala
á sláturafurðum yrði heimiluð en
undanþágur til slátrunar í verkfalli
dýralækna hafa á undanförnum vik-
um aðeins verið veittar ef velferð
dýra hefur verið ógnað.
Í síðustu viku lýstu bændur
áhyggjum af ónógu rekstrarfé og
óttuðust fóðurskort á búum sínum.
Til að koma til móts við bændur og
til að stuðla að velferð dýra var
heimild veitt til slátrunar og sölu og í
vikunni hefur því komið fersk vara á
markað.
Bændur hafa sent inn umsóknir
um frekari undanþágur en undan-
þágunefndin virðist ekki hafa tekið
endanlega afstöðu til umsóknanna.
Bændur hafa ekki fengið svör og
ekki náðist í talsmenn hjá Dýra-
læknafélagi Íslands í gær. Það ríkir
því óvissa á nýjan leik því bændur
vita ekki hvort þeir fá að slátra í
næstu viku.
Var skref í rétta átt
„Þessi heimild sem bændur
fengu báðum megin við síðustu helgi
var skref í rétta átt. Það hjálpaði að-
eins til en það er mjög fljótt að falla í
sama farið aftur ef frekara rof verð-
ur á slátruninni,“ segir Hörður
Harðarson, formaður Svínaræktar-
félags Íslands.
Bændur telja jafnvel að einhver
misskilningur gæti hafa orðið í mill-
um bænda og dýralækna um sam-
komulagið sem gert var fyrir viku.
Óvissa um slátrun og sölu
sláturafurða í verslunum
Morgunblaðið/Sverrir
Óvissa Bændur vita ekki hvort
slátrað verður í næstu viku eður ei.
Beðið um frek-
ari undanþágur
SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA
Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á
sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan.
Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur
sínum náttúrulega lit.
GERUM SÓLPALLINN
EINS OG NÝJAN
info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is
S: 897 2225
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Nokkrir geislafræðingar
hafa sagt upp störfum sín-
um undanfarið en verkfall
þeirra hefur staðið á ní-
undu viku. „Það liggur fyr-
ir að það hefur verið vegið
mjög að þessari stétt og
hennar faglega starfsheiðri
og það hefur hleypt illu
blóði í menn. Geislafræð-
ingum er mjög misboðið,“ segir Katrín Sig-
urðardóttir, formaður Félags geislafræðinga.
Hún segir undanþágur afgreiddar eins og
fyrr og fari það eftir aðstæðum hverju sinni
hve margir starfi á grundvelli þeirra hverju
sinni. Katrín segist ekki bjartsýn á fram-
haldið og segir að engin teikn séu á lofti um
að verkfallið muni leysast í bráð.
Boðað hefur verið til samningafundar hjá
BHM við ríkið í dag klukkan ellefu, en BHM
semur meðal annars fyrir hönd félags geisla-
fræðinga. Samkvæmt upplýsingum frá emb-
ætti ríkissáttasemjara er búist við nýjum til-
boðum frá samninganefnd ríkisins í deilunni
á fundum í dag.
„Furðuleg staða“
Samningafundur BHM og ríkisins í gær
stóð ekki lengi. „Þeir drógu tilboðið til baka
með þeim hætti að þeir lögðu fram nýtt til-
boð en í staðinn fyrir launahækkanir með
dagsetningum voru komin X í staðinn. Það
jafngildir því að þeir hafa dregið fyrra til-
boðið til baka án þess að koma með nýtt í
staðinn,“ sagði Páll Halldórsson, formaður
samninganefndar BHM, um stöðu viðræðn-
anna í gær.
Í tilkynningu sem barst í kjölfarið frá
BHM í gær var það kallað „furðuleg staða“
að eftir átta vikna verkfall lægi ekki tilboð
um launahækkanir á borðinu og tók Páll und-
ir það. „Þetta er afar sérstakt og kom okkur
verulega á óvart. Það hefði ekki komið okkur
á óvart, miðað við gang mála, að fá tilboð sem
við erum ekki sátt við, það er eitt. En það að
það séu engar tölur í boði, það kom okkur
verulega á óvart,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Verkfall Óánægja er meðal geislafræðinga
Er ekki
bjartsýn á
framhaldið
Samningafundur milli
BHM og ríkisins í dag
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Viðræður verkalýðsfélaga innan Alþýðusam-
bands Íslands við Samtök atvinnulífsins
virtust vera á lokastigi í gærkvöldi. Stefnt
var að undirritun nýrra kjarasamninga eftir
hádegi í dag.
