Morgunblaðið - 29.05.2015, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Nú stendur yfir endurbygging á
einu af gömlu húsunum í Innbænum,
Gamla Apótekinu, sem er númer 4
við Aðalstræti en stendur reyndar
uppi á hæð, alveg við Spítalaveg.
Húsið á sér merka sögu, var byggt
1859 af Jóni Chr. Stefánssyni bygg-
ingameistara og var lengst af ein
glæsilegasta bygging bæjarins að
margra mati.
Margir munu eflaust gleðjast,
eins og dyggur lesandi Morg-
unblaðsins, Karl G. Smith, bendir á í
pósti og sendi einmitt meðfylgjandi
mynd með. Húsið var múrhúðað ut-
an fyrir áratugum og gluggum
breytt en verður fært til fyrra horfs.
Húsinu verður lyft af grunninum
og flutt á meðan nýr kjallari verður
steyptur. Að því loknu verður húsið
flutt aftur á sinn stað og endurbygg-
ingu haldið áfram. Minjastofnun
stendur að breytingu hússins.
Frá og með næsta mánudegi, 1.
júní, þurfa íbúar Akureyrar klippi-
kort til þess að komast inn á gáma-
svæðið við Réttarhvamm (sem nú er
reyndar farið að kalla gámavöll), til
þess að losa sig við eitt og annað.
Íbúar eiga að fá sent klippikort heim
og er nauðsynlegt að hafa það ætíð
meðferðis.
Ýmis úrgangur verður áfram
ógjaldskyldur; dagblöð, fernur,
plastumbúðir, pappi, jarðvegur og
málmar, svo eitthvað sé nefnt, en
greiða þarf til þess að losa sig við
annað, t.d. gras og annan garðaúr-
gang, timbur og grófan úrgang.
Hvert „klipp“ er upp á 0,25
rúmmetra, sem svarar til einnar 240
lítra heimilistunnu. Þess vegna verð-
ur mikilvægara en áður að safna
saman því sem á að henda, en ekki
fara með það í smáum skömmtum.
Ef kort klárast þá verður hægt að
kaupa aukakort á 8000 krónur.
Hljómsveit sem leikur tónlist
Guns N’Roses rokkar á Græna hatt-
inum í kvöld í tilefni 30 ára afmælis
þeirrar amerísku. Platan Appetite
For Destruction verður leikin í heild
en einnig fleiri af bestum lögum
Guns N’ Roses. Söngvari heið-
urssveitarinnar er rokkarinn Stefán
Jakobsson.
Hin gamalkunna hljómsveit
Q4U leikur á Græna hattinum annað
kvöld og þar verður söngkonan Ellý
fremst í flokki. Hljómsveitin hætti
fyrir margt löngu en kom saman aft-
ur 2010 og undirbýr nú útgáfu fyrstu
plötunnar síðan 1983.
Listasafnið á Akureyri tekur
þátt í Listahátíð í Reykjavík þegar
Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir frem-
ur gjörninginn Mannlegt landslag, í
Listasafninu, Ketilhúsinu á morgun,
laugardag, klukkan 15. Aðgangur er
ókeypis.
Mannlegt landslag er tilvist-
arstúdía og skoðun á því að vera í
andartakinu og í sköpunarferli undir
áhrifum af stað og stund, og í sam-
bandi við áhorfendur innan rým-
isins, segir m.a. í tilkynningu.
Ljósmynd/Karl G. Smith
Fallegt hús Gamla apótekið, húsið númer 4 við Aðalstræti. Mikið verk er framundan við breytingar á húsinu.
Gamla apótekið endurbyggt
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fulltrúar Meistarafélags iðnaðar-
manna í Hafnarfirði (MIH) töluðu
árum saman fyrir daufum eyrum hjá
skipulagsyfirvöldum í Hafnarfirði er
þeir ræddu hug-
myndir um að
fjölga ódýrari
íbúðum við Valla-
hverfið.
