Morgunblaðið - 29.05.2015, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015
Karl Ásgeir Sigurgeirsson
Hvammstanga
Þorkell Zakaríasson er 100 ára í
dag, 29. maí 2015, en hann er síð-
ast kenndur við Brandagil í Hrúta-
firði.
Hann fæddist á Bæ í Króksfirði,
sonur hjónanna Zakaríasar Ein-
arssonar og Guðrúnar Guðmunds-
dóttur, einn af 15 systkinum, en
tvö dóu ung. Þorkell býr nú á Heil-
brigðisstofnuninni á Hvamms-
tanga, ótrúlega ern, minnugur og
með góða heyrn, en sjónin að
mestu farin.
Foreldrar hans voru ávallt leigu-
liðar og fluttu oft heimilið, en síð-
ast að Gili í Bolungarvík. Þorkell
ólst upp á Guðlaugsvík í Hrútafirði
frá 12 ára aldri til tvítugs. Hann
stundaði vegavinnu um áratuga-
skeið, fyrst sem verkamaður á
Holtavörðuheiði sumarið 1935, og
segist hafa verið eftirsóttur til að
byggja ræsi úr steinsteypu. „Þau
biluðu aldrei, ræsin mín,“ segir
hann sposkur, og gefur í skyn að
önnur hafi ekki reynst eins vel.
Fékk prófið hjá Bíla-Bergi
Þorkell keypti snemma vöru-
bifreið, FORD 1942 árgerð, trú-
lega með 3-4 tonna burðargetu. Þá
var hann ekki kominn með bílpróf,
en fór á Akranes til að taka það.
„Ef þú getur bakkað milli þessara
tveggja bíla, með jafnt bil á milli,
þá færðu prófið, sagði Bíla-Bergur
við mig, og ég gerði það.“
Þorkell stundaði akstur eigin
vörubíla mestallan sinn starfs-
aldur; vegagerð, mjólkurflutninga
úr V-Hún til Blönduóss og Borg-
arness, kjötflutninga frá Óspaks-
eyri og annað sem til féll. „Vetr-
arakstur með mjólk til Blönduóss
var oft mjög erfiður, þurfti að
moka snjó víða í Línakradal, bölv-
að puð,“ segir Keli.
Skemmtileg minning kemur
fram: „Það var þegar við Böðvar á
Þóroddsstöðum fórum á tveimur
boddíbílum sem ég átti, með um 30
manns um Bröttubrekku á hesta-
mannamót að Nesodda í Dölum.
Þá var mikið sungið og hlegið, ég
held það hafi ekki verið tími til að
skoða hestana. Og svo var farið á
ball í Hreðavatni.“
Syngur á föstudögum
Söngur og ljóðaflutningur er
Kela hugleikinn, hann kann reið-
innar býsn af ljóðum, og Hrútfirð-
ingar minnast vel réttardaga við
Síká, þegar Keli sat í kaffiskúrnum
og söng langtímum saman. Enn
syngur hann flesta föstudaga á
dvalarheimilinu, og fær gjarnan
vini sína með sér.
Þorkell byggði sér íbúðarhús,
Hveravík, á Reykjatanga, lauk
byggingunni árið 1954 og kvæntist
það ár Jóhönnu Sigurðardóttur frá
Neðra-Vatnshorni. Eiga þau son-
inn Sigurð og þrjú barna- og
barnabarnabörn.
Síðar fluttu þau á hluta jarð-
arinnar Brandagil í Hrútafirði. Þar
hafði hann kindur í húsum í nokk-
urri fjarlægð frá íbúðarhúsinu.
Sjónin var farin að dofna mjög, en
með ráðsnilld sinni setti hann
hvítar plastfötur á girðingarstaur-
ana, svo hann gat ekið á milli, utan
vegar. Á efri árum hirti hann
sauðfé fyrir Staðarbændur í um
áratug.
Mikilvæg björgun
Að lokum kom saga: Matthías
Johannessen og Steingrímur Her-
mannsson voru ungir drengir í
vegavinnu á Vatnsskarði. Um nótt-
ina kviknaði í tjaldi þeirra, en Keli
var á heimleið frá Sauðárkróki.
Hann segist halda að þarna hefði
orðið slæmt slys, ef hann hefði
ekki náð tjaldbúum út. „Svo varð
hann helvíti gott skáld, hann Matt-
hías,“ segir Þorkell og hlær dátt.
