Morgunblaðið - 29.05.2015, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Á þriðja hundrað manns undirbúa
nú opnun Fosshótelsins á Höfða-
torgi í Reykjavík á mánudaginn.
Þar af eru 60-70 starfsmenn hót-
elsins og vel á annað hundrað iðn-
aðarmenn á vegum Eyktar sem
byggir húsið og leigir það Fosshót-
elum. Húsið er sextán hæðir.
Alls 320 herbergi eru á hótelinu
og rúmar það 650 næturgesti.
Þegar Morgunblaðið leit þar inn
um hádegisbilið í gær voru fáeinar
klukkustundir í lokaúttekt heilbrigð-
iseftirlitsins á eldhúsinu á Haustinu,
veitingahúsi á jarðhæð. Um fimmtán
manns, iðnaðarmenn og starfsfólk í
eldhúsi, voru þá að ganga frá tækj-
um og koma fyrir innréttingum.
Eldunartækin voru í prófun og var
matarilmur í lofti.
Vestanmegin á jarðhæð turnsins
unnu iðnaðarmenn og málarar við
lokafrágang á anddyrinu og fyrir ut-
an húsið var verið að ganga frá
hellusteinum. Á sextándu hæð var
verið að teppaleggja og koma fyrir
húsgögnum. Á fjórðu hæðinni voru
herbergin nær tilbúin. Þar var að-
eins lokafrágangur eftir.
Athygli vakti að gatan fyrir utan
var sundurgrafin en þar er verið að
skipta um lagnir. Á gatan að vera
orðin ökufær á mánudaginn. Lengra
virðist í að hún verði malbikuð.
Allt að 140 starfsmenn
Davíð Torfi Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandshótela, segir
að um 140 manns muni starfa á hót-
elinu þegar mest lætur yfir sumarið
og annasömustu mánuðina. Tæpur
þriðjungur muni starfa í veit-
ingadeildinni og sama hlutfall í mót-
töku og á skrifstofu. Þá verði um
40% starfsmanna þernur.
Hann segir alla mánuði ársins
orðna annasama í hótelgeiranum.
Nýting á hótelum í Reykjavík í jan-
úar til mars sl. hafi verið 80-95%.
Hallgrímur Magnússon, bygging-
arstjóri Höfðatorgs, segir kostn-
aðinn við turninn um átta milljarða.
Kostnaðaráætlun hafi haldist.
Bjórgarðurinn og veitingahúsið
Haust eru hönnuð af Leifi Welding.
Báðir staðirnir eru á jarðhæð. Leif-
ur og starfsfólk hans hafa hannað
fjölda veitingahúsa á undanförnum
árum og má þar nefna Kol, Grill-
markaðinn, Kopar og nýtt veitinga-
hús við Geysi í Haukadal.
Leifur sýndi blaðamanni salar-
kynnin og útskýrði hönnunina. Ætl-
unin er að skapa hlýlegan íslenskan
Gert klárt Matreiðslumenn höfðu í nógu að snúast við að standsetja eldhúsið í gær. Myndin í miðjunni er úr Bjórgarðinum. Þórunnartúnið var sundurgrafið í gær, skömmu fyrir opnun hótelsins.
„Hér verður allt stærst“
Her manna vinnur að lokafrágangi Fosshótelsturnsins á Höfðatorgi Opnað á mánudaginn
Hönnuður veitingastaðar og bjórgarðs á hótelinu segir alla hluti með stærsta móti á risahótelinu
Morgunblaðið/Golli
Jarðlitir haustsins Veitingahúsið Haustið verður í þessum sal á jarðhæð.
Þegar staðurinn verður fullbúinn verður búið að hólfa borðin meira af.
Á Haustinu Leifur Welding hönnuður, Thelma Theodórsdóttir og Davíð
Torfi Ólafsson, starfsmenn Íslandshótela sem reka Fosshótelkeðjuna.
