Morgunblaðið - 29.05.2015, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015
SVIÐSLJÓS
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Verkfall hjúkrunarfræðinga á
sjúkrahúsum ríkisins hefur nú staðið
yfir í á þriðja sólarhring. Um helm-
ingur hjúkrunarfræðinganna sem
eru í verkfalli hefur verið í vinnunni
og áhrifin eru mismikil eftir sjúkra-
húsum. Landspítalinn er núna rek-
inn sem bráðaspítali þar sem öllu er
forgangsraðað og eingöngu sinnt
bráðum aðgerðum. Framkvæmda-
stjóri hjúkrunar á spítalanum segir
talsvert færri hafa komið á bráða-
móttöku það sem af er verkfalli en
venjan er.
Sigríður Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjúkrunar á Land-
spítalanum, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að svo virtist sem fólk
hikaði við að leita á sjúkrahúsið og
nefndi komur á bráðamóttökuna
sem dæmi.
„Það er alltaf þannig að nokkur
hluti þeirra sem leita á bráða-
móttökuna kemur vegna mála sem
ættu heima annars staðar, eins og
t.d. á heilsugæslu eða læknavakt, og
það fólk er hugsanlega ekki að koma
þessa dagana. En það útskýrir þetta
bara að hluta og það er áhyggjuefni
að fólk sé heima með einkenni sem
það ætti að láta líta á. Hugsanlega
halda einhverjir að bráðamóttakan
sé lokuð, svo er ekki heldur er hún
lokuð fyrir minniháttar vanda-
málum. Þeir sem þangað leita eru
metnir og tekin ákvörðun um hvort
þeir fái aðstoð á bráðamóttöku eða
þeim beint annað.“
Að sögn Sigríðar er ástandið á
deildum sjúkrahússins víða þungt
vegna lágmarksmönnunar. Sumar
göngudeildir séu alfarið lokaðar,
aðrar séu með skerta starfsemi og
mikið sé um að fólk hringi og spyrji
hvort það eigi að koma á sjúkrahúsið
eða ekki. Þá sé töluvert um að fólk á
biðlistum hafi samband. „Við höfum
áhyggjur af þeim sem eru að bíða
eftir nauðsynlegri þjónustu frá okk-
ur, við vitum ekki hvernig þeim líð-
ur,“ sagði hún.
Bera virðingu fyrir aðgerðum
Á sjúkrahúsinu er gjarnan unnið í
teymum fagfólks þar sem
hjúkrunarfræðingar gegna oft lyk-
ilhlutverki, að sögn Sigríðar. Spurð
hvort ekki sé hætta á að aðrir gangi í
störf þeirra í teymunum segir hún að
það sé ekki útilokað þar sem verk-
efni hvers og eins séu mismikið af-
mörkuð. Ekki hafi þó orðið vart við
annað en að aðrar fagstéttir á
sjúkrahúsinu beri fulla virðingu fyrir
verkfallsaðgerðunum.
„Það hefur verið lögð áhersla á að
taka enga áhættu hvað það varðar að
fara hugsanlega inn á verksvið
hjúkrunarfræðinga og ég veit ekki
til þess að aðrir hafi gert það í verk-
fallinu.“ Afar breytilegt er frá degi
til dags hversu margir hjúkr-
unarfræðingar eru að störfum á
Landspítalanum meðan á verkfallinu
stendur. Á sjúkrahúsinu starfa um
1.400 hjúkrunarfræðingar í 1.070
stöðugildum.
Um helmingur í vinnu
Á öryggislista, sem er skrá yfir
þau störf hjá stofnunum ríkisins sem
eru undanþegin verkfallsheimild og
á að uppfylla skilgreinda neyðar-
mönnun, eru 420 stöðugildi hjúkr-
unarfræðinga og því til viðbótar eru
veittar undanþágur. 40 slíkar höfðu
verið veittar áður en verkfallið hófst
á miðnætti á þriðjudagskvöldið og
talsvert berst af beiðnum á hverjum
degi.