Bjargaði Steingrími og
Matthíasi úr brennandi tjaldi
Þorkell Zakaríasson á Brandagili er 100 ára í dag Er ótrúlega ern
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
100 ára „Þau biluðu aldrei, ræsin mín,“ segir Þorkell Zakaríasson.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það er óhemjumikill snjór á hálend-
inu,“ sagði Páll Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Ferðafélags Íslands.
Hann fór ásamt fleirum í Hrafn-
tinnusker um hvítasunnuhelgina.
Þangað er enn fært á mikið breytt-
um jeppum, snjóbílum og sleðum.
Ferðafélagsmenn hafa farið á hverju
vori árum saman til að huga að opn-
un fjallaskála sinna.
„Það hefur ekki verið jafnmikill
snjór á hálendinu og nú í manna
minnum,“ sagði Páll. „Að skálanum í
Hrafntinnuskeri er hátt í þriggja
metra djúpur
snjór. Þetta er
5-6 metra hátt
hús og maður
stóð jafnfætis
þakbrúninni.
Gönguleiðin í
nágrenni við
Hrafntinnusker
er að verulegu
leyti á kafi í snjó.
Á leiðinni niður í
Álftavatn er líka mikill snjór og við
skálann þar er um eins og hálfs
metra djúpur snjór. Það er allt á kafi
í snjó. Nú fer sólin að bræða snjóinn
og framundan er mikill krapi.“
Hrafntinnusker er næsti skáli við
Landmannalaugar á vinsælustu
gönguleið hálendisins sem kölluð er
Laugavegur. Miðað við meðaltal síð-
ustu 15 ára hefur Laugavegurinn
verið orðinn göngufær í kringum 20.
júní. Sum árin hefur tekist að opna
leiðina fyrr en í öðrum árum hefur
hún ekki opnast fyrr en í byrjun júlí.
„Eins og útlitið er núna lítur ekki
vel út með opnun snemma,“ sagði
Páll. Hann sagði að kæmi góður hlý-
indakafli, sólskin með roki, hefði það
mikil áhrif. „Það er kuldi í kortunum
og vetraraðstæður á hálendinu. Við
höfum heyrt af hópum sem hefur
snjóað á upp á síðkastið.“
Tilhneiging hefur verið til að
teygja ferðatímabilið í báða enda.
Fyrstu gönguhóparnir nú eru bók-
aðir í göngu um Laugaveginn 15.
júní. Þetta eru stórir hópar útlendra
göngumanna á vegum ferðaskrif-
stofa.
„Það getur orðið mjög erfitt í að-
stæðum eins og þessum. Við höfum
átt fundi með þeim sem skipuleggja
ferðir, Vegagerðinni og Umhverf-
isstofnun. Við ætlum að gera allt
sem við getum til að fara af stað eins
fljótt og aðstæður leyfa, við getum
og leyfi fást til. Við höfum undirbúið
okkur með að flytja vistir í skálana.
Skálaverðirnir gætu þurft að fara
gangandi í skálana. Hópar gætu
þannig byrjað á að ganga milli skál-
anna með létta dagpoka. Ef það
verður með nokkru móti hægt að
komast inn í Landmannalaugar og
ganga ætla menn að reyna það.“
Páll sagði að mikil hætta væri á að
það myndaðist mikill krapi á göngu-
leiðinni þegar færi að hlána. Hópar
sem hefðu farið snemma sumars á
Laugaveginn hefðu lent í því að ösla
krapa upp í hné á köflum. Fólkinu
varð kalt, það var blautt og hund-
óánægt sem von var.
Kæmu hlýindi og góður vindur
hyrfi snjórinn hratt og svæðið þorn-
aði. Það gæti gerst hratt.
Óhemjumikill snjór er á hálendinu
Mikill snjór er víða á Laugaveginum Ferðafélag Íslands hefur flutt vistir í skála á gönguleiðinni
Ljósmyndir/Páll Guðmundsson
Velkominn inn Það þurfti að grafa djúpt svo hægt væri að opna útidyrnar á skálanum í Hrafn-
tinnuskeri. Skálinn er einn viðkomu- og áningarstaða á Laugaveginum vinsæla.
Hrafntinnusker Skálinn er 5-6 metra hátt hús. Snjórinn nam við þakbrúnina og var því um
þriggja metra djúpur. Kunnugir hafa aldrei séð þar jafnmikinn snjó á þessum árstíma.
Páll
Guðmundsson
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Túnikur
7.900 kr. 4 litir
40–56/58Str:
Færir þér
fréttirnar
mbl.is