Anddyrið Móttakan var langt komin í gær. Á myndinni í miðjunni má sjá ráðstefnuherbergi í 70 fermetra svítu á 16. hæð. Myndin til hliðar sýnir svo útsýnið úr herberginu yfir Reykjavík.
stað innan um stórhýsin sem hafa og
eiga eftir að rísa á Höfðatorgi og
tekur hönnun, efnisval og lýsing mið
af íslensku hausti. Með því sé gest-
urinn kominn í annan heim. Móttak-
an, Haustið og Bjórgarðurinn skapi
ólíka upplifun. Við gluggana á
Haustinu hanga gylltar, silfurlitaðar
og koparlitaðar ljósakrónur yfir
borðum og tákna lauf í vindi á
hausti. Þetta eru jarðlitir íslenska
haustsins. Milli borða við gluggana
verða eikarplötur með útskornum
trjágreinum, sem skornar eru út
með leysigeisla. Borð verða ekki
dúklögð heldur mun viðurinn fá að
njóta sín. Lögð er áhersla á að hót-
elið verði umhverfisvænt og er allt
leður í stólum og annar efniviður í
húsgögnum á Haustinu endurunn-
inn. Íslenska haustið sem þema
kemur líka fram í matseðli í vali á
hráefni.
Leifur segir mjúkar línur ein-
kenna Haustið. „Það er ekkert horn-
rétt í veitingasalnum. Því var ekki
hægt að hanna hann á sígildan máta
fyrir hótel, með beinum línum. Við
vildum það heldur ekki. Þvert á móti
vildum við gera þetta að meira en
morgunverðarsal. Morgunverðurinn
á ekki að verða síðri upplifun en
kvöldverðurinn. Við settum inn
bogadregnar og mjúkar línur til að
skapa hér heillandi veitingastað.“
Lýsingin skapi stemninguna
Ekki var búið að setja upp gard-
ínur á Haustinu og sagði Leifur að
stemningin myndi breytast mikið
þegar hægt yrði að stilla lýsinguna
og laga hana að hönnun staðarins.
„Gestir hótelsins eru komnir til
Íslands til að upplifa landið og
menninguna. Við viljum því að þeim
líði eins og þeir séu á Íslandi,“ segir
Leifur og sýnir blaðamanni því næst
anddyri Bjórgarðsins sem ætlunin
er að opna fyrir aðra helgi.
Þar blasir við hár veggur með
grjóti sem sótt var til Hellu og vega
þyngstu steinarnir allt að 90 kíló.
„Það hentaði vel að steypa grjótið
upp á vegginn, enda er það flatt.
Þetta er dálítið í stíl við gamla
Drápuhlíðargrjótið en í ýktari mynd.
Stykkin voru aldrei svona stór,“ seg-
ir Leifur og vísar til þeirrar tísku á
Íslandi fyrr á árum að raða flögu-
bergi upp á innveggi. Var það sótt í
Drápuhlíðarfjall, skammt frá Stykk-
ishólmi. „Þetta er í stíl við alla hönn-
un á hótelinu. Við viljum að gestirnir
upplifi eitthvað íslenskt. Þeir eru
komnir hingað til að upplifa Ísland.“
Stærsta ljósakróna landsins
Sitthvorumegin við grjótvegginn
verða tvær risastórar bjórtunnur úr
kopar. Á vegg til vesturs er málverk
eftir Arngrím Sigurðsson myndlist-
armann og gegnt þeim vegg, í her-
berginu til austurs, er svört ljósa-
króna úr járni sem Leifur hefur
heimildir fyrir að sé sú stærsta á
landinu. Á austurveggnum standa
bjórtunnur úr veggjunum.
„Hér verður mesta úrval landsins
af bjór og jafnframt stærsta bjór-
dæla landsins. Hún verður þrír
metrar og tengd við samtals 22 bjór-
stúta. Hér verður stærsti bjórgarð-
ur á Íslandi í stærsta hóteli á Ís-
landi. Hér verður allt stærst,“ segir
Leifur og slær á létta strengi.