„Það er ekki óraunhæft að gera
ráð fyrir að að öllu jöfnu séu um 50
hjúkrunarfræðingar til viðbótar á
undanþágu, það vantar á kvöldvakt á
þessari deild eða dagvakt á einhverri
annarri. Svo getur verið kallað út
vegna aðgerða sem ekki hefur feng-
ist undanþága fyrir, þannig að við
erum að tala um að allt að helmingur
þeirra sé að störfum í verkfallinu,“
sagði Sigríður.
„Það er viðbúið að þegar líður á
verkfallið þurfum við að sækja um
fleiri undanþágur, það er erfiðara
fyrir okkur að útskrifa sjúklinga
vegna verkfallsins.“
– Hefur þetta ekki í för með sér
mikið álag á þá hjúkrunarfræðinga
sem eru að störfum?
„Ef þeir eru farnir að sjá um of
marga sjúklinga er staðan tekin og í
framhaldinu hugsanlega sótt um
fleiri undanþágur. Það er mjög mis-
munandi eftir deildum hversu marga
sjúklinga hver og einn hjúkrunar-
fræðingur er með; á gjörgæslu er
það oft einn, en fimm til sex á legu-
deildum. Svo eru deildir sem þarf að
manna þannig að það sé hægt að
taka á móti óvæntum atburðum, eins
og t.d. slysum.“
Hryggjarstykkið í starfseminni
Hjúkrunarfræðingar eru um
þriðjungur starfsmanna Landspít-
alans. „Þeir eru hryggjarstykkið í
starfseminni og án þeirra gengur
starfsemin ekki. Núna er Landspít-
alinn rekinn sem bráðaspítali sem
þýðir að við erum ekki að sinna fjöl-
mörgum hlutverkum sem við gerum
að öllu jöfnu. Svona getur þetta ekki
gengið lengi,“ sagði Sigríður.
Anna Sigrún Baldursdóttir sem
starfar á skrifstofu forstjóra LSH
segir að við eðlilegar aðstæður séu
gerðar 50-60 aðgerðir á hverjum
degi. Núna séu þær 25-30 og þá ein-
ungis þær aðgerðir sem eru skil-
greindar sem bráðaaðgerðir.
Ingibjörg Hauksdóttir er hjúkr-
unardeildarstjóri á B5, sem er bækl-
unarskurðdeild á Landspítalanum í
Fossvogi. Þegar Morgunblaðið leit
þar inn í gær voru tveir hjúkrunar-
fræðingar á vakt, en eru yfirleitt
fjórir. Ekki hefur verið sótt um
undanþágur fyrir fleiri og full-
mannað var af öðru starfsfólki. Þar
eru rúm fyrir 18 sjúklinga, í gær var
meira en helmingur þeirra tómur,
þar sem einungis átta sjúklingar
voru á deildinni.
Ingibjörg hefur starfað sem
hjúkrunarfræðingur í um 30 ár og á
þeim tíma hafa komið upp nokkrar
kjaradeilur. „Þetta er í fyrsta skiptið
sem ég upplifi að það gæti tekið
nokkurn tíma að leysa deiluna,“
sagði Ingibjörg. „Aftur á móti upplifi
ég mikla jákvæðni meðal starfsfólks
Landspítalans og mér finnst aðdáun-
arvert hversu fólk heldur ró sinni.“
Sárt að horfa upp á tóm rúm
Nú er 931 á biðlista eftir
bæklunarskurðaðgerðum, eins og
t.d. aðgerðum á hnjám og lið-
skiptaaðgerðum og meðalbiðtími er
a.m.k. átta mánuðir. Ekki er útlit
fyrir annað en að hann muni lengjast
enn frekar við verkfall hjúkr-
unarfræðinga. Nokkuð er um að fólk
á biðlistum hafi samband á deildina
til að spyrjast fyrir um hvenær það
fari í aðgerð. „Sumir eru með gíf-
urlega verki. Það er sárt að horfa
upp á þessi tómu rúm og vita af þess-
um langa biðlista og að mörgum líði
illa,“ sagði Ingibjörg.