Ágúst Péturs-
son, formaður
MIH, vildi vekja
athygli á þessu í
kjölfar umfjöllun-
ar í Morgun-
blaðinu í gær um
skort á lóðum undir fjölbýlishús í
Vallahverfinu í Hafnarfirði. Nýjar
og ódýrar íbúðir í hverfinu hafa selst
hratt og segjast verktakar tilbúnir
að byggja fleiri fjölbýlishús ef til
væru lóðir.
Skorturinn líklega að aukast
Fram hefur komið að skortur hef-
ur myndast á íbúðum á höfuð-
borgarsvæðinu og mun sá vandi að
óbreyttu magnast á næstu misser-
um. Er því áfram útlit fyrir spennu á
leigumarkaði og að framboðsskortur
muni þrýsta á verðhækkanir.
Til upprifjunar var haft eftir Har-
aldi L. Haraldssyni, bæjarstjóra
Hafnarfjarðar, í Morgunblaðinu í
gær að unnið sé að breyttu skipulagi
í hverfinu Skarðshlíð, norður af
Vallahverfinu. Þær lóðir verði boðn-
ar út um eða eftir næstu áramót.
Ágúst segir Meistarafélag iðnað-
armanna í Hafnarfirði hafa í kjölfar
hrunsins vakið athygli skipulagsyfir-
valda á því að skipulagðar hefðu ver-
ið of dýrar íbúðir í fyrirhuguðum
hverfum miðað við aðstæður í sam-
félaginu. Þær yrðu of dýrar fyrir
marga kaupendur. Viðhorf yfirvalda
hafi fyrst breyst með nýjum meiri-
hluta í bæjarstjórn í fyrra. „Félagið
hefur allt frá árinu 2009 þrýst á að
skipulagið í Hafnarfirði yrði endur-
metið og því breytt til að nálgast þá
stöðu sem nú er á markaði og við
spáðum. Okkar tillögur gengu út á
að taka bílastæðin upp úr jörðinni og
að slegið yrði af kröfum um allt að
þrjú bílastæði á íbúð. Við bentum á
að fólk sem hefði ekki efni á milljón
króna bíl hefði vart efni á þriggja
milljóna króna bílastæði.
Einkennileg sjónarmið
Mér fannst sjónarmið skipulags-
yfirvalda oft á tíðum einkennileg.
Þau voru ekki tilbúin að taka mark á
félagi sem telur sig hafa góða tilfinn-
ingu fyrir stöðunni á markaðnum.
Það kom fram í samtölum við full-
trúa skipulagsyfirvalda að þessar
breytingar myndu rýra lífsgæði
íbúa. Þá benti ég gjarnan á Norður-
bæinn í Hafnarfirði og að þar væri
mikið af íbúðum án bílastæða í kjall-
ara og að ég teldi þetta fólk ekki búa
við minni lífsgæði,“ segir Ágúst.
Hann segir nýja byggingarreglu-
gerð hafa í för með sér að bygging-
arkostnaður á 115 fermetra íbúð
aukist um tvær milljónir. Við það
bætist 3-4 milljónir króna á íbúð ef
bílastæði þarf að fylgja í kjallara.
Hann segir MIH telja það for-
sendu uppbyggingar í Skarðshlíðinni
að raflína verði flutt frá hverfinu.
Tafði byggingu
ódýrra íbúða
Kröfur skipulagsyfirvalda í Hafnar-
firði sagðar hækka íbúðaverð mikið
Ljósmynd/Ástak/Birt með leyfi
Klukkuvellir 1 Ódýrar íbúðir í þessu
nýja fjölbýlishúsi seldust hratt.
Ágúst Pétursson
Bítlakrás fyrir Grensás – With a
Little Help from My Friends! nefn-
ast tónleikar sem haldnir verða til
styrktar Grensásdeild í Háskólabíói
á laugardaginn og hefjast kl. 18.
