Morgunblaðið - 29.05.2015, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Peter Souter, stjórnarformaður og
sköpunarstjóri TBWA\London,
kann sitthvað fyrir sér í markaðs-
setningu. Eflaust hafa margir les-
endur rekið augun í greinar í síð-
ustu viku um
fagurblátt hús á
floti niður ána
Thames. Þar var
Peter og teymi
hans að störfum
og markmiðið að
vekja athygli á
lagabreytingu
sem leyfir Lund-
únabúum að
leigja íbúðir sínar
út á Airbnb. Uppátækið vakti at-
hygli í fjölmiðlum um allan heim.
Nú er Peter kominn til Íslands og
heldur hann erindi á ráðstefnu SFS
á Hilton Reykjavík Nordica í dag.
Peter ætlar að reyna að svara því
hvort, og þá hvernig væri hyggileg-
ast að haga markaðssetningu ís-
lenskra sjávarafurða á alþjóðamark-
aði.
Fjárfesting, ekki útgjöld
Um þörfina á að markaðssetja
hefur hann það að segja að mark-
mið fyrirtækja eins og TBWA sé
alltaf að skila viðskiptavininum
fleiri krónum í kassann. „Markaðs-
starf á ekki að snúast um útgjöld
heldur um fjárfestingu. Úthugsað
markaðsstarf á að skila sér í auk-
inni markaðshlutdeild, meiri eft-
irspurn og þar með aukinni sölu og
hærri verðum. Hættan er líka sú að
ef markaðsstarfið mætir afgangi þá
sæti keppinautarnir lagi og hrifsi til
sín stærri skerf af sölunni.“
Peter leggur einnig á það ríka
áherslu að ekki sé sama hvernig að
markaðsstarfinu er staðið. Það sé
ekki endilega ávísun á árangur að
eyða fúlgum fjár í langar sjónvarps-
auglýsingar eða veggfóðra neðan-
jarðarlestakerfið í London með
plakötum.
„Eins og málið horfir við mér ætti
að vinna að því að skapa íslenskum
sjávarafurðum heildstætt vöru-
merki, og styrkja þetta vörumerki í
hugum neytenda. Mér kemur til
hugar danskt beikon sem dæmi um
sterkt merki af þessum toga, sem í
huga almennings er orðið tákn um
gæði. Sama hver framleiðandinn er
getur kaupandinn stólað á að ef
pakkningin er merkt „danskt beik-
on“ þá er varan fyrsta flokks.“
Grátur og gleði
Með þennan útgangspunkt til
hliðsjónar þarf svo að huga að því
hvernig markaðsefnið er útfært.
Þar segir Peter þurfa að fylgja
þeirri grunnreglu að fá áhorfandann
til að hlæja, gráta eða hugsa. Að
öðrum kosti skapist ekki nægilega
sterk hugrenningatengsl.
Íslenskar sjávarafurðir standa
þar vel að vígi að því leyti að hægt
er að nota hreinleika afurðarinnar
og ábyrgar fiskveiðar sem eitthvað
fyrir neytendur til að „hugsa um“.
En hvað með hlátur? Er matur
eitthvað til að gantast með?
„Bandarísku mjólkurauglýsing-
arnar, Got milk? eru gott dæmi um
hvernig má gera þetta vel. Mjólk er
jú bara mjólk, og kannski er fiskur
bara fiskur, en með léttleikanum er
hægt að gera áhugaverðan hlut úr
vöru sem er í grunninn hversdags-
matur.“
Peter segir markmiðið með ferð
sinni til Íslands einmitt ekki síst að
hvetja íslensk sjávarútvegsfyrirtæki
til að þora að nálgast markaðs-
starfið á frumlegan hátt. „Stjórn-
endurnir þurfa að vera reiðubúnir
að taka áhættu og hafa kjarkinn til
að gera eitthvað verulega fyndið,
eða verulega hrífandi, ef á að gera
alvöru breytingar á neysluvenjum
markhópsins.“
Þarf heildstætt vörumerki
Morgunblaðiði/Skapti Hallgrímsson
Vara Fiskvinnsla á Dalvík. Hvernig ætli væri hægt að ná fram réttum hug-
hrifum í markaðsefni sem á að auka eftirspurn eftir íslenskum fiski?
Segir að við markaðssetningu á íslensku sjávarfangi þurfi að búa til markaðs-
efni sem fær fólk til að hlæja, gráta eða hugsa Frumleiki kallar á kjark
Ráðleggingar
» Íslenskur sjávarútvegur þarf
að hafa kjarkinn til að fara
frumlegar leiðir.
» Markaðsstarfið á að snúast
um að skila fleiri krónum í
kassann.
Peter Souter
stjórnar og framkvæmdastjóra
námu 16 milljónum.
Heildareignir sjóðsins voru í
árslok 5,4 milljarðar króna. Eig-
infjárhlutfall sjóðsins er 97,5%.