Flestir þeirra sjúklinga sem nú
liggja á B-5 eru rosknir og Ingibjörg
segir suma þeirra óttast að þeir
verði sendir of snemma heim. „Ég
upplifi ótta hjá þeim, en hér verður
enginn sendur heim í aðstæður sem
hann ræður ekki við.“
Útskrifa fólk um leið
og hægt er
„Við sinnum bráðastarfsemi en
getum ekki gert miklu meira,“ segir
Hildigunnur Svavarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjúkrunar á Sjúkra-
húsinu á Akureyri. „Við útskrifum
fólk um leið og við getum, en erum
t.d. ekki að bíða fram yfir hádegi
eins og í venjulegu ástandi því við
verðum að halda opnum rýmum fyr-
ir bráðatilfelli.“
Engum deildum hefur þurft að
loka á sjúkrahúsinu. Í verkfallinu
hefur um helmingur hjúkrunarfræð-
inga verið við störf. Sumir þeirra eru
á öryggislista, fyrir aðra hefur feng-
ist undanþága. Hildigunnur segist
verða vör við kvíða hjá sjúklingum.
„Fólk verður öryggislaust, það veit
ekki hvernig framhaldið verður. Við
sendum engan heim sem ekki er fær
til þess, en öll þessi óvissa veldur
fólki vanlíðan.“
Hildigunnur segir ástand sem
þetta hugsanlega geta gengið í
nokkra daga en ekki miklu lengur.
„Við höfum virkilegar áhyggjur.“
Að störfum Á B5 voru átta sjúklingar í gær, þar er pláss fyrir 18.
Rekinn sem bráðaspítali
Um helmingur hjúkrunarfræðinga Landspítalans var ekki í vinnunni í gær Sjúklingar hika við
að leita á sjúkrahúsið Átta sjúklingar á 18 rúma bæklunardeild þar sem meira en 900 eru á biðlista
Verkfallið nær til allra heilbrigðisstofnana sem ríkið
rekur, auk hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá ýmsum
ríkisstofnunum eins og t.d. Embætti landlæknis og
Umhverfisstofnun.
Um miðjan dag í gær höfðu undaþágunefnd hjúkr-
unarfræðinga borist 145 umsóknir um undanþágur,
þar af 92 af Landspítalanum. „Sjúklingar eiga að
njóta vafans, það er ekki okkar ætlun að neinn hljóti
skaða af þessu verkfalli,“ segir Ólafur G. Skúlason,
formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem
segir flestar undanþágubeiðnirnar hafa verið sam-
þykktar. Boðað hefur verið til fundar í dag.
Ólafur vill ekki gefa upp kröfur hjúkrunarfræðinga, einungis að þess sé
krafist að launin verði sambærileg launum annarra háskólamenntaðra
ríkisstarfsmanna með jafnlanga menntun. „Við teljum að það eigi að
ræða einstök atriði við samningaborðið, ekki opinberlega. Til að jafna
kjörin við aðra háskólamenntaða ríkisstarfsmenn þyrftu launin að hækka
um 14-25%.“
Sjúklingar njóti vafans
145 UNDANÞÁGUBEIÐNIR HAFA BORIST
Ólafur G. Skúlason
Auð rúm Sjúkrahúsin sinna nú einungis bráðaþjónustu. Hjúkrunarfræðingar Þær Kolbrún og Steinunn á B5.
Morgunblaðið/Golli
Deildarstjórinn Ingibjörg Hauksdóttir er hjúkrunardeildarstjóri á B5 og segir sárt að horfa upp á tóm rúm.