Morgunblaðið - 29.05.2015, Síða 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015
KJÓSUM UM
VERKFALLSBOÐUN
OG STÖNDUM
ÞÉTT SAMAN!
- og aðildarfélög
Það sem af er er yfirstandandi
maímánuður sá fjórði kaldasti í
Reykjavík frá 1949 og sá kaldasti
frá 1979, að sögn Trausta Jóns-
sonar, veðurfræðings. Ástandið hef-
ur verið aðeins skárra fyrir norðan
og austan en í höfuðborginni. Suð-
vesturlandið hefur orðið hvað verst
úti í nöprum, vestlægum áttum en
aðrir landshlutar sloppið betur við
þær.
Auk þess að vera fræðimaður er
Trausti einnig áhugamaður um
veður. Hann skrifar bloggið Hung-
urdiska og er með síðu á Fjasbók
[Facebook] undir sama nafni. Und-
anfarið hefur hann birt færslur um
þennan kuldalega maí.
Í fyrradag sagði Trausti í bloggi
að maímánuður í heild yrði sá kald-
asti um langt skeið. Í gær skrifaði
hann á fjasbók að miðvikudagurinn
27. maí hefði verið kaldur. Lands-
meðalhiti í byggð var +4,28 stig
sem var -1,2 stigum undir með-
allagi síðustu tíu ára. Þó var kald-
ara 27. maí 2007 en í fyrradag.
Þennan dag 2007 var meðaltalið
+3,85 stig en sama dag 1949 var
meðaltalið aðeins +1,67 stig. Frost
mældist á þremur stöðvum í byggð
í fyrradag og hiti fór í tíu stig á
einungis fjórum stöðvum.
Sólskinsstundir mældust 3,9 í
Reykjavík og var mánuðurinn kom-
inn í 10. sæti sólskinslistans. Eins
og margir muna þá var byrjun
þessa maímánaðar sú sólríkasta
síðan mælingar hófust.
gudni@mbl.is
Kaldasti maí í höfuðborginni frá 1979
Það sem af er er maímánuður sá
fjórði kaldasti í höfuðborginni frá 1949
Morgunblaðið/Eggert
Kalt Maímánuður hefur verið óvenjukaldur á Suðvesturlandi.
Til stendur að hækka bensíngjald
sem rennur til Vegagerðarinnar eins
og fram kemur í þingsályktunar-
tillögu innanríkisráðherra um fjög-
urra ára samgönguáætlun fyrir árin
2015-2018.
Á árinu 2015 er áætlað að inn-
heimta markaðra tekna verði með
þeim hætti að bensíngjald verði
7.100 millj. kr., þungaskattur 780
millj. kr., olíugjald 7.700 millj kr. og
vitagjald 274 millj. kr. Gert er ráð
fyrir að fyrir fram ráðstöfun mark-
aðra tekna verði 604 millj. kr. á
árinu 2015. Fram kemur í tillögunni
að gjaldskrár þessara mörkuðu
tekna verði hækkaðar að minnsta
kosti í takt við útgjöld.
Gjaldskrárnar hafa ekki hækkað í
takt við verðlag sem hefur rýrt
tekjustofna Vegagerðarinnar veru-
lega, segir í greinargerð með þings-
ályktunartillögunni. Ef þær hefðu
verð hækkaðar til samræmis við
verðlag eins og flestar aðrar op-
inberar gjaldskrár mundu tekju-
stofnarnir skila hátt í 23 milljörðum
króna á ári í stað 16 milljarða króna.
laufey@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Bensín Hækka á ýmsa tekjustofna
Vegagerðar í takt við verðlag.
Hækkun
bensín-
gjaldsins
Gjaldskrár ekki
í takt við verðlag
Mennta- og
menningar-
málaráðuneytið
hefur ákveðið
að skipa Björn
Þorsteinsson
rektor Landbún-
aðarháskóla Ís-
lands til næstu
fimm ára.
Björn var að-
stoðarrektor kennslumála við
skólann og var skipaður tíma-
bundið rektor frá 1. ágúst sl., eft-
ir að Ágúst Sigurðsson lét af
störfum. Embættið var auglýst og
mælti háskólaráð með skipan
Björns. Auk hans sóttu um starfið
Guðmundur Kjartansson, Ívar
Jónsson, Jón Örvar G. Jónsson,
Sigríður Kristjánsdóttir og Þór-
unn Pétursdóttir.
Skipaður
rektor LBHÍ
Björn Þorsteinsson