Starfsgreinasamband Íslands var í gær
orðið samsíða Flóabandalaginu og verslun-
armannafélögunum í samningsgerðinni við
Samtök atvinnulífsins. Aftur á móti voru
forystumenn samflots iðnaðarmanna ekki
búnir að taka afstöðu til þess hvort þeir
væru tilbúnir að ganga til samninga á þess-
um grundvelli.
„Hægt að una við þetta útspil“
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, sagði
í gærkvöldi að búið væri að ganga frá öllum
bókunum með væntanlegum kjarasamning-
um og drögum að kjarasamningum fyrir ut-
an eitt atriði. Hún sagði að setið væri við og
reynt að ná niðurstöðu í því. Vonaðist hún
til að það tækist í gærkvöldi.
Samninganefndir verkalýðsfélaganna og
Samtaka atvinnulífsins fengu síðdegis í gær
kynningu á aðgerðum ríkisstjórnarinnar til
að liðka fyrir gerð kjarasamninga. Þær fel-
ast einkum í lækkun tekjuskatts einstak-
linga og aðgerðum í húsnæðismálum. Verka-
lýðsforingjar tóku fyrra útspili ríkis-
stjórnarinnar í húsnæðismálum illa, töldu að
í því fælust allt of litlar umbætur. Ólafía
sagði að í gær hefði verið búið að gera
breytingar á húsnæðistillögunum, bæta þar
verulega í, og hugnaðist verkalýðsfélögun-
um það mun betur.
Skattatillögur nýtast millitekjuhópum
Aftur á móti eru skattatillögurnar
óbreyttar. Ólafía sagði að þær nýttust milli-
tekjuhópum, meðal annars innan VR. Lág-
launahóparnir fengju miklar leiðréttingar
með hækkun launataxta og hækkun lág-
markslauna.
„Það er hægt að una við þetta útspil,“
sagði Ólafía þegar hún var spurð að því
hvort hún væri ánægð. Reiknað var með að
tillögurnar yrðu lagðar fyrir fund ríkis-
stjórnarinnar árdegis í dag. Ólafía sagði í
gærkvöldi að ef niðurstaða samninga næðist
þá um kvöldið myndi hún kynna endanleg
samningsdrög á fundi stjórnar og trúnaðar-
ráðs félagsins í hádeginu í dag og þá yrði
hægt að skrifa undir nýjan kjarasamning
eftir hádegið. Ef ekki yrði komin niðurstaða
í öll mál yrði staðan eigi að síður kynnt á
fundinum.
Hoppar ekki hæð sína af gleði
„Við erum að skoða þann pakka sem er á
borðinu og fara yfir málin með baklandi
okkar,“ sagði Kristján Þórður Snæbjarn-
arson, formaður Rafiðnaðarsambands Ís-
lands, en félagið er í samfloti iðnaðarmanna.
Félögin hafa ekki gengið inn í stóra sam-
flotið.
Samtök atvinnulífsins kynntu í gær
hvernig laun iðnaðarmanna myndu breytast,
ef gengið yrði að tilboði samtakanna. „Ég
hoppa ekki hæð mína af gleði yfir því. Þetta
er langt frá því sem við hefðum viljað sjá,“
sagði Kristján. Hann tók fram að eftir væri
að meta endanlega áhrif tilboðsins.
Í gangi er atkvæðagreiðsla hjá iðnaðar-
mannafélögunum um boðun verkfalls frá 10.
júní að telja. Atkvæðagreiðslunni lýkur
næstkomandi mánudag.
Morgunblaðið/Eggert
Vinnutörn Veitingarnar í Karphúsinu eru farnar að léttast. Byrjað að undirbúa vöfflubakstur sem er óbrigðull undanfari undirritunar samninga.
Stefnt að undirritun
nýrra samninga í dag
Nýtt útspil ríkisstjórnarinnar Iðnaðarmenn taka ekki þátt í samflotinu