Birgir Ingimarsson, grafískur
hönnuður, er helsti hvatamaður
tónleikanna. Hann kynnti hug-
myndina fyrir stjórn Hollvina
Grensásdeildar og í kjölfarið fékk
hann fjölda listamanna til þess að
koma endurgjaldslaust fram á
skemmtuninni.
Öll lögin sem leikin verða á tón-
leikunum eru eftir John Lennon og
Paul McCartney, auk þess sem boð-
ið verður upp á sögusýningu.
Meðal þeirra sem koma fram eru
Björn Thoroddsen, Ari Jónsson,
Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Jóhanna
Guðrún Jónsdóttir og Þuríður Sig-
urðardóttir. Kynnar verða Bogi
Ágústsson og Helgi Pétursson.
Aðgöngumiðar á tónleikana eru
til sölu á midi.is og kosta 4.700
krónur.
Listamenn Hópurinn sem stendur að
styrktartónleikunum á laugardag.
Styrktartónleikar
fyrir Grensásdeild
Sýningin Frí-
merki 2015 verð-
ur haldin um
helgina á vegum
Landssambands
íslenskra frí-
merkjasafnara í
félagsheimili
KFUM og KFUK
að Holtavegi 28,
Reykjavík. Sýningin mun standa
laugardag og sunnudag kl. 13-17 og
er ókeypis aðgangur.
Á sýningunni verða söfn ein-
staklinga frá Íslandi, Noregi og
Bandaríkjunum. Þar á meðal verða
sýnd frímerkjasöfn þriggja Íslend-
inga sem nýverið hlutu verðlaun
fyrir söfn sín á Alþjóðlegu frí-
merkjasýningunni í London.
Frímerkjasýning
um helgina
Grafarvogsdagurinn, hverfishátíð
Grafarvogsbúa, verður haldin í 18.
sinn laugardaginn 30. maí.
Fjölbreytt dagskrá fer fram um
allt hverfið, þar á meðal útimessa
sem að þessu sinni verður í garði
við Eirborgir. Hefst hún kl. 11:30
og lýkur um kl. 12. Söngvinir Graf-
arvogskirkju syngja undir stjórn
Hákonar Leifssonar organista. Sr.
Vigfús Þór Árnason sóknarprestur
flytur hugleiðingu og leikmenn lesa
ritningarorð.
Útimessa á Grafar-
vogsdeginum
STUTT
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150 - Fæst á heimkaup.is
Sumarið er komið!
Raftæki tilvalin í SUMARBÚSTAÐINN
60 ára reynsla á Íslandi
• 5 lítrar alhliða eldunartæki
• Burstað stál
• Stórt LCD skjár 24 stunda „timer“
• Auðvelt að þrífa – non-stick húðun
• 11 prógröm
• Heldur heitu
• Aukahlutir mega
fara í uppþvottavél
• 900W
Cook@Home Multi Cooker
• Olíufrír heilsu djúpsteiking – heitt loft
• Heilsusamleg leið í samanburði við djúpsteikingu
• 3 lítra hólf fyrir mat
• 60 mín. timer, slekkur sjálfkrafa á sér
• Stillanlegur hiti upp í 220°C
• Inniheldur 4 mismunandi bakka
• Fjölnota tæki til að elda franskar kartöflur (ferskar
eða frosnar), kjöt, fisk, grænmeti, baka köku, o.fl.
• Má setja matar ílát í uppþvottavél
Purifry Health Fryer - Multi
• Olíufrír heilsu djúpsteiking
• Heilsusamleg leið í samanburði við djúpsteikingu
• 2 lítra hólf fyrir mat
• Hægt að aðskilja matarhólf
• 60 mín. timer, slekkur sjálfkrafa á sér
• Stillanlegur hiti upp í 200°C
• Fjölnota tæki til að elda franskar kartöflur (ferskar
eða frosnar), kjöt, fisk, grænmeti, baka köku, o.fl
• Má setja matar ílátið í uppþvottavél
Purifry Health Fryer