NSA fjárfesti fyrir 390 milljónir
króna á síðasta ári. Fjárfest var í
tveimur nýjum sprotafyrirtækjum
Sling og Kaptio og í sjö fyrir-
tækjum sem NSA átti þegar eign-
arhlut í. Á árinu fjárfesti NSA
einnig í fjárfestingasjóðnum
Frumtaki og fer þar með ráðandi
hlut, 37%.
Um síðustu áramót átti NSA
hlut í 34 fyrirtækjum, stærstu
eignarhlutarnir, 30% eða meira,
eru í Gogogic, Frumtaki GP, Líf-
eind, Norrænum myndum, Trans-
mit, AMP, Stika, 3Z, Admit, Co-
oori, Gangverði, Oxymap og
Stjörnu-Odda. Á árinu seldi NSA
eignarhlut sinn í fyrirtækjunum
Primex, Kerecis og Alur álvinnslu.
NSA hóf starfsemi 1997 og er í
eigu ríkissjóðs þar sem umsjón
með sjóðnum er í höndum atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðherra.
Fjárfestingar NSA hafa verið yfir
150 frá stofnun. margret@mbl.is
Hagnaður Nýsköpunarsjóðs at-
vinnulífsins, NSA, var 201 milljón
króna á síðasta ári í samanburði
við 13 milljóna króna hagnað árið
á undan. Rekstrartekjur námu 448
milljónum króna samanborið við
310 milljónir króna árið áður.
Rekstrargjöld voru 246 milljónir
króna, þar af voru færðar 102
milljónir króna í afskriftir sem
varúðarniðurfærsla. Laun og
tengd gjöld voru 78 milljónir
króna en hjá sjóðnum starfa 6
starfsmenn. Laun og þóknanir til
NSA með 201 milljón króna í hagnað
Fjárfest fyrir 390 milljónir króna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Helga Valfells framkvæmdastjóri.
● Vísitala neysluverðs hækkaði um
0,28% milli mánaða og mælist því
verðbólgan 1,6% fyrir 12 mánaða tíma-
bil. Verð á mat og drykkjarvörum hækk-
aði um 0,95%. Vísitala neysluverðs án
húsnæðis hækkaði um 0,30% frá apríl.
Vísitala neysluverðs samkvæmt út-
reikningi Hagstofunnar núna er 428,2
stig og gildir til verðtryggingar í júlí.
Verðbólgan komin í
1,6% í nýrri mælingu
● Eignarhaldsfélagið Hofgarðar ehf.,
sem er einkahlutafélag í eigu Helga
Magnússonar, varaformanns stjórnar
N1, keypti hlutabréf í N1 fyrir 109 millj-
ónir króna í gær. Þar sem um kaup
fruminnherja er að ræða voru þau til-
kynnt í Kauphöllina en keyptar voru
þrjár milljónir hluta á genginu 36,30. Í
nýbirtu árshlutauppgjöri hjá N1 kom
fram að afkoma á fyrsta ársfjórðungi
væri betri en á sama tíma í fyrra.
Helgi kaupir fyrir 109
milljónir króna í N1
!"#$
!$
#$"
%
#%
#
!#!$
$$!#
%#
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
"
!#$
!%%
#%
%!$
$$
!$
$"#%
%
#
!" $
!$!
#%%$
%#
#%
!$%"
$%
%
!#%$
Orkuveita
Reykjavíkur, OR,
skilaði 3,3 millj-
arða króna hagn-
aði á fyrsta árs-
fjórðungi.
Rekstrartekjur
voru rúmir 11
milljarðar króna
og nam veltufé
frá rekstri rúm-
um 6 milljörðum
króna. Eigið fé hefur hækkað frá
áramótum og var í lok tímabils 107
milljarðar króna. Vegna uppskipt-
ingar OR í upphafi síðasta árs er
ekki gefinn upp samanburður við
fyrra ár í árshlutareikningnum.
Í skýrslu um fjár- og áhættustýr-
ingu sem gefin var út í gær kemur
fram að mikill árangur hafi náðst á
því sviði í rekstri OR.
Góð af-
koma OR
Rekstrartekjur OR
voru 11 milljarðar.
Hagnaður 3,3 millj-
arðar í fjórðungnum
● Ríkisstjórnin
hefur ákveðið að
hækka framlag til
Tækniþróunar-
sjóðs umtalsvert í
samræmi við að-
gerðaáætlun Vís-
inda- og tækni-
ráðs. Þetta kom
fram í ávarpi Ragn-
heiðar Elínar Árna-
dóttur, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, á ársfundi Nýsköp-
unarsjóðs sem haldinn var á Grand hót-
el í gærmorgun.
Í ár er framlag til Tækniþróunarsjóðs
1.372 milljónir króna og er gert ráð fyrir
að bæta um einum milljarði króna við
árið 2016.
Tækniþróunarsjóður
fær meira fjármagn
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
STUTTAR FRÉTTIR ...
Garðsláttuvélar
og garðtraktorar
Mikið úrval sláttuvéla, garðtraktora og ásetusláttuvéla
ÞÓR HF
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